Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hrein og klár forréttindablinda ef aukið aðgengi að áfengi verður samþykkt á Alþingi“

„Hrein og klár forréttindablinda ef aukið aðgengi að áfengi verður samþykkt á Alþingi“
Gunnar Her­sveinn.

Rit­höf­und­ur­inn Gunnar Her­sveinn skrifar afar áhuga­verða grein.

Hann kemur inn á að „við öll höfum rétt til að verða frjálsar mann­eskjur. Hugtakið frelsi hefur ekki full­gerða merk­ingu nema í sam­hengi við annað. Við þurfum ekki frelsi til að geta keypt vín alla daga og nætur. Alkóhól eykur ekki frelsi heldur dregur úr vilja­mætti og dóm­greind, það tak­markar frelsi til að hugsa og taka heilla­væn­legar ákvarð­anir.“

Gunnar bætir því við að „frjáls­hyggju­maður sem boðar frelsi til að kaupa áfengi hvar­vetna mis­skilur frels­is­hug­takið og sam­hengið alvar­lega. Hugtakið frelsi breyt­ist oft við notkun í klisju, aðal­lega vegna þess að það er mis­notað til að rétt­læta hvað­eina og þá gleym­ist að taka til­lit til ann­arra. Tak­markað aðgengi að áfengi er ákjós­an­legt – tak­marka­lítið versl­un­ar­frelsi til að kaupa áfengi dregur úr frelsi í fjöl­skyldum og í sam­fé­lag­inu, það eykur líkur á ofbeldi, röngum ákvörð­unum, slysum, og fyllir sjúkra­húsin af sjúk­lingum.“

Bætir við:

„Tak­markað aðgengi að áfengi er því ákjós­an­legt. Skugga­hliðin á bak við versl­un­ar­frelsi með áfengi er aug­ljós, ein­föld og marg­sönnuð: aukið aðgengi, aukin neysla, fleiri veikj­ast og deyja, fleiri vanda­mál fyrir fjöl­skyldur og dýr­ara heil­brigð­is­kerfi. Ein­fald­lega vegna þess að áfengi er engin venju­leg neyslu­vara heldur líf­rænt leysi­efni, eitur sem er notað sem hug­breyt­andi vímu­efni og er fíkni­efni og eit­ur­lyf.“

Gunnar ljær máls á því að það sé „réttur barna að búa í far­sælu umhverfi, það veitir þeim frelsi. Mik­il­vægt er að mark­aðs­öflin virði það því ofneysla áfengis getur farið illa með fjöl­skyldur og með­virkni í fjöl­skyldum er líka vandi sem þarf að hafa í huga.“

Að mati Gunnars er „mark­að­ur­inn gild­is­laus; gleymum því aldrei. Honum er sama um ham­ingju í fjöl­skyldum, við verðum því að treysta á lög­gjafann sem hefur völd til að tak­marka aðgengi. Ekki treysta á ólög­legan vín­sala á net­inu. Það er í raun ótrú­legt hve slæm áhrif alkó­hóls eru miðað við vin­sældir þess og hve mikil áhætta fylgir drykkj­unni, meðal ann­ars að verða alvar­lega háður alkó­hóli. Sókn eftir áfengi getur valdið óham­ingju en það gerir val á vín­lausum lífs­stíl ekki, styðjum það, ekki hitt. Hrósið þeim sem drekka ekki áfengi!“

Gunnar kann vel við það að nota „hug­takið frelsi. Ég vil vera frjáls and­spænis ánetj­andi efnum, alltaf, alla daga. Frelsið mitt er ekki hend­ing. Áhættan sem felst í því að verða háður fíkni­efnum, er ekki í neinu sam­ræmi við ávinn­ing­inn!“

Bætir þessu við:

„Það flokk­ast sem hrein og klár for­rétt­inda­blinda ef aukið aðgengi að áfengi verður sam­þykkt á Alþingi. Vín­drykkja er nú þegar almenn í sam­fé­lag­inu og hvar­vetna er boðið upp á áfengi. Verk­efnið er því ekki að gera það aðgengi­legra. Það er ekki fal­leg gjöf til þjóð­ar­innar á 80 ára lýð­veld­is­af­mæli, að auka aðgengi að áfengi í nafni versl­un­ar­frelsis til að breyta vín­menn­ingu. Æ sér gjöf til gjalda hjá hags­muna­að­ilum sem búast þá við fleiri neyt­endum.“

Gunnar kemur inn á að vín­laust fólk „þarf oft að útskýra hvers vegna það vilji skera sig úr og er oft stimplað sem alkó­hólistar, fíklar eða ófært um að hafa stjórn á sér. Í stað þess að fá hrós fyrir sjálf­saga, styrk­leika og að nýta val­kost­inn, er það dæmt fyrir veik­leik­ann sem felst í löngun til að drekka áfengi. Myndinni er snúið við eða hvor er alkinn, sá sem aldrei getur flot­inu neitað eða sá sem velur að vera alltaf alls­gáður?“

Gunnar spyr um aukið aðgengi að áfengu – frelsi fyrir hverja?

„Við þurfum að læra að greina á milli hvað er gjöf og hvað er ekki gjöf. Ofneysla hefur áhrif á líðan allra í fjöl­skyld­unni og litar félags­leg sam­skipti. Hún ýtir undir óeðli­lega þætti og með­virknin eykur streitu og kvíða. Ein­stak­lingar glata frelsi sínu og hætta að hafa full tök á lífi sínu. Fæstir átta sig á þessu mynstri sem skap­ast í kringum ein­stak­linga með vímu­efna­röskun, en það er lúmsk stað­reynd. Þetta er spurn­ing um ákvörðun um frelsi til fram­búðar og far­sældar.“

Gunnar segir að lokum að „án sjálf­saga og hóf­semdar og taum­halds verður ekk­ert frelsi. Hversu oft þarf að segja það: Áfengi er ekki venju­leg vara! Hver þarf áfengi ef mark­miðið er: Skýr hugur, skap­andi hjarta, hraustur heili.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina