Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Maður í fæðingarorlofi bíður enn eftir launum frá veitingastaðnum Ítalía: „Hef beðið í 49 daga“

Maður í fæðingarorlofi bíður enn eftir launum frá veitingastaðnum Ítalía: „Hef beðið í 49 daga“
Denis Koval

Fyrr­ver­andi starfs­maður veit­inga­stað­ar­ins Ítalía hefur ekki enn fengið greidd laun fyrir apríl mánuð. Hann er nú í fæð­ing­ar­or­lofi.

Sjá einnig: Eigandi Ítalíu skuldar starfs­fólki laun: „Ég trúi ekki að þetta sé að ger­ast á Íslandi“

Denis Koval kom frá Úkraínu fyrir einu og hálfu ári síðan en segir farir sínar alls ekki sléttar þegar snýr að atvinnu­rek­endum sínum hér á landi. Í upp­hafi hóf hann störf á hót­eli en hætti þar eftir ósætti þar.

Eig­in­kona Denis var orðin ólétt en til þess að hann ætti rétt á barna­bótum og fæð­ing­ar­or­lofi, varð hann að vera í vinnu. Hóf hann því störf við veit­inga­stað­inn Ítalíu, en þar gekk á ýmsu.

„Ég hóf störf á Ítalíu en þar var mér strax sagt að þeir ættu í fjár­hags­vand­ræðum og að ég myndi ekki fá greidd laun þann fyrsta næsta mán­aðar, heldur í kringum þann þriðja. Það var í lagi mín vegna, því aðal­málið fyrir mig var að hafa vinnu svo ég fengi fæð­ing­ar­or­lof. Þann 3. apríl fékk ég aðeins hluta af mán­að­ar­laun­unum borguð eða 174.000 krónur en á launa­seðl­inum stóð 229.000 krónur. Mánuði seinna, sjötta maí, fékk ég 50.000 sem var fyrir mars. En hvað með launin fyrir apríl? Í dag hef ég ekki enn fengið laun fyrir apr­íl­mánuð en nú er 18. júní. Ég hef því beðið í 49 daga eftir laun­unum mínum.“

Denis hefur ítrekað ýtt á eftir greiðslum.

„Í hvert skipti sem ég spyr um pen­ing­ana, og það er mjög oft, hafa þeir sagt að ég fái greitt á „mánu­dag­inn“ en á 49 dögum eru ansi margir mánu­dagar.“

Denis segir að nýlega hafi nýtt starfs­fólk verið ráðið á veit­inga­stað­inn.

„Fyrir nokkrum vikum síðan skrapp ég á stað­inn. Þeir voru búnir að ráða nýtt fólk og voru að panta nýja hluti. Og ég bíð enn eftir laun­unum mínum, frá 1. maí og til dags­ins í dag.“

Þrátt fyrir þessar raunir er Denis ham­ingju­samur en honum tókst að verða sér út um nýja vinnu og tryggja fæð­ing­ar­or­lof.

„Ég er þegar búinn að finna nýja vinnu og sonur minn fædd­ist 10. maí. Greiðsl­urnar til mín voru sam­þykktar þannig að ég er ánægður að allt gekk upp, með einum eða öðrum hætti. Nú er ánægju­leg­asta tíma­bil lífs míns hafið, ég er pabbi. Að eign­ast barn er blessun. Nú vil ég bara fá launin mín og halda áfram með líf mitt.“

Mannlíf fjall­aði um vand­ræði Salome Berelidze frá Georgíu og fleirri starfs­manna veit­inga­stað­ar­ins við að fá greidd laun, en starfs­menn­irnir eru frá ýmsum löndum, til dæmis Grikk­landi og Póllandi. Eftir að Mannlíf fjall­aði um málið, fengu flestir starfs­menn­irnir loks greidd laun en eig­andi stað­ar­ins, Elvar Ingi­mars­son sagði í sam­tali við Mannlíf að „tækni­vanda­mál“ hafi ollið töfum á greiðslum, sem og að „launa­kostn­aður hafi hækkað mikið“. Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs er að minnsta kosti einn fyrr­ver­andi starfs­maður enn að bíða eftir launum frá veit­inga­staðnum, auk Denis.

Enter

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag