Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lindsey Buckingham vill koma aftur í Fleetwood Mac: „Höfum gengið í gegnum mikla erfiðleika“

Lindsey Buckingham vill koma aftur í Fleetwood Mac: „Höfum gengið í gegnum mikla erfiðleika“
Lindsey Buckingham á tón­leikum Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lindsey Buckingham myndi ganga aftur í Fleetwood Mac á stund­inni ef það væri í boði.

Lindsey Buckingham var rek­inn úr hinni goð­sagna­kenndu hljóm­sveit Fleetwood Mac árið 2018 og von­brigði leyna sér ekki er hann hugsar til baka. Í stað Lindsey fékk hljóm­sveitin 2 gít­ar­leik­ara, þá Neil Finn úr Crowded House og Mike Campbell úr hljóm­sveit Tom Petty The Heart­br­ea­kers. Eftir rifr­ildi Stevie Nicks og Lindsey Buckingham gaf Nicks hljóm­sveit­inni val; ann­að­hvort yrði Lindsey Buckingham rek­inn eða hún myndi hætta, þar sem hún myndi aldrei framar standa á sviði með honum. Þess má geta að Lindsey og Stevie voru par í 11 ár en hættu saman við upp­tök­urnar á plöt­unni Rumours 1977.

Fleedwood Mac á Gram­my­verð­laun­unum

Lindsey stefndi hljóm­sveit­inni og fór fram á 12 til 14 millj­ónir doll­ara en lokum var kom­ist á sam­komu­lag þannig að ekki þurfti hljóm­sveitin að mæta í rétt­ar­sal, þó svo Mick Fleetwood hafi sagt í við­tali að hann hlakk­aði til að hitta Lindsey í dóm­salnum. Stuttu síðar fékk Lindsey Buckingham hjarta­á­fall og var skor­inn upp.

Í nýlegu við­tali við Conan O’Brien á útvarps­veit­unni Sirusxm tal­aði Buckingham um brott­rekst­ur­inn úr Fleetwood Mac af ein­lægni án þess að kenna Stevie eða öðrum með­limum sveit­ar­innar um. Hann sagði að hann myndi ganga aftur í hljóm­sveit­ina á stund­inni ef það væri í boði ef það kemur eitt­hvað meira frá Fleetwood Mac, og ef hægt væri að laga ósættið milli vissra með­lima, þá væri vel við hæfi að enda þetta á réttum nótum. Það sem gerð­ist var ekk­ert annað en veik­leiki innan hljóm­sveit­ar­innar, sagði Buckingham við O’Brien en nokkrir með­limir innan sveit­ar­innar hafi ekki verið sáttir við þetta en gátu ekki gert annað.

Christine Mcvie sagði í við­tali eftir brott­rekst­ur­inn að hún sakn­aði Lindsey og von­að­ist til þess að hann ætti eftir að koma aftur, en ári áður sendu þau tvö frá sér plöt­una Lindsey Buckingham og Christine Mcvie. „Í 45 ár höfum við gengið í gegnum mikla erf­ið­leika en alltaf kom­ist í gegnum þá og notað þá í sköpun sem að hefur alltaf leitt eitt­hvað gott af sér að lokum,“ sagði Lindsey Buckingham í við­tal­inu.

Buckingham og McVie

Framtíð Fleetwood Mac er óskýr sökum frá­falls Christine Mcvie, söng­konu, hljóm­borðs­leik­ara og laga­höf­unds hljóm­sveit­ar­innar, sem lést snögg­lega fyrir ári síðan en hún hafði verið með­limur síðan 1971.

Það er við hæfi að enda þetta á Lindsey Buckingham einum með gít­ar­inn að taka smell­inn Big Love af end­ur­komu tón­leik­unum 1997 sem sem gefnir voru út sem The Dance skömmu
síðar.

https://youtu.be/mZZp76M4NGc?feature=shared

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu