Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eitruð lítil pilla – Vísitölufjölskylda í vanda

Eitruð lítil pilla – Vísitölufjölskylda í vanda
Vísi­tölu­fjöl­skyldan Mynd: Borgarleikhúsið

Í lok febr­úar fór ég á frum­sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins á rokksöng­leiknum Eitruð lítil pilla í leik­stjórn Álfrúnar Helgu Örn­ólfs­dóttur, en lögin í sýn­ing­unni eru öll eftir kanadísku söng­kon­una Alanis Moris­sette sem skaust upp á stjörnu­him­in­inn með látum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Söng­leik­ur­inn er sam­inn af þeim Alanis Moris­sette og Diablo Cody og var fyrst frum­sýndur á Broadway árið 2019 og sló ræki­lega í gegn.

Ég var mjög spenntur fyrir sýn­ing­unni, en Alanis á sér­stakan stað í hjarta mér og ég hlust­aði oftar á Jagget Little Pill-plötu hennar en eði­legt gæti talist. Ég á líka gríð­ar­lega margar minn­ingar sem tengj­ast lögum hennar. Ég missti til dæmis svein­dóm­inn á meðan Jagget Little Pill var á fón­inum. Þá lét vin­kona mín frá Akureyri og síðar kærasta mín, mig vita að hún væri hrifin af mér með því að senda mér jóla­kort með texta úr lag­inu Head Over Feet, en þar segir meðal ann­ars:

„You’ve alr­eady won me over
In spite of me
And don’t be alar­med if I fall
Head over feet
And don’t be sur­prised if I love you
For all that you are
I couldn’t help it
It’s all your fault“

Ekki vantar róm­an­tík­ina!

En sem sagt, þarna var ég kom­inn til að sjá söng­leik byggðan á lögum Alanis Moris­sette. Sögu­þráð­ur­inn er eins „woke“ og hægt er og gæti það pirrað ein­hverja en ekki hann mig. Fjallar söng­leik­ur­inn um vísi­tölu­fjöl­skyldu þar sem í fyrstu virð­ist allt í sóma. Kemur svo á dag­inn að svo er aldeilis ekki, pabb­inn, sem leik­inn er af Vali Frey Ein­ars­syni, er háður klámi, mamman, sem leikin er af Jóhönnu Vigdísi Arn­ar­dóttur, er háð Oxycontin-töflum, dóttirin, sem leikin er af Aldísi Amah Hamilton, á í vand­ræðum í ásta­líf­inu og son­ur­inn, sem leik­inn er af Sigurði Ingv­ars­syni, varð vitni að nauðgun en gerði ekk­ert til að stöðva hana. Sem sagt, allt í hakki.

Í byrjun átti ég nokkuð erfitt með að hrista af mér kjána­hroll­inn þegar ég heyrði fyrstu lögin sungin á íslensku. Í raun skemmdi það í fyrstu for­tíð­ar­þrá fyrir mér, en svo komst ég yfir það. Eftir tvö til þrjú lög var ég búinn að sætta mig við að þau væru á íslensku og gat notið mín að fullu. Söng­ur­inn var ein­fald­lega frá­bær, en sú sem stjarnan sem skein hvað bjart­ast var Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir í hlut­verki fyr­ir­mynd­ar­móð­ur­innar Mary Jane, en hún sneri aftur á svið eftir tals­vert hlé. Atriðið með henni rétt fyrir hlé fram­kall­aði meira að segja tár á hvarmi. Elín Hall var einnig stór­góð í hlut­verki sínu sem Bella, en söng­hæfi­leikar hennar fengu aldeilis að njóta sín í sýn­ing­unni. Þá var Íris Tanja Flygenring frá­bær í hlut­verki Jo og kröftug söng­rödd hennar bók­staf­lega fyllti sal­inn þegar hún hóf upp raustina. Aðrir leik­arar skil­uðu sínu af mynd­ar­brag, eins og Aldís Amah Hamilton í hlut­verki Frankie, tví­kyn­hneigðrar dóttur þeirra Mary Jane og Steve, sem komst vel frá hlut­verki sínu og Sigurður Ingv­ars­son í hlut­verki Nicks, bróður Frankie, og greini­legt að hann hefur lært margt af föður sínum, Ingvari E. Sig­urðs­syni. Danskóreógraf­ían í söng­leiknum var mjög flott, en Saga Sig­urð­ar­dóttir á heið­ur­inn af henni. Þýðingin var í höndum þeirra Matth­í­asar Tryggva Har­alds­sonar og Ingólfs Eiríks­sonar, hún var fín á köflum en alls ekki alltaf. Stundum fannst mér sem text­inn væri svo­lítið þving­aður, en í heild­ina var þetta ágætt.

Þegar tjaldið féll í lok söng­leiks­ins vildi ég meira og það segir ýmis­legt um upp­lifun mína. Sýningin er stór­skemmti­leg, hún er „rel­evant“, svo maður sletti aðeins, tekur á málum sem brenna á sam­fé­lag­inu, nánd­ar­leysi í sam­böndum, kyn­hneigð, ras­isma, fíkni­sjúk­dómum, nauðg­un­ar­menn­ing­unni og fleiru sem vert er að skoða í kjöl­inn. Lögin eru frá­bær, söng­ur­inn stór­kost­legur, leik­ur­inn góður og sviðs­myndin geggjuð. Ef ég ætti að gefa sýn­ing­unni stjörnur myndi ég gefa henni 4 af 5.

Pistill þessi birt­ist í nýju Sjó­ara­blaði sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina