Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnar Eggert sniðgengur Eurovision: „Hildarleikurinn og sturlunin á Gaza blasir við öllum“

Arnar Eggert sniðgengur Eurovision: „Hildarleikurinn og sturlunin á Gaza blasir við öllum“
Arnar Eggert Thorodd­sen.

Popp­fræð­ing­ur­inn Arnar Eggert Thorodd­sen hefur ekki lyst á að skrifa um Eurovision í ár.

„Ég hef verið að skrifa um Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovision, í Morg­un­blaðið í ára­tugi. Reit t.d. opnu­grein um fatatízkustrauma í keppn­inni eitt sinn, geri aðrir betur!“ Með þessum orðum hefst Facebook-færslua Arnars Eggerts Thorodd­sen tón­list­ar­fræð­ings sem lengi hefur frætt land­ann um tón­list í allri sinni mynd. Segist hann í færsl­unni vera afar fylgj­andi Eurovision keppn­inni enda sé „popp­fræði­lega mik­il­vægið“ algjört í hans huga.

„Og gaman hef ég af þessu tón­list­ar­lega fyr­ir­bæri og er afar fylgj­andi keppn­inni. Popp­fræði­lega mik­il­vægið er algert í mínum huga, það er hrein­lega sál­ar­upp­lyft­andi að hlusta á mis­góð popp­lög með fjöl­skyldu og vinum og grín­ast og gant­ast með þetta allt saman. Lifa sig inn í gleð­ina, vera alvar­legur, léttur og allt þar á milli. Dæg­ur­tón­list, veri það grjót­hart rokk eða fislétt popp skiptir máli, býr yfir gildi og hefur áhrif eins og ég skrifað um í ótelj­andi pistlum og greinum, á blaða­manna­vett­vangi eða sem félags- og dæg­ur­tón­list­ar­fræð­ingur í Háskóla Íslands. Lýð­heilsu­gildið er skýrt.“

Arnar Eggert seg­ist hins vegar hafa sagt sig frá öllum skrifum um Eurovision árið 2019.

„Árið 2019, er keppnin var haldin í Ísrael, sagði ég mig hins vegar frá öllum skrifum. Ástæðan þá var að sjálf­sögðu aðkoma Ísrael að keppn­inni og hvernig landið nýtti hana með­vitað í menn­ing­ar­legan hvít­þvott. Allt tal um að söngvakeppn­inni ætti að halda utan við póli­tík, sem er göf­ugt mark­mið, var gert að hjómi af gest­gjöf­unum sjálfum.Sama er uppi á ten­ingnum í ár hjá mér. Ég skrif­aði ekki um íslensku lögin, eins og ég geri alltaf (sem er synd, því að keppnir eins og þessar eiga m.a. að þjóna þeim til­gangi að hreyfa við sköp­un­ar­þrótt­inum) og mun snið­ganga aðal­keppn­ina.“

Að lokum segir Arnar Eggert að ástæð­urnar fyrir snið­göngu sinni í ár blasa við. „Ég þarf ekki að fara í saumana á ástæð­unum, þær blasa við. Fyrst og fremst hef ég ein­fald­lega ekki lyst á að koma nálægt þessu og fæ kvíða­hnúta fremur en fiðr­ildi í mag­ann þegar ég hugsa til Eurovision. Hild­ar­leik­ur­inn og sturlunin á Gaza blasir við öllum sem vilja sjá og skilja og að ætla að stíga gleði­dans með full­trúum þess ríkis sem að honum stendur gengur engan veg­inn upp í mínum huga.

Mín lóð eru afskap­lega létt­væg í stóra sam­heng­inu en hér eru þau samt.

#frjálspalest­ína

#frjálstgaza

#frjál­ste­urovision

.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina