Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Túlkur Navalny býr á Íslandi: „Hann var fullur af lífi og orku“

Túlkur Navalny býr á Íslandi: „Hann var fullur af lífi og orku“
Alexei Navalny

Úkraínsk kona sem býr á Íslandi, túlk­aði fyrir Alexei Navalny í Póllandi. Hún seg­ist sjokkeruð yfir dauða hans.

Mannlíf ræddi við þau Andrei Mens­henin, Rússa sem flutt til Íslands fyrir nokkru, og Anastasiiu Bortuali, frá Úkraínu, sem flutti hingað til lands þegar Rússland hóf inn­rás sína í land hennar. Umræðu­efnið var Alexei Navalny og hvað dauði hans þýddi fyrir þeim.

Von um betra Rússland

Byrjum á Andrei Mens­henin. Hann seg­ist ekki hafa verið aðdá­andi Navalny en að hann hafi verið hug­rakkur og fyr­ir­mynd yngra fólks í Rúss­landi „Ég var ekki mik­ill aðdá­andi Navalny. Undir venju­legum kring­um­stæðum væri hann lík­lega ekki fram­bjóð­andi minn sem for­seti Rúss­lands, til dæmis. Hins vegar hefur póli­tískt ástand í Rúss­landi ekki verið eðli­legt síð­ustu 25 árin. Það eru engar frjálsar kosn­ingar, allir fram­bjóð­endur þurfa að vera sam­þykktir af Putin til að taka þátt í kosn­ing­unum, aðrir eru teknir niður. Í slíku umhverfi var Navalny eins og jarð­ýta, sem gekk á móti allri kúg­andi rík­is­vél­inni, alltaf með sitt aula­bros og sína gíf­ur­legu kald­hæðni. Hann var 47 ára gam­all. Í augum nokk­urra kyn­slóða Rússa, aðal­lega þá sem eru á sama aldri og hann og yngri, var Navalny skylm­inga­kappi sem barð­ist við Golíat. Og Golíat hér er ekki Putin, sem er í raun frekar veik­burða án allrar örygg­is­þjón­ustu sinnar, og ein­hver sem aldrei tekur þátt í neinum rök­ræðum. Golíat hér er allt rík­is­kerfið með hund­ruðum þús­undum starfs­manna kúg­un­ar­vél­ar­innar: allt frá lög­reglu­mönnum, sem geta hand­tekið fólk á götum úti fyrir ekk­ert til að pynta og nauðga því síðar á lög­reglu­stöðvum, til dóm­ara, sem eru svo fáfróðir um mál sem koma á þeirra borð að stundum gera þeir jafn­vel mis­tök í skrán­ingu á nöfnum hand­tek­inna manna.“

Andrei Mens­henin

Andrei segir að lokum í sam­tali við Mannlíf að Navalny hafi verið von fyrir breyttu Rúss­landi.

„Navalny var von um að Rússland gæti verið öðru­vísi. Hann kall­aði stöðugt fram bestu hliðar Rússa, skyn­semi þeirra, sem er and­stætt því sem rúss­nesk stjórn­völd og Putin gera. Vegna þessa var Navalny svo mikið studdur af millj­ónum í Rúss­landi og var svo hat­aður af Putin.“

Túlkaði fyrir Navalny

Anastasiia Bortuali er úkra­ínsk kona sem hingað kom sem flótta­maður undan inn­rás Putins í Úkraínu. Árið 2019 varð hún þess heið­urs aðnjót­andi að túlka ræðu Alexei Navalny er hann var gesta­fyr­ir­les­ari á spjall­borði Borisar Nemtsov í Póllandi. Hún ber hann vel sög­una.

„Ég hitti Alexei Navalny árið 2019. Hann var gesta­fyr­ir­les­ari á Boris Nemtsov spjall­borð­inu. Boris Nemtsov, var ann­ars einnig myrtur af Pútín nálægt Kreml og ger­end­unum er enn ekki verið refsað. Og margir af með­limum þessa vett­vangs [Boris Nemtsov spjall­borðið] eru líka annað hvort í fang­elsi eða hafa verið myrtir. Nafn og mynd Alexei Navalny var þegar goð­sagna­kennd fyrir mér árið 2019, þegar Putin var bara að hita upp fyrir kúgun sína. Það var algjört gæfu­spor að þýða texta hans. Til að hlusta á ræður hans. Hann var ynd­is­legur ræðu­maður, hann var fullur af lífi og orku.“

Navalny og Anastasiia

Anastasiia segir að þó að hægt sé að vera ósam­mála Navalny í sumu, hafi hann fyrst og fremst verið mann­eskja af holdi og blóði.

„Það var hægt að vera sam­mála honum eða ekki, en aðal­at­riðið er að ég hafði tíma til að skilja – hann var maður, bara alvöru maður, mann­eskja, hann átti konu, börn, hann hafði veik­leika og styrk­leika. Hann gat hlegið, grín­ast, hann gat verið sár. Hann faldi sig ekki í neð­ar­jarð­ar­byrgi (sög­ur­sagnir ganga í Úkraínu um að Putin feli sig í neð­an­jarð­ar­byrgi). Þessi mannúð og ein­fald­leiki og ljóm­andi greind snerti mig alltaf, ég vildi horfa á Alexey, ég vildi fylgja honum og við­halda honum.“

Þá segir Anastasiia að Navalny hafi verið sannur Rússi sem elskaði landið sitt.

„Eftir að eitrað var fyrir honum, sneri hann aftur til Rúss­lands vegna þess að hann gat ekki leyft fólki að safn­ast saman til að berj­ast gegn stjórn­inni og hætta lífi og frelsi þegar hann væri sjálfur ekki í Rúss­landi. Ég held að það hafi verið mik­il­vægt skil­yrði fyrir hann að taka þátt í þess­ari bar­áttu og þeim örlögum sem kynnu að falla á and­ófs­menn. Ég veit það fyrir víst – Hann elskaði Rússland mjög mikið og var sannur borg­ari fyrir land sitt.“

Anastasiia, sem sjálf er að gera heim­ild­ar­mynd um flótta­fólk á Íslandi, þá sér­sta­kelga þá sem búa á Ásbrú, vill mæla með heim­ild­ar­mynd um Navalny. „Mig langar til að mæla með mynd eftir upp­á­halds leik­stjór­ann minn Alex­ander Ras­torg­uev fyrir les­endur þína, The Term. Þessi mynd mun gefa betri skiln­ing á því hver Alexei Navalny var.“

Að lokum segir Anastasiia að dauði Navalny hafi verið henni mikið áfall.

„Dauði Alexei er áfall fyrir mig. Og það er áminn­ing fyrir allan heim­inn hvaða blóð­þyrsta prinsipp­lausa óvin land mitt Úkraína berst við núna. Ég vona að allur heim­ur­inn geti sam­ein­ast í þess­ari bar­áttu gegn hinu illa.“

Hér fyrir neðan má sjá stiklu fyrir mynd­ina The Term:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina