Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Seinheppnir ræningjar húkkuðu far á Selfoss – Eigandi verslunarinnar tók þá upp í

Seinheppnir ræningjar húkkuðu far á Selfoss – Eigandi verslunarinnar tók þá upp í
Hin goð­sagna­kennda Eden Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ansi sein­heppnir ung­lings­piltar rændu spila­kassa í Eden í Hvera­gerði í lok ágúst árið 1995.

Tveir ung­lings­piltar, 14 og 15 ára gerðu (ó)heið­ar­lega til­raun til að ræna spila­kassa í Eden í Hvera­gerði haustið 1995. Ekki gekk betur en svo en að lítið sem ekk­ert fékkst út úr kass­anum þar sem hann hafði verið tæmdur dag­inn áður. Og ekki nóg með það heldur húkk­uðu strák­arnir sér far á Selfoss en eng­inn annar en eig­andi Eden, Bragi Ein­ars­son, var sá sem tók þá upp í. Lét hann sem ekk­ert væri og ræddi við dreng­ina í mesta bróð­erni og þótt­ist ætla að skutla þeim á þann stað sem þeir báðu hann um en hafði þó allt annað í hyggju. Fór svo að hann skutl­aði þeim beint á lög­reglu­stöð­ina á Selfossi en eftir stuttan flótta náð­ust þeir báðir og við­ur­kenndu athæfi sitt. Sá þriðji, vit­orðs­maður þeirra frá Hvera­gerði ját­aði einnig á sig ránið.

DV fjall­aði um málið þann 1. sept­em­ber 1995 en hér fyrir neðan má lesa frétt­ina:

Tveir piltar húkk­uðu far eftir þjófnað hjá Braga í Eden



Bragi tók þá upp í og ók þeim á lög­reglu­stöð­ina

„Þegar ég kom niður í Eden um sex­leytið i gær­kvöldi var mér sagt að tveir piltar hefðu verið þar að brjóta upp spila­kassa. Þeir voru farnir þegar ég kom á stað­inn. Ég fór strax upp í bíl og tók með mér stúlku sem sagð­ist geta borið kennsl á þá. Við fundum strák­ana niðri á þjóð­vegi þar sem þeir voru að húkka sér far. Ég stöðv­aði og strák­arnir spurðu hvort ég væri nokkuð að fara á Selfoss. Ég sagði bara já og tók þá upp í, lét sem ekk­ert væri og ákvað að aka þeim bara á lög­reglu­stöð­ina þar. Á leið­inni sögð­ust þeir vera úr Reykja­vík þannig að þetta var allt í bróð­erni hjá okkur til að byrja með,“ sagðí Bragi Ein­ars­son, eig­andi Edens í Hvera­gerði, í sam­tali við DV í morgun. Hann hélt ró sinni, svo ekki sé meira sagt, þegar hann freist­aði þess að koma tveimur 14 og 15 ára piltum til lög­reglu um kvöld­mat­ar­leytið í gær. „Strák­arnir vildu fara úr bílnum við Shell­sjopp­una á Selfossi, dálítið fyrr en við komum að lög­reglu­stöð­inni. Ég sagði þá að ég væri nú hálf­vit­laus að keyra svona glanna­lega því það væru engar bremsur á bílnum. Þá virt­ist ekk­ert gruna. Þegar ég kom að kaup­fé­lag­inu við Aust­ur­veg vildu þeir stöðva þar. Ég sagði þá að það væri skilti þarna sem segði að ég mætti ekki stoppa. Þegar ég kom austar í bæinn, áleiðis að lög­reglu­stöð­inni, fóru pilt­arnir að ókyrr­ast. Þá jók ég hrað­ann og ók beint að stöð­inni. Um leið og ég stöðv­aði fóru þeir út og hlupu í gegnum garða. Ég fór inn og gerði lög­reglu­mönnum við­vart sem fóru á tveimur bílum til að leita og fundu þá fljót­lega,“ sagði Bragi. Hann sagði að hér væri ekki um pen­inga­mál að ræða, heldur það að koma lög­brjótum í réttar hendur. Spila­kass­inn var tæmdur í gær þannig að aðeins um þús­und krónur voru í honum. Pilt­arnir eru frá Selfossi og við­ur­kenndu athæfi sitt. Þriðji pilt­ur­inn, sem er frá Hvera­gerði, var vit­orðs­maður þeirra. Hann hefur einnig játað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina