Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við náðum í neyðartalstöðvarnar. Við gátum heyrt – við gátum ekki kallað“

„Við náðum í neyðartalstöðvarnar. Við gátum heyrt – við gátum ekki kallað“

“Ég var á Hörpunni, við vorum á rækju. Það er stormur og á mið­unum voru sex til átta bátar. Við erum að bíða eftir því að veðrið detti niður,“ segir Brynjólfur Sig­urðs­son segir frá atviki, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni. Binni eins og hann er jafnan kall­aður var staddur á veiðum á níunda ára­tugnum við Dorn­banka, á milli Íslands og Græn­lands og áhöfnin lendir í aftaka­veðri.

Dorn­banki – Miðlína milli Íslands og Græn­lands (Navionics) Mynd/skjá­skot dive-explorer.com

Úti var mikil þoka, öldu­hæðin um 12 metrar og bát­arnir á mið­unum héldu sam­bandi sín á milli. Brynjólfur var yfir­stýri­maður á tog­ar­anum og sat vakt­ina:

„Hún kemur upp, Halla Jóns­dóttir sem var kokkur og sest stjórn­borðs­megin.“ Sjálfur stóð Binni við stýrið og þau eru að ræða saman. „En svo lít ég upp og sé bara vegg, þegar aldan kemur. Það er ekk­ert við því að gera svo ég henti mér í stól­inn.“ Hann varar Höllu við og hrópar á hana: „Haltu þér!“

„Ha?,“ svarar Halla.

Brynjólfur sér þá að báran er að detta niður eftir að hafa farið yfir bát­inn.

„Hún smassar beint í hornið á brúnni,“ lýsir Binni og segir að það hafi verið eins og slökkvi­liðs­slanga væri að spúa inn.

„Halla flýgur í loft­inu og lendir akkúrat í fang­inu á mér.“

„Ég sleppi hend­inni og reyni að grípa í hana,“ segir Binni sem náði taki í bolnum hennar. „En þá kemur seinni skell­ur­inn og þá flýgur hún áfram og ég held eftir bolnum,“ lýsir Binni.

Halla flýgur út í horn og þegar það fer að róast stendur Binni upp og nær þá vatnið sem komið var inn í brún upp yfir hné hans. Hann tekur í hand­stýrið til að reyna að ná bátnum upp aftur.

„Þetta er það sem menn kalla mon­ster wave,“ útskýrir Reynir. Á íslensku kall­ast afbrigðið risa­alda.

„Það eru margir bátar sem hafa hrein­lega horfið, og ekki heyrst neitt frá,“ segir Brynjólfur. Risa­öldur byggj­ast upp á löngum tíma og eru gríð­ar­lega vara­samar. Kort­lagn­ing á hvarfi báta er meðal ann­ars á því svæði sem Harpa GK var þennan afdrifa­ríka dag.

„Hefðum við legið aðeins meira á bak­borða þá hefðum við sokkið í þessu til­felli – ekki spurn­ing um það.“

Báturinn varð sam­bands­laus, fullur af sjó og vélin dauð. Vél­stjór­inn kom vél­inni í gang en ein­ungis hand­stýrið virk­aði:

„Við náðum í neyð­ar­tal­stöðv­arnar. Við gátum heyrt – við gátum ekki kallað.“

Viðtalið má hlusta á í heild á efn­isveitu Mannlífs.

Tryggðu þér áskrift!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina