Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meta framleiði heilsuvörur úr hampi: „Komst að því hvað þetta er margslungin planta“

Meta framleiði heilsuvörur úr hampi: „Komst að því hvað þetta er margslungin planta“
Meta Pahernik

Meta Pahernik flutti hingað til lands ásamt eig­in­manni sínum, Jurij, fyrir fáeinum árum en í heima­land­inu Slóveníu rækt­uðu þau hamp á bóndabæ sínum. Hjónin flytja sló­vensk mat­væli til lands­ins auk þess sem Meta fram­leiðir heilsu­vörur úr hampi undir heit­inu Jara. Meta er við­mæl­andi í nýjum þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, þar sem hún rekur sögu sína og hvernig hamp­ur­inn kom inn í líf hennar.

Áhuginn kviknaði í háskólanum

Áhuginn á hamp­rækt kvikn­aði hjá Metu á öðru ári í námi sínu í land­bún­að­ar­fræði við háskól­ann í Maribor, annarri stærstu borg Slóveníu. „Þetta var fyrsta rit­gerðin sem ég skrif­aði þetta skóla­árið og eftir að ég hafði skoðað bók um jað­ar­ræktun (e. alt­ernative crop). Við lest­ur­inn komst ég að því hvað þetta er marg­slungin planta sem gefur af sér textíl, elds­neyti, mat­vöru, bygg­ing­ar­efni og pappír og áfram mætti telja.“

Meta tekur það sér­stak­lega fram að það hafi ekki verið vímu­gjaf­inn kanna­bis sem hún hafði hug á. „Ég hafði ekki áhuga á kannabínóðum á þessum tíma. Auðvitað þekkti ég þá sögu alla enda sam­ofin plönt­unni sjálfri en ég var tví­tug að velja mér fram­tíð og það var ekki heilla­væn­legt að gera vímu­gjaf­anum í plönt­unni hátt undir höfði. Þetta var auð­vitað þunn lína þarna á milli en ég var að vinna með aðra hluti plönt­unnar.“

Í skól­anum rann­sak­aði Meta kanna­bis­plönt­una frá öllum hliðum, þar á meðal sögu hennar í Slóveníu. Þannig á plantan sér langa sögu í þorp­inu sem hún ólst upp í en Meta er úr Drava-dalnum í norð­ur­hluta Slóveníu. „Íbúar sem eru komnir á níræð­is­aldur muna eftir því að kanna­bis­plöntur var víða að finna í þorp­inu þegar þau voru börn en þau vita samt ekki alveg hvernig þær voru not­aðar.“ Plantan óx vilt í þorp­inu og telur Meta að aðal­lega hafi fræ hennar verið notuð og þá til mat­ar­gerðar.

Kanna­bis­plöntur voru rækt­aðar í stórum stíl í Slóveníu og á sínum tíma var landið annar stærsti útflytj­andi heims­ins á textíl úr hampi. „Það var verið að rækta hamp á um tvö þús­und hekt­urum árlega. En þetta var iðn­aður sem dó út, vél­arnar voru bræddar til að nota í annað,“ segir Meta og bætir við: „Þetta var vegna bann­ár­anna. Banda­ríkja­menn lögðu stefn­una sem önnur ríki heims­ins tóku upp eftir þeim og plantan sem slík var bönnuð í Slóveníu, allir hlutar hennar og mis­mun­andi teg­undir. Þannig að þetta bara dó út og þessi iðn­aður gleymd­ist. Núna, ekki hund­rað árum síðar, erum við að reyna vekja fólk til vit­undar um þennan gleymda iðnað.“

Framleiðir heilsuvörur úr hampi

Meta leggur sitt lóð á vog­ar­skál­arnar þegar kemur að vit­und­ar­vakn­ing­unni um kanna­bis­plönt­una og alla þá mögu­leika sem hún býður upp á. Hún hannar og fram­leiðir heilsu­vörur úr hampi, þar á meðal tölvumúsarpúða sem seldir eru í verslun Elko í Lindum, undir nafn­inu Jara. „Áður en ég hóf fram­leiðsl­una var ég að lesa mér aðeins til um rúnir og sá þá að Jara þýðir upp­skera. Mér fannst það svo flott að ég ákvað að ef ég skyldi setja á fót fyr­ir­tæki þá yrðu vör­urnar undir því nafni. Ég kaupi efni­við­inn frá Rúmeníu og kemur hann úr einni af verk­smiðj­unum sem stóðu af sér bann­árin. Það væri gaman að geta gert alís­lenskar vörur og ég vona að það verði að veru­leika á næstu árum.“ Meta hefur fram­leitt ýmsar vörur, til dæmis bangsa og brjósta­gjafa­púða, og tekur við sér­pönt­unum. Salan hefur gengið vel á Íslandi og framar vonum. „Ég reyndi að setja þessar sömu vörur á markað í Slóveníu en mark­að­ur­inn hafn­aði mér. Vörurnar þóttu of dýrar og versl­anir vildu helst ekki sam­sama sig við kanna­bis­vörur.“

Spurð út í fram­tíð hamp­rækt­unar á Íslandi segir Meta að gera verði grein­ar­mun á ræktun utandyra og í gróð­ur­húsum. Veðr­áttan á Íslandi sé með því móti að vart sé hægt að rækta kanna­bis­plöntur utandyra nema til að nota í bygg­ing­ar­efni eða líf­efni (e. biom­ass). Aftur á móti séu gríð­ar­leg tæki­færi fólgin í ræktun kanna­bis­planta í gróð­ur­húsum en með því móti megi ná miklum gæðum sem nýst gætu í heilsu­vörur á borð við þær sem inni­halda CBD.

Meta er ekki sjálf í bús­störfum hér á landi en horfir fram á veg­inn. „Ef ein­hver býður mér akur til að rækta á þá bý ég yfir allri nauð­syn­legri þekk­ingu. Heima í Slóveníu var ég með bóndabæ en við sjáum til hvað ger­ist hér á landi. En von­andi fæ ég tæki­færi til að rækta hamp á Íslandi því við fjöl­skyldan stefnum á að búa hér til fram­tíðar.“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan. Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Metu Pahernik. Mickael Omar Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel um frétta­skrif.

Fræðast má nánar um vör­urnar hennar Metu á eft­ir­far­andi vefslóðum:

https://www.facebook.com/jara.products

https://www.instagram.com/jara_products/

Hér má horfa á við­talið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina