Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir Sigmund Davíð og aðra þingmenn vera vanþakkláta: „Hagar sér eins og frekir krakkar“

Segir Sigmund Davíð og aðra þingmenn vera vanþakkláta: „Hagar sér eins og frekir krakkar“
Teitur Atlason. Mynd úr einka­safni.

Teitur Atlason, fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, segir þing­menn vera fulla af hroka.

Í pistli sem Teitur Atlason skrifar um nýja skrif­stofu­bygg­ingu Alþingis segir hann þá þing­menn sem hafa kvartað undan nýja hús­inu vera van­þakk­láta en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fer fremstur í flokki þeirra sem finnst húsið ekki gott.

„Á dög­unum var tekin í gagnið skrif­stofu­bygg­ing Alþingis. Þetta er hús á besta stað og byggt af kost­gæfni eftir ígrund­aðar pæl­ingar,“ skrif­aði Teitur um málið sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Þessi bygg­ing var ekki ódýr (og á ekki að vera ódýr) en verð­mið­inn mun vera um 6.000 milj­ónir.  Þetta hús markar ákveðin vatna­skil í starf­semi Alþingis en núna allt starf þings­ins undir sama þaki og ekki í leigu­hús­næði í kringum Aust­ur­völl.  Þetta hús er því eins­konar enda­punktur á hús­næð­is­vanda Alþingis. 

Fréttir af þessum tíma­mótum voru mjög skrýtnar og eru ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þessa hug­leið­ingu.  Fyrsta féttin sem ég sá af þessu máli var við­tal við 2 þing­menn sem fannst þetta hús ömur­legt. Þeir kvörtuð yfir óþægi­legum sófa og því að það sé bannað að hafa gamla góða hæg­inda­stól­inn inn á skrif­stof­unni. Einn kvart­aði sáran yfir útsýn­inu og sagði það minna á útsýnið frá Litla-Hrauni. 

Sem sagt. Þetta tíma­móta­hús er í hugum þess­ara þing­manna ömur­legt og aðstaðan þeim ekki sam­boðin.“

Teitur heldur áfram og segir þetta vera klikkað van­þakk­læti og hroki. Hann segir líka skrýtið að frétta­menn stoppi ekki þing­menn af.

„Setjum þetta nú í sam­hengi við hverjir borga þetta hús og hvers­vegna þetta hús var byggt og fyrir hverja þetta hús var byggt. Skatt­greið­endur borga þetta hús. Það er byggt fyrir þing­menn sem starfa i þágu þjóð­ar­innar. Það er alveg ótrú­lega skrýtið að það fyrsta sem sumir þing­menn segja af þessu til­efni er að húsið sé ekki þeim sam­boðið.

Þetta er í mínum huga klikkað van­þakk­læti. Í þessu sam­hengi er líka gott að velta fyrir sér hvað felst í orð­inu van­þakk­læti. Það er þegar öllu er á botnin hvolft skökk sjálfs­mynd og upp­hafn­ing á eigin kostum og getu. Van­þakk­læti er í grunn­inn hroki.  And­staðan við auð­mýkt.

Mér finnst líka skrýtið að frétta­menn fatti þetta ekki og stoppi ekki þessa van­þakk­látu þing­menn af og spyrji spurn­ing­ar­innar sem blasir við. “Er ekki allt í lagi með ykkur- Ertu að kvarta yfir þess­ari aðstöðu sem skatt­borg­ar­arnir eru skaffa ykkur”?“

Þá telur telur Teitur að þurfa að þing­menn læra fara eftir reglum sem settar eru á skrif­stof­unni enda sé þetta ekki heim­ili þeirra. Ekki sé í boði að hengja upp myndir af knatt­spyrnu­mönnum eða draga hæg­inda­stóla um öll gólf.

„Varðandi hæg­inda­stól­inn sem einn þin­maður vildi endi­lega draga inn á skrif­stof­una hjá sér má alveg taka fram að það er ekk­ert skrýtið að það sé bannað. Prí­vat­mu­blur eiga ekk­ert heima á vinnu­stöðum. Það er heldur ekk­ert ílagi að negla mynd af Jurgen Klopp eða David Beckham  upp á vegg í splunku­nýrri skrif­stofu­bygg­ingu. Það er ekk­ert “óper­sónu­legt” og það er ekk­ert “reglu­gerða­fargan”. Það er bara almenni­legt og eðli­legt. Margir þing­menn eru alltaf að reyna að troða því að okkur að reglur séu svo slæmar en vinna svo við það að setja reglur. Nokkuð spes ef út í það er farið.

Steininn tók þó úr í fram­halds­frétt á stöð2 um málið en þá fékk Sig­mundur Davíð heilt innslag til að fara klíník­skt í gegnum hvers­vegna þetta hús er ömur­legt og ekki honum sam­boðið. Fáránleg frétt. Fáránleg frétt. Sig­mundur fattar ekki að hann er að ráð­ast að starfs­heiðri alls þess fólks sem lagði sitt fram við að þetta hús varð að veru­leika. Hönnuði, smiði, arkítekta og ekki síst þjóð­ina sem pant­aði húsið fyrir Sigmund Davíð og alla aðra alþing­is­menn.  Sig­mundur lét meir að segja hafa sig út í að – til að sýna hversu húsið væri mis­heppnað – að æpa eins og brjál­æð­ingur –  inn í skrif­stof­unni sinni þannig að sjón­vars­konan heyrði í honum. Þetta var gert til að sýna fram á að veggirnir milli skrif­stof­anna væru ekki nógu vel hljóð­ein­angr­aðir.

Ég skil alveg að þetta hús á ekk­ert að vera “hlý­legt” eða “not­ar­legt” eða “per­sónu­legt”. Þetta er vinnu­staður þing­manna. Ekki afslöpp­un­ar­her­bergi þótt ýmist líti á það þannig.  Það á ekk­ert að vera fullt af gömlum Lay-Z-Boy stólum. Veggirnir eiga ekk­ert að vera úta­taðir í ein­hverri rusl-list eða myndum af stóra lax­inum sem afi ein­hvers veiddi í Borg­arfiðr­inum.

Ég skil ekki þá van­þakk­læti­menn­ingu sem núna virð­ist ríkja. Ég skil ekki blaða­menn sem sjá ekki í gegnum, þegar full­orðið fólk í virð­ing­ar­stöðu hagar sér eins og frekir krakkar og gerir sjálft sig að fíflum í beinni útsend­ingu. 

Van­þakk­látir þing­menn eru slappir þing­menn. Þeir eru hroka­fullir og þeir hafa skakka sýn á sjálfa sig. Hvenrig getur blaða­maður ekki séð í gegnum þannig fólk?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina