Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þráinn hefur látið loga í 20 ár: „Hugsa um félagslegu hliðina á þessu“

Þráinn hefur látið loga í 20 ár: „Hugsa um félagslegu hliðina á þessu“
Eldmóðir voru að gefa plötu – Mynd: Aðsend

Rapp­hljóm­sveitin Eldmóðir gaf í gær út sína aðra plötu og ber hún nafnið Láttu loga en í hljóm­sveit­inni eru þeir Þráinn Gunn­laugur Þor­steins­son og Óli Hrafn Jónasson.

Þráinn ætti að vera flestum kunnur sem hafa fylgst með íslenskri rapptón­list und­an­farin 20 ár en hann gekk lengi undir nafn­inu Brisk og var meðal ann­ars í hljóm­sveit­inni Hinir Dæma­lausu. Í til­efni nýju plöt­unnar ræddi Mannlíf við Þráinn um fer­il­inn, íslenska tón­list og hljóm­sveit­ina.

„Auðvitað er ótrú­lega gaman að líta til baka og hugsa um félags­legu hlið­ina á þessu,“ sagði Þráinn þegar hann var spurður um hvað stendur upp úr á löngum ferli. „Það er að segja hvað þetta gaf manni færi á að mynda snertifleti við fólk sem maður hefði ann­ars ekki kynnst. Sömu­leiðis þegar maður hitti á rétta teng­ingu við ein­hvern og sköp­un­ar­kraft­ur­inn sem mynd­að­ist var svo magn­aður. Þá er mér kannski efst í huga „Svona rúllum við“ platan sem ég og Benni Valdez, eins og hann kall­aði sig þá, gáfum út árið 2010. Þar vorum við að vinna út frá banda­ríska mixteip-form­inu og því ríkj­andi sándi sem var í gangi þar, og sömdum yfir 30 lög á nokkrum mán­uðum. Mér finnst ég upp­lifa það sama í sam­spili okkar Holy Hrafns í okkar vinnu sem Eldmóðir, við vinnum gríð­ar­lega vel saman og bætum hug­myndir hvors ann­ars.“

En hver er mun­ur­inn á rapp­menn­ing­unni í dag og þegar hann var að byrja fyrir 20 árum?

„Að mínu mati er það svo­lítið tví­þætt,“ sagði Þráinn. „Annars vegar er aðgengi að tækni þegar kemur að upp­tökum, eft­ir­vinnslu, útgáfu og mynd­rænni umgjörð á allt öðrum stað. Tækni­lega hliðin á tón­list­ar­sen­unni í dag gefur svo rík tæki­færi fyrir tón­list­ar­fólk að vinna sjálf­stætt frá A til Ö og þar af leið­andi skila frá sér tón­list út frá eigin hug­sjón og per­sónu­leika ómeng­aðri af mála­miðlun og utan­að­kom­andi áhrifum.

Þar kemur inn seinni punkt­ur­inn, þó það sé auð­vitað alltaf eitt­hvað ríkj­andi sánd hverju sinni í rapptón­list eins og í annarri tón­list þá finnst mér aðgengi sjálf­stæðra tón­list­ar­manna til eigin útgáfu hafa skapað gríð­ar­legan fjöl­breyti­leika innan sen­unnar og mikið af röpp­urum í dag eru með sterkan sér­stæðan stíl.“

Óhætt er að segja að rapptón­list sé sú vin­sælasta á land­inu í dag og hefur verið und­an­farin ára­tug. Hvað stendur upp úr í dag að mati Þráins?

„Ég held mjög mikið upp á rapp­dúóið CYBER, en mér finnst þær ná þessu full­komna jafn­vægi á að vera með sterk sér­ein­kenni hvor fyrir sig en hljóma síðan svo ótrú­lega vel saman á lagi. 2020 platan þeirra Vacation er mín upp­á­halds plata síð­ustu ára og ég bíð spenntur eftir næstu frá þeim. Önnur þeirra gaf nýverið út plötu undir nafn­inu Neonme sem er líka algjör veisla fyrir eyrun. Aðrir sem ég held sér­stak­lega upp á þessa dag­ana eru Daniil, Jóhann Krist­ó­fer, Birnir og Alex­ander Jarl en mér finnst þeir vera gott dæmi um rapp­ara með mjög sterkan stíl. Verð líka að nefna Ella Grill sem einn af mínum allra upp­á­halds á Íslandi, algjör­lega ein­stakur.“

„Við Óli höfum verið vinir síðan í fram­halds­skóla og höfum verið dyggur stuðn­ingur fyrir hvorn annan yfir þann tíma,“ sagði rapp­kapp­inn þegar hann var spurður út í hvernig Eldmóðir urðu til. „Hann hefur alltaf verið svaka­lega virkur í tón­list­inni á meðan ég stökk til öðru hverju yfir árin með stakar inn­komur í lögum hjá honum. Á ein­hverjum tíma­punkti 2022 ákváðum við að taka höndum saman og vinna skipu­lega sem ein ein­ing. Hann sér um und­ir­spil og upp­tökur, saman sjáum við um texta og flutn­ing svo svo sé ég að end­ingu um útgáfu­at­riði eins og plötu­umslag, mynd­vinnslu og mynd­banda­gerð. Það sam­starf hefur verið mjög frjótt og hófst opin­ber­lega með plöt­unni Bálsýnir í maí 2023 og síðar klúbba lag­inu Stefán Braga um haustið, á bak við tjöldin er svo ýmis­legt í bígerð.“

Eldmóðir eru hvergi nærri hættir

En hvað tekur við nú þegar platan er komin út?

„Við erum að halda nokkrum boltum á lofti á sama tíma. Við fylgjum eftir útgáfu á þess­ari plötu með sér „single“ þegar nær dregur sumri. Svo í haust gefum við út aðra plötu þar sem við leikum okkur með aðeins dansvænni hljóm og stefnan fyrir 2025 er plata sem lokar ákveðnum hljóð­heima þrí­leik sem við erum að vinna að með Bálsýnir árið 2023 og Láttu loga núna í mars.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu