Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Læknar tóku ekki mark á Kolbrúnu: „Það var enginn að grípa mig“

Læknar tóku ekki mark á Kolbrúnu: „Það var enginn að grípa mig“
Kolbrún Sverr­is­dóttir

Kolbrún Sverr­is­dóttir hefur gengið í gegnum ýmis­legt á lífs­leið­inni. Hún missti sam­býl­is­mann sinn í sjó­slysi árið 1996 og fórst faðir hennar einnig í sama slysi. Eftir slysið varð Kolbrún lands­þekkt fyrir bar­áttu sína fyrir rétt­indum sjó­manna og var meðal ann­ars valin kona árs­ins 1999 af tíma­rit­inu Nýju Lífi. Und­an­farin sex ár hefur hún hins vegar glímt við lungna­sjúk­dóm en fékk ekki rétta grein­ingu fyrr en árið 2022. Kolbrún segir frá þessu í tíma­rit­inu Lungu, frétta­blaði Lungna­sam­tak­anna.

„Eftir á að hyggja hef ég verið farin að finna fyrir þessu án þess að gera mér grein fyrir hvers kyns væri. Ég reykti í þrjá­tíu ár, frá því ég var ung­lingur og þangað til ég var fjör­tíu og fimm ára og eru því að verða átján ár frá því ég hætti. Það umhugs­un­ar­verða er að fyrir um fimm til sex árum fór ég að fá mjög mikla verki fyrir brjóstið og í bakið. Ef ég fann lykt af grasi fannst mér ég alveg vera að kafna og var mjög við­kvæm fyrir alls konar lykt. Ég mædd­ist mikið, var alltaf hnerr­andi og tók and­köf ef ég fann eins og eitt­hvað skylli á lung­unum.“

Á þessum tíma fór Kolbrún reglu­lega til læknis til að reyna fá skýr­ingu á mál­unum. Hún var greind með gróð­urof­næmi, kulnun eða stoð­verki en var í raun aldrei rann­sökuð. Hélt þetta áfram þar til hún missti allt þrek eitt kvöld áður en hún átti að mæta til vinnu. Hafði hún ekki þrek eða orku til að opna úti­dyrnar. Varð svo að hún lá í veik­indum yfir helg­ina. Mánu­dag­inn eftir helg­ina reyndi hún að fá tíma hjá lækni en gat aðeins fengið slíkan tíma ef hún hitti hjúkr­un­ar­fræð­ing fyrst.

„Það tókst loks­ins og hún tók af mér blóðprufu þar sem kom í ljós að ég var með ein­hverja sýk­ingu. Þá fékk ég að tala við lækn­inn sem setti mig á lyf við lungna­bólgu. Ég fór heim og tók lyfið og ætl­aði svo bara að mæta í vinn­una þegar ég væri orðin hress­ari.“

Lyfin höfðu þó ekki þau áhrif sem Kolbrún von­að­ist eftir og hún ákvað að taka málin í eigin hendur. „Það var eng­inn að grípa mig í þessum aðstæðum. Ég hafði veru­legar áhyggjur af veik­indum mínum og sá fram á að ég myndi senni­lega ekki fá þá þjón­ustu sem ég þyrfti heima. Ég var hvorki sett í mynda­töku né blást­urs­próf, það var ekk­ert verið að spand­era í það.“

Eftir að hafa fengið tíma hjá lungna­lækni með miklum erf­ið­leikum var Kolbrún greind með lungna­bilun á loka­stigi og hefði aðeins 25 pró­sent lungna­styrk. Lungna­læknir Kol­brúnar sótti um end­ur­hæf­ingu fyrir hana á Reykja­lundi en í milli­tíð­inni fékk hún svo veiru­sýk­ingu og loks­ins COVID.

Eins og gefur að skilja er Kolbrún ósátt við þá lækn­is­að­stoð sem hún fékk þau ár sem hún leit­aði sér lækn­is­að­stoðar og var rang­lega greind. „Ég skrif­aði frá­far­andi for­stjóra Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða og lét hann vita af þess­ari óánægju. Ég nefndi að í það minnsta hefði mátt taka af mér mynd. Þá hefði þessi þétt­ing í lung­anu sést. Í öðru lagi finnst mér alveg galið að í öll þessi ár sem ég hef komið til lækn­is­ins með mikla önd­un­ar­erf­ið­leika hafi ég ekki einu sinni verið sett í blást­urs­próf. Það kostar nú ekki mikið og hefði ekki sett stofn­un­ina á hlið­ina,“ en í svar­bréfi til Kol­brúnar var sagt að ekk­ert óeðli­legt hafi verið við afgreiðslu á hennar máli en þó hefði mátt taka lungna­mynd.

Kolbrún kallar eftir því að læknar hlusti betur á fólk þegar það kemur til þeirra. „Ef það kemur til þín mið­aldra kona, skaltu taka mark á því sem hún segir og skoð­aðu hana. Ekki afgreiða hana sem móð­ur­sjúka, með stoð­verki, gróð­urof­næmi, eða kulnun!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina