Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir enga opinbera samvisku hér: „Aumingja við að þurfa að láta drepa svona mikið í okkar nafni“

Segir enga opinbera samvisku hér: „Aumingja við að þurfa að láta drepa svona mikið í okkar nafni“
Rústir Gaza Mynd: YAHYA HASSOUNA / AFP

Kristinn Hrafns­son segir að á Íslandi finn­ist ekki „sjálf­stæð opin­ber sam­viska“ í Facebook-færslu varð­andi þjóð­ar­morðið sem framið er á Gaza um þessar mundir.

Rit­stjóri Wikileaks, Kristinn Hrafns­son hefur verið ötull í að skrifa um hið hrotta­lega ástand sem blasir við á Gaza þessa dag­ana en að minnsta kosti 20.057 Palest­ínu­menn hafa verið drepnir frá 7. októ­ber, þar af að minnsta kosti 8.000 börn. Þá eru að minnsta kosti 6.700 manns týndir undir rústum bygg­inga sem hafa verið sprengd í tætlur. Í gær skrif­aði Kristinn færslu þegar beðið var eftir nið­ur­stöðu kosn­inga hjá Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hafði verið frestað ítrekað en kosið var um sam­þykkt um mann­úð­ar­að­stoð til handa Palest­ínu­mönnum. Náði sam­þykktin fram að ganga eftir miklar breyt­ingar á orða­lag­inu.

„Allur heim­ur­inn liggur nú á Banda­ríkja­mönnum að fall­ast á sam­þykkt Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna um vopna­hlé í eyð­ing­ar­stríði Ísraels gegn Palest­ínsku þjóð­inni,“ skrif­aði Kristinn áður en nið­ur­stöð­urnar voru ljósar. Og hélt áfram. „Ísraelar einir þjóða leggja að Banda­ríkja­mönnum að beita neit­un­ar­valdi – enn og aftur.“

Því næst gerir Kristinn grín að Joe Biden Banda­ríkja­for­seta vegna tregðu hans til að sam­þykkja stöðvun þjóð­ar­morðs­ins.

„Biden for­seti er lengi að hugsa og á meðan hann finnur réttu orðin til að setja í til­lög­una um að stöðva þjóð­ar­morðið („for­dæmum Hamas“, „Ísrael hefur rétt til sjálfs­varnar“) heldur Ísrael áfram að fremja stríðs­glæp­ina sína, í gær í beinni útsend­ingu á Al-Jazeera þar sem hetju­legi her­inn hans sprengdi upp íbúð­ar­blokk og mosku við hlið­ina á einu af fáum starfs­hæfum sjúkra­húsum syðst á Gaza, í Rafah (sem Gazabúum hafði verið skipað að hóp­ast til, enda „öruggt“ svæði)

Nei bíðum aðeins með þetta, segir Biden við allan heim­inn, því Biden þarf að heyra í Bíbí og hafa hann með í ráðum. Skottið dillar hund­inum – framan í allan heim­inn.“

Þá snýr rit­stjór­inn sér að Íslandi og þykir ekki mikil til koma hvað varðar sjálf­stæða sam­visku og skýtur fast á Stefán Eiríks­son útvarps­stjóra Rík­is­út­varps­ins.

„Á Íslandi er ekki til sjálf­stæð opin­ber sam­viska, heldur fjar­stýrt hags­muna­tengt til­finn­inga­við­bragð. Meira að segja RÚV er að bíða eftir því að verða sagt hvað því á að finn­ast um þjóð­ar­morð og hvort það sé ekki alveg örugg­lega í lagi að syngja glað­lega með barna­dráps­vél­inni á Eurovision. „Við erum ekki í póili­tík“, segir Útvarps­stjóri og hrisstir blóð­slettur barn­anna af glimmergall­anum.“

Kristinn lýsir einnig for­keppni Ísrael í Eurovision söngvakeppn­inni.

„Kollegi hans í Ísrael er sann­ar­lega í póli­tík, hins vegar og kynnir for­keppni Eurovision þar í landi sem upp­hafn­ingu á hetju­verkum Ísra­els­hers. Allir kepp­endur koma fram í her­bún­ingum og dóm­ar­arnir líka. Útsend­ingu á fyrsta þætti for­keppn­innar var frestað vegna sorgar yfir því að Ísra­els­her slátr­aði þremur af eigin her­mönnum þó svo þeir kæmu fram berir að ofan, veif­andi hvítum frið­ar­fána, hróp­andi á hebr­esku. Blóð­flóðið frá tíu þús­und börnum átti ekki að stöðva for­keppni Eurovision í Ísrael, þvert á móti átti að nota blóðið í glans­at­riðin.“

Þá segir Kristinn að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur neita að ræða ástandið á Gaza.

„Katrín Jak­obs­dóttir er löngu búin að gleyma því að hún var einu sinni í póli­tík og sagði síð­ast þegar hund­ruð börnum var slátrað á Gaza, fyrir nokkrum árum að heims­byggðin gæti ekki setið aðgerð­ar­laus hjá, situr nú aðgerð­ar­laus hjá og bíður, bíður eins og Bjarni Ben bíður, bíður eftir Biden sem bíður eftir leyfi frá Bíbí sem langar ekk­ert að hætta að drepa börn því hann veit að ef hann hættir því er hann búinn að vera í póli­tík heima hjá sér.

Allur heim­ur­inn nema Benjamín Net­anyahu segir stopp en hann hefur engin hald­bær rök lengur nema til­vitnun í að Guð hafi gefið honum leyfi til að drepa börn. Fullt af þeim.“

Lokaorð Kristinn eru köld og sterk, enda kemur þau við kaun­inn á óop­in­beru sam­visk­una sem við Íslend­ingar þó höfum, flest að minnsta kosti.

„Við kyngjum blóð­flaum­inum með jólasteik­inni og látum ekk­ert trufla gleð­ina, síst af öllu söng­gleð­ina og fót­bolta­gleð­ina. Ekki tíu þús­und dáin börn, né heldur hin sem tóra, móð­ur­laus, föð­ur­laus, útlima­laus, svöng, grát­andi, hrædd.

Aumingja við að þurfa að láta drepa svona mikið í okkar nafni. Í nafni guð­föð­urs Hvíta húss­ins og heilags anda her­gagna­iðn­að­ar­ins. Heimsins böl, helg er sú kvöl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina