Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Brynjar í hópferð miðaldra karla í Portúgal: „Merkilegast er að allir þessir menn eru kvæntir“

Brynjar í hópferð miðaldra karla í Portúgal: „Merkilegast er að allir þessir menn eru kvæntir“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson er staddur í Portúgal í hópi mið­aldra karl­manna.

Vara­þing­mað­ur­inn Brynjar Níelsson segir frá ferð sinni og nokk­urra „mið­aldra karla“ til Lissabon í Portúgal, á sinn ein­staka hátt á Facebook. Ferðin hefur ekki gengið neitt allt of vel ef marka má orð Brynjars. „Þegar ferð­ast er með nokkrum mið­aldra körlum veltir maður fyrir sér hversu ósjálf­bjarga er hægt að vera og mik­ill aum­ingi. Enginn kann neitt né veit neitt.“ Þannig hefst færsla Brynjars en svo útskýrir hann orð sín:

„Tveir í hópnum sátu að horfa á sjón­varpið þegar þeir komust að því að það væri raf­magns­laust á hót­el­inu af því að þeir gátu ekki kveikt loft­ljósið. Fátið var svo mikið að það var hringt umsvifa­laust í hót­el­stjór­ann og raf­magns­veitur Lissabon til að laga ástandið og komu menn þaðan með ærnum til­kostn­aði til þess eins að setja her­berg­is­lyk­il­inn í höf­uð­rof­ann. Svo var þeim bent á að sjón­varp væri raf­magns­tæki og því ekki hægt að horfa á það í raf­magns­leysi.“

En þetta var ekki það eina sem hefur klikkað í ferð­inni:

„Úr einu her­berg­inu á hót­el­inu heyrð­ust skað­ræðisóp frá einum félag­anum sem taldi sig læstan inni sturtu­klef­anum. Var hann orð­inn vit­stola af hræðslu. Kom fjöldi manna að til þess eins að benda honum á að dyrnar á sturtu­klef­anum opn­uð­ust út.Allt er þetta nú smá­mál miðað við þegar hluti af hópnum fór að breskan bar til að horfa á fót­bolta. Gerðust þá þau undur og stór­merki að einn pant­aði sér rósa­vín. Þjónninn hafði aldrei fengið svona pöntun frá mið­aldra karl­manni og fékk hlát­ur­skast.

Merki­leg­ast er að allir þessir menn eru kvæntir.“

Í enn nýrri færslu segir Brynjar að ferð þeirra félaga hefði verið hugsuð sem „lík­am­leg og and­leg með­ferð og end­ur­hæf­ing“ sem hafi mis­tek­ist full­kom­lega.

„Utanferð okkar mið­aldra karl­anna var hugsuð sem lík­am­leg og and­leg með­ferð og end­ur­hæf­ing. Það mark­mið hefur alveg mis­tek­ist og með­ferð­ar­full­trú­inn hætti störfum þar sem honum fannst alvar­legur skortur á vilja til að gera eitt­hvað í okkar málu­mEn það er eng­inn skortur á umhyggju í hópnum fyrir hverjum öðrum. Einn vakti her­berg­is­fé­lag­ann um miðja nótt til að segja honum hvað góður svefn væri nauð­syn­legur fyrir menn á okkar aldri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu