Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sveinn Andri hjólar í Brynjar: „Sterk vísbending um biturð á lokastigi“

Sveinn Andri hjólar í Brynjar: „Sterk vísbending um biturð á lokastigi“
Sveinn Andri og Brynjar bit­ust á á Facebook. Myndin er svo klár­lega sam­sett

„Þessi texti ber nú ekki merki um mikla stór­mennsku þess sem ritar; eig­in­lega frekar sterk vís­bend­ing um bit­urð á loka­stigi,“ ritar Sveinn Andri Sveins­son við nýja færslu Brynjars  Níels­sonar. Í færslu Brynjars talar hann venju sam­kvæmt undir rós en um hvern ræðir virð­ist ekki vefj­ast fyrir Sveini Andra.

Brynjar svarar athuga­semd Sveins Andra: „Nú, tókstu þetta til þín?“

„Nei, af hverju ætti ég að vera að því? Farðu nú að leggja þessar rit­smíðar þínar á hill­una; þær eru vand­ræða­lega ófyndnar. Sér­stak­lega þessi þreytti brand­ari um Soffíu frænku,“ svarar Sveinn Andri sem virð­ist ekki skemmt.

„Þetta er ekki brand­ari um Soffíu, Sveinn minn. Hún er bara fabríkeruð og notuð til að gera grín að ykkur góða og rétt­sýna fólk­inu. En ég veit að ég næ aldrei að verða jafn­fynd­inn og þú. Held að ekki nokkur maður nái því,“ útskýrir Brynjar fyrir Sveini.

Því næst skrifar Sveinn Andri: „Ég er að reyna að gefa þér gott ráð. Þessir pistlar þínir eru kjána­lega ófyndnir og þessi ólund og öfund í garð ónefnds manns sem birt­ist í þessum pistli þínum er þér til minnk­unar. Það skín í gegn að þú ert gríð­ar­lega bitur út af 17-0. Get over it.“

Sveinn Andri tekur upp hansk­ann fyrir starfs­bróður sinn Vilhjálm Vil­hjálms­son og gerir því skóna að Brynjar sé enn bitur út í Vilhjálm eftir að hafa kært skipan Arn­fríðar Ein­ars­dóttur, eig­in­konu Brynjars, í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara. Vil­hjálmur vann málið og var nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Evrópu sú skipan dóm­ar­anna hafi brotið gegn ákvæðum mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Dómurinn var afger­andi en allir 17 dóm­arar máls­ins voru honum sam­mála.

Brynjar virð­ist ekki átta sig á hvað Sveinn Andri er að meina í athuga­semd sinni: „Ég er nú örugg­lega ekki eini ófyndni mað­ur­inn á fés­bók­inni og það á eng­inn kröfu á að ég sé fynd­inn. En ég er alveg laus við öfund og bit­urð, en við­ur­kenni ólund á köflum. Ég veit ekk­ert hvað þetta 17-0 er en ég er enn svekktur yfir 14-2.“

Sveinn Andri útskýrir nánar til hvers hann vísar sem Brynjar svarar: „Já, þú meinar. Ólundin yfir þeirri vit­leysu er ekki meiri og svo að ég vissi ekki hvað þetta var. Margir vit­lausir dómar komið þaðan og þessi truflar mig ekki mikið. En ég er far­inn að halda að þú skiljir illa hug­tökin ólund og bit­urð ef þú hefur meiri áhyggjur af mér en þér.“

„Þú veizt og vissir alveg til hvers var verið að skír­skota. Það sézt á þínum skrifum að þú ert ekki búinn að jafna þig á hár­réttum dómi MDE í því máli; bit­urð þín og óvild í garð lög­manns­ins sem lagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn þar fruss­ast hér út úr þér,“ svarar Sveinn Andri.

Brynjar virð­ist vilja ná nán­ara tali af Sveini Andra og færa kít­ing­inn annað: „Þetta hefur ekk­ert með dóm MDE að gera. Annað hvort ertu flón eða þú þekkir ekki mála­vexti. Skal útskýra það fyrir þér í skila­boðum.“

Sveinn Andri svarar áfram á opin­berum vett­vangi og svarar Brynjari: „Þetta hefur allt með það að gera. Þó að upp úr hafi soðið á þorra­blóti vita allir um óvild þína í garð við­kom­andi. Eins og ég segi, reyndu að kom­ast yfir þetta einu sinni. Erfitt að lifa með svona þrá­hyggju.“

Ekki liggur fyrir hvort þeir félagar hafi fært sam­talið yfir í einka­skila­boð en Brynjar skrifar síðar undir færsl­una:

„… en ég skil ekki hvernig MDE eða mann­rétt­indi koma þess­ari færslu við. Færslan er mann­lýs­ing á þekktum týpum, eig­in­lega Freka karl­inum sem verður sér til skammar á mann­fögn­uðum.“

Líf og fjör var á þorra­bóti Garð­bæ­inga sem haldin var um síð­ustu helgi, ef  marka  má frá­sagnir gesta og fjöl­miðla. Umrædda færslu birti Brynjar á Fés­bók­ar­síðu sinni í gærkveldi sem náð hefur tölu­verðum lestri. Færsluna má sjá hér í heild:

Sjá nánar:

Vil­hjálmur æpti á son­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina