Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Steinunn hefur neytt ólöglegra fíkniefna: „Vil tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar“

Steinunn hefur neytt ólöglegra fíkniefna: „Vil tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Facebook

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er afskap­lega róm­an­tísk að eigin sögn. Hún við­ur­kennir að hafa neytt ólög­legra fíkni­efna á ævinni og seg­ist hafa lært að meta augna­blikið þegar hún meðal ann­ars fylgdi Stefáni Karli sínum í dauða­stríði hans.

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Þeir eru nokkrir, Strandir eins og þær leggja sig, N-Þing­eyj­ar­sýsla, hálendi Íslands og auð­vitað allar almenn­ings­sund­laugar lands­ins.

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Mér finn­ast 2-3 tíma­bil eðli­leg í þessu emb­ætti en það fer eftir far­sæld for­seta hverju sinni. Það er mik­il­vægt að fólk þekki sinn vitj­un­ar­tíma.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Ég eins og stór hluti þjóð­ar­innar vil tryggja yfir­ráð yfir auð­lindum okkar eins og kveðið er á um í stjórn­ar­skránni nýju og lýsir vilja þjóð­ar­innar í þeim efnum.

Hver er þinn uppáhalds forseti?

Ég fékk að taka í hönd Krist­jáns Eldjárns þegar ég var stelpa og það fannst mér merki­legt. Mér þykir vænt um Vigdísi, hún breytti heim­inum, Ólafur Ragnar er eld­skarpur og vog­aður.  Mér finnst eft­ir­sjá af Guðna sem hefur verið okkar alþýð­leg­asti for­seti. Alþýð­ur­bragur á emb­ætt­inu finnst mér af hinu góða.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Nei.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Engin ein mann­eskja.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Ég elska klass­íska tón­list, jazz og reyndar er ég alæta á tón­list.

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Já, auð­vitað hef ég prófað margt mis­gáfu­legt um ævina.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Já.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Þær eru margar. Þegar ég varð ást­fangin fyrir alvöru, fæð­ing barn­anna minna, að fylgja mann­inum mínum í gegnum sitt dauða­stríð. Ég er lánsöm finnst mér og hef fengið að upp­lifa margt bæði gott og slæmt og það hefur kennt mér að meta augna­blikið.

Hver eru mestu vonbrigðin?

Ég græt ekki það liðna. Hvert augna­blik er nýtt upp­haf.

Fallegasta ljóðið?

Þau eru svo mörg en, Hvert örstutt spor, eftir Halldór Laxness er í sér­stöku upp­á­haldi hjá mér og ég hef kunnað það frá því að ég man eftir mér.

Besta skáldsagan?

Sjálf­stætt fólk eftir Halldór Laxness, 100 ára ein­semd eftir Gabriel García Márquez og Freedom eftir Jonathan Franzen eru allar í upp­á­haldi.

Hvað er það besta við Ísland?

Fólkið, nátt­úran, sund­laug­arnar.

Kanntu á þvottavél?

Viltu að ég þvoi eitt­hvað fyrir þig? Komdu bara með þvott­inn!

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Að þjóðin gæti stolt horft í augu ann­arra þjóða, hvorki af yfir­læti eða und­ir­gefni og staðið óhrædd með sjálfri sér og hags­munum sínum.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Að vera hlýr félagi sem sýnir vænt­um­þykju sína í verki með því að meta alla lands­menn jafnt.

Borðarðu þorramat?

Ekki hrifin af súr­mat en vit­laus í hákarl.

Ertu rómantísk/ur?

Afskap­lega.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til embættis forseta Íslands?

Ég mun alltaf standa með fólk­inu í land­inu enda hef ég sömu hags­muna að gæta. Það þýðir ein­fald­lega að verði ég for­seti mun ég ekki nýta starfið mér til fram­dráttar eða til sér­hags­muna­gæslu útvaldra heldur ætíð hafa athygl­ina á vel­ferð lands­manna. Það get ég gert með því að veita því braut­ar­gengi sem mik­il­vægt og vel er gert og er lands­mönnum og nátt­úru til góða. Það get ég líka gert með því að hvetja fólk og sam­fé­lög á lands­vísu til dáða. Ég er komin af verka­lýðs- og jafn­rétt­is­bar­áttu­fólki og engum ætti að dylj­ast skoð­anir mínar. Ég mun nýta dag­skrár­vald mitt sem for­seti líkt og margir for­setar hafa gert ef þingið vinnur gegn almanna­hags­munum og séu þjóð­ar­hags­munir undir þá mun ég nýta mál­skots­rétt­inn sé fyrir því ríkur þjóð­ar­vilji.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þá fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu