Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kjerúlf gefur út lagið Alice: „Ég lúri á alveg dálítilli hrúgu af lögum“

Kjerúlf gefur út lagið Alice: „Ég lúri á alveg dálítilli hrúgu af lögum“
Kjerúlf. Mynd: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Gunn­hildur Kjerúlf Birg­is­dóttir, frétta­kona á Rík­is­út­varp­inu hefur nú gefið út glæ­nýtt lag, sem ber heitið Alice.

Frétta­kon­unni Gunn­hildi Kjerúlf Birg­is­dóttur er æði margt til lista lagt en lands­menn hafa fengið að njóta frétta­flutn­ings hennar bæði í útvarp­inu og í sjón­varp­inu um dágott skeið en hennar ómþýða rödd og þægi­lega nær­vera á skjánum, hentar starfi hennar afar vel. Ekki vita þó allir að hún er einnig þrusu söng­kona og laga­höf­undur.

Mannlíf ræddi við Gunn­hildi Kjerúlf sem var að gefa út lagið Alice undir lista­manna­nafni sínu Kjerúlf. Samkvæmt henni hefur hún verið að syngja frá því hún man eftir sér en hafi sett tón­list­ina í salt á meðan hún reyndi fyrir sér í blaða­mennsk­unni. „Ég hef verið að syngja svo til frá því ég man eftir mér, sem er auð­vitað mjög týbískt svar, en það hefur alltaf verið hluti af mér að vera síraulandi – hvort sem er á sviði eða utan þess. Ég útskrif­að­ist úr jazz-söng í FÍH og hef sungið í alls konar verk­efnum og hljóm­sveitum í gegnum tíð­ina. Ég fór aðeins að semja mína eigin tón­list á meðan ég var í FÍH, fyrir utan eitt­hvað sem ég bras­aði bara sem ung­lingur. Svo ákvað ég að skella mér í tón­smíðar í Lista­há­skóla Íslands, og útskrif­að­ist með BA-próf þaðan 2020. Þar samdi ég bæði tón­list fyrir sjálfa mig til að syngja, en líka ýmis tón­verk og gerði alls kyns til­raunir, eins og maður reynir að gera í svona námi. Ég setti tón­list­ina samt aðeins í aft­ur­sætið þegar ég fór að reyna fyrir mér í blaða­mennsku.“

Gunn­hildur Kjerúlf.

Gunn­hildur segir að hún hafi áður gefið út tón­list með öðrum en að Alice sé fyrsta lagið sem hún gefur undir eigin nafni.

„Þetta er fyrsta sóló-útgáfan mín. Fyrsta skipti sem ég gef út lag bara ein og sjálf, undir eigin nafni. Eða eigin lista­manns­nafni alla­vega. Ég hef áður gefið út tón­list með öðrum og unnið tón­list og hljóð­myndir fyrir leik­verk og slíkt. Eitt verk sem ég gerði rataði í leik­sýn­ingu leik­hóps sem starfar í Banda­ríkj­unum og Noregi. Það verk hefur núna fengið að hljóma í þeirri sýn­ingu í New York og fleiri stöðum í Banda­ríkj­unum, og Noregi. Það er auð­vitað mjög skemmti­legt. “

En um hvað er Alice?

„Ég vil helst leyfa hverjum og einum að túlka tón­list­ina mína eftir eigin höfði. En ég get sagt að það er mik­ill sökn­uður í því. Það fjallar um það sem þú saknar mest, allt sem þú hefðir átt að segja en sagðir ekki. Einhvern horf­inn tíma og hjarta­sár. En hver er Alice? Ég læt það bara liggja á milli hluta. Kveikjan að text­anum var samt gamla og góða Living Next Door to Alice með Smokie. Ég var í ein­hverri stíflu á þessum tíma og heyrði laga­höf­und segja að það virk­aði oft vel til að koma sér af stað að semja texta út frá texta ann­ars lags. Af ein­hverjum ástæðum kom þetta lag strax upp í hug­ann og allt fór að flæða. Mitt lag er auð­vitað gjör­ó­líkt hinu, en þarna kom samt ein­hver hug­mynd. Hvað ger­ist þegar Alice er horfin á braut?“

Gunn­hildur Kjerúlf.

Aðspurð hvort stefnan sé tekin á plötu­út­gáfu, svarar Gunn­hildur því ját­andi.

„Já, það er stefnan. Ég lúri á alveg dálít­illi hrúgu af lögum sem ég er að vinna að því að klára og koma saman í plötu.“

Gunn­hildur segir erfitt að svara spurn­ingu Mannlífs um það hverjir hennar áhrifa­valdar eru, enda séu þeir margir.

„Þetta er alltaf svo­lítið erfið spurn­ing. Þeir eru margir og ég hef fengið inn­blástur úr svo mörgum áttum í gegnum tíð­ina. En ég verð að nefna Kate Bush, hún er ein­hvern veg­inn alltaf þarna yfir og allt um kring. Mér líður næstum því eins og ég þekki hana, við höfum verið sam­ferða svo lengi og tón­listin hennar hefur alltaf haft djúp­stæð áhrif á mig. Svo hlusta ég mikið á David Bowie, finnst ég alltaf geta upp­götvað eitt­hvað nýtt í tón­list­inni hans og elska ólíku tíma­bilin. Finnst text­arnir líka ofboðs­lega skemmti­legir. Svo get ég alltaf nefnt Nick Cave. Ekki lítið sem ég hef hlustað á hann í gegnum tíð­ina og bæði lög og textar hreyfa alltaf við mér. Hvílíkur sögu­maður. Það eru auð­vitað margir hér heima líka, en ég verð að nefna Emilíönu Torrini. Tón­listin hennar á sér­stakan stað í hjarta mínu.“

Hér má hlusta á Alice:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu