Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þróttur í hart við Reykjavíkurborg: „Það kemur ekki til greina“

Þróttur í hart við Reykjavíkurborg: „Það kemur ekki til greina“
Þrótt­arar – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: Þróttur

Á fundi skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar fyrr í mán­uð­inum var tekin sú ákvörðun að breyta um stefnu í skóla­málum í Laug­ar­dalnum en til stóð að byggja við Laug­ar­nes­skóla, Lauga­lækj­ar­skóla og Lang­holts­skóla til að mæta þörfum og fjölgun nem­enda og var sú ákvörðun tekin árið 2022 eftir langt sam­ráðs­ferli við skóla­stjórn­endur og íbúa Laug­ar­dals.

Nú hefur verið lagt til að byggður verði sér­stakur safn­skóli fyrir nem­endur í 8. – 10. bekk en ekk­ert sam­ráð var haft um þessi plön við íbúa eða skóla­stjórn­endur og ber Reykja­vík­ur­borg fyrir sig breyttar aðstæður sem aðal­á­stæðu þess að breytt var um áætlun. Nú hefur íþrótta­fé­lagið Þróttur gefið út yfir­lýs­ingu um málið en í henni segir að félagið muni ekki gefa eftir svæði sem til­heyri félag­inu en sam­kvæmt til­lögu borg­ar­innar stendur til að byggja skól­ann mögu­lega á milli Skauta­hallarn­innar og AVIS-velli Þróttar. Segir félagið að svæðið til­heyri Þrótti og sé mik­il­vægt starf­semi félags­ins.

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig sagt að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við félagið og áform borg­ar­innar hafi komið félag­inu í opna skjöldu.

Hægt er að lesa alla til­kynn­ingu Þróttar hér fyrir neðan:

„Á fundi Skóla- og frí­stunda­ráðs borg­ar­innar, sem fram fór 13. mars sl., lögðu skóla- og frí­stunda­ráðs­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Pírata til end­ur­skoðun á fyrri ákvörðun borg­ar­innar um við­bygg­ingar við skóla í Laug­ar­dalnum.1 Vilja full­trúar falla frá fyrri áformum og byggja þess í stað einn ung­linga­skóla, svokölluð sviðs­mynd 4 í skýrslu starfs­hóps um und­ir­bún­ing fram­kvæmda, dags. í nóv­em­ber 2023.2 Í þeirri sviðs­mynd er kveðið á um upp­bygg­ingu ung­linga­skóla í Laug­ar­dalnum og koma þrjár lóðir til greina sam­kvæmt skýrsl­unni. Lóð nr. 1 í umræddri skýrslu er Þrí­hyrn­ing­ur­inn en sú lóð er og verður á íþrótta­svæði Þróttar sam­kvæmt sam­komu­lagi félags­ins við borg­ina frá 1996.

Í ljósi fram­an­greinds hefur laga­nefnd Þróttar farið yfir sam­komu­lag félags­ins við borg­ina. Telur laga­nefndin ljóst að til­laga að stað­setn­ingu ung­linga­skóla milli gervi­gras­vallar og skauta­hall­ar­innar byggir á þeirri röngu for­sendu að umrætt svæði, þ.e. Þrí­hyrn­ing­ur­inn, sé við hlið íþrótta­svæðis Þróttar en ekki á íþrótta­svæði félags­ins. Með samn­ingi Þróttar og Reykja­vík­ur­borgar frá 12. des­em­ber 1996, um flutn­ing félags­ins úr Sævið­ar­sundi yfir í Laug­ar­dal, lét Reykja­vík­ur­borg Þrótti í té afnota af til­greindum svæðum, þar á meðal svæð­inu milli gervi­gras­vallar og Skauta­hallar, þ.e. Þrí­hyrn­ingi. Samkvæmt samn­ingnum skal Þróttur hafa afnot af þeim svæðum sem um ræðir svo lengi sem félagið starfar í Laug­ar­dal. Ekkert í samn­ingi aðila heim­ilar Reykja­vík­ur­borg ein­hliða að taka til sín svæði sem látin voru Þrótti í té. Þrí­hyrn­ing­ur­inn er því og verður hluti af íþrótta­svæði Þróttar.

Vill aðal­stjórn Þróttar því hér með koma því á fram­færi að ekk­ert sam­ráð hefur verið haft við félagið um umrædd áform borg­ar­innar og komu þau félag­inu í opna skjöldu. Það kemur ekki til greina af hálfu félags­ins að gefa umrætt íþrótta­svæði eftir enda gegnir það veiga­miklu hlut­verki í starf­semi þess. Þarna fara m.a. fram stórir við­burðir á borð við ReyCup og önnur knatt­spyrnu­mót sem gerir Þrótti kleift að halda rekstri sínum gang­andi. Þróttur mun því ekki að óbreyttu gefa íþrótta­svæði sitt eftir undir skóla­lóð.

Aðal­stjórn Þróttar“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina