Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þóttist vera ólétt þegar kærastinn hætti með henni: „Hann neyddi mig í fóstureyðingu“

Þóttist vera ólétt þegar kærastinn hætti með henni: „Hann neyddi mig í fóstureyðingu“

Hin 32 ára gamla Steph­anie Mahoney slapp naum­lega við fang­els­is­vist í gær eftir að hún hafði ofsótt fyrr­ver­andi kærasta sinn og móður hans í marga mán­uði. Steph­anie, sem búsett er í Liverpool, brást illa við þegar kær­asti hennar end­aði sam­band þeirra og laug því að honum að hún væri þunguð. Kærast­inn ákvað þrátt fyrir það að fara frá henni en hóf hún þá her­ferð gegn honum og móður hans á sam­fé­lags­miðlum. Móðirin sagði fyrir dómi að fyrr­ver­andi tengda­dóttirin hefði gert líf fjöl­skyld­unnar að „lif­andi hel­víti“.

Steph­anie birti myndir af fyrr­ver­andi kærast­anum á sam­fé­lags­miðlum og sagði hann hafa neytt sig í fóst­ur­eyð­ingu. Við eina mynd­ina skrif­aði hún: „Þetta er mað­ur­inn sem gerir stúlkur óléttar og neyðir þær síðan í fóst­ur­eyð­ingar.“ Þá deildi hún heim­il­is­fangi manns­ins sem búsettur var hjá aldr­aðri ömmu sinni. Eftir nokkurn tíma ákvað Steph­anie að beina spjótum sínum að móður manns­ins og póstaði myndum af fóst­ur­eyð­ingum á Facebook-reikn­ing hennar. Við mynd­irnar skrif­aði hún: „Svona vill (mamma fyrr­ver­andi maka) að barna­barnið sitt líti út, í molum“. Í annarri færslu bætti hún við: „Af hverju viltu að barna­barnið þitt sé rifið í sundur?

Steph­anie seg­ist sjá eftir öllu

Maðurinn hélt því ávallt fram að ekk­ert barn hafi fæðst og að Steph­anie hafi í raun aldrei verið þunguð. Hegðun Mahoney var í kjöl­farið kærð til lög­reglu og voru ótal fals­aðir sam­fé­lags­miðla­reikn­ingar tengdir við IP tölu hennar. Hún neit­aði að vera ábyrg fyrir reikn­ing­unum og hélt því fram að fyrr­ver­andi kær­asti hennar væri „á bak við alla reikn­ing­ana og þetta væri til­raun hans til að ná í hana“.

Að lokum fengu mað­ur­inn og fjöl­skylda hans nálg­un­ar­bann á Steph­anie. Lögmaður hennar sagði fyrir dómi að sam­bands­slitin hefðu haft gríð­ar­lega slæm áhrif á skjól­stæð­ing sinn. Hún hafi viljað færa sárs­auk­ann yfir á aðra en hún sjái nú hversu röng hegðun hennar var. Hún sé miður sín og biðj­ist afsök­unar. Fjöl­skylda manns­ins er enn að jafna sig eftir áreitið og sagði mað­ur­inn að and­legt ástand hans væri enn slæmt eftir allt sem hann þurfti að þola.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu