Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eigandi Ítalíu skuldar starfsfólki laun: „Ég trúi ekki að þetta sé að gerast á Íslandi“

Eigandi Ítalíu skuldar starfsfólki laun: „Ég trúi ekki að þetta sé að gerast á Íslandi“

Eigandi veit­inga­stað­ar­ins Ítalía á Frakk­ar­stíg í Reykja­vík, skuldar nokkrum fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­mönnum laun. Einn þeirra stígur fram undir nafni og vill fá launin sín.

Salome Berelidze, frá Georgíu skrif­aði færslu í gær­kvöldi á Facebook-grúpp­una Vinna með litlum fyr­ir­vara en hún segir farir sínar ekki sléttar gagn­vart veit­inga­staðnum Ítalía, þar sem hún vann í auka­vinnu, þar til nýlega.

Færslan er svohljóð­andi (í íslenskri þýð­ingu):

„Ég ætla ekki að vera nafn­laus núna … ég birti hér öll skjá­skotin sem ég hef frá fyr­ir­tæk­inu sem ég vann hjá en fékk ekki laun … þeir eru bók­staf­lega að ljúga að mér … og líka að öðru starfs­fólki, og þeir borga ekki heldur í stétt­ar­fé­lagið eða skatta, veit­inga­stað­ur­inn heitir Italia. Fyr­ir­tækið heitir Opera Service efh… Ég trúi ekki að þetta sé að ger­ast á Íslandi. Þeir segja að ef við förum með þetta í stétt­ar­fé­lagið, þá munu stétt­ar­fé­lagið ekk­ert gera!!! Haldið ykkur fjarri veit­inga­staðnum… Þetta er klikkun … „Í stuttu máli“: Ég er að spyrja „fram­kvæmd­ar­stjór­ann“ hvenær ég fái launin, hann seg­ist ekki vita það því hann sjái ekki um launa­greiðslur, að ég eigi að spyrja end­ur­skoð­and­ann um upp­lýs­ingar, hann segir mér að hann geti það ekki… þá spyr ég aftur og er beðin um að brjóta ekki á frið­helgi hans og hringja ekki í einka­númer hans: hringdi og svar­aði af því að hann þekkti ekki núm­erið mitt, eftir að ég sagði honum hver ég væri, sagð­ist hann ætla að heyra í ein­hverjum Björg­vini, eftir að ég skrif­aði færslu hér undir nafn­leynd og sendi skjá­skot af færsl­unni til eig­and­ans, lét hann mig loks­ins fá tölvu­póst þessa Björg­vins … ég sendi honum tölvu­póst og hann er hissa á að ég sé að senda honum tölvu­póst … hann sé ekki einu sinni lög­giltur end­ur­skoð­andi? Í alvör­unni?!!!

Fékk aldrei launaseðil

Mannlíf ræddi við Salome sem stað­festir færslu sína og seg­ist eiga inni um 130.000 krónur. „Ég byrj­aði að vinna þar þegar hin nýja Italia opn­aði, í lok jan­úar,“ segir Salome í sam­tali við Mannlíf, og heldur áfram. „Ég vann þar í auka­vinnu en ég er í fullri vinnu á Messanum. Vegna þess að þetta var nýr veit­inga­staður þá var ég ekki að ýta mikið á að fá samn­ing og ég hef engan samn­ing. Ég vann 2-2-3 kvöld­vaktir og um helgar frá opnun til lok­unar.“

Salome seg­ist ekki hafa fengið launa­seðil eftir fyrsta mán­uð­inn. „Ég hugs­aði bara „ok“, en eftir mánuð númer tvö, spurði ég aftur og fram­kvæmd­ar­stjór­inn sýndi mér launa­seðil frá löngu færi, á far­tölvu sinni. Ég vildi taka ljós­mynd af honum en hann bann­aði mér það. Þetta var farið að vera veru­lega skrítið fannst mér. Þannig að ég sagði þeim að ég ætl­aði að hætta en að ég myndi vinna þær vaktir sem var búið að úthluta mér fyrir apr­íl­mánuð. Ég vann þrjá rauða daga í apríl. En í byrjun maí byrj­aði allt ruglið.“

Salome segir að þrír aðrir starfs­menn eigi einnig inni laun hjá fyr­ir­tæk­inu, til dæmis eigi einn inni um 350.000 krónur og annar 300.000 krónur. „En þetta snýst ekki lengur um pen­inga,“ segir Salome við Mannlíf og heldur áfram: „Heldur um fram­komu þeirra við starfs­fólkið“. Salome vildi endi­lega láta það koma fram að hún sé afar þakk­lát fyrir þann stuðn­ing sem fólk hafi sýnt henni á Facebook.

Tæknileg vandamál

Mannlíf ræddi við eig­anda Ítalíu, Elvar Ingi­mars­son en hann opn­aði einnig veit­inga­stað­inn Geitin í Garðabæ í byrjun árs. Mannlíf spurði hann hvort það sé rétt að starfs­fólk eigi inni laun hjá honum. „Já það er eitt­hvað,“ sagði Elvar og hélt áfram: „Það er verið að borga það í dag eða á morgun, þannig að þetta er ekki eitt­hvað … ég veit ekki hvað henni gekk til, þetta er auka­mann­eskja sem var látin fara fyrir löngu síðan og átti ein­hverja tíma inni.“

Mannlíf: „Mér skilst að það séu fleira starfs­fólk sem eigi inni laun.“

Elvar: „Já, þetta er lið sem er með okkur alltaf og það er búið að lenda í ves­eni á staðnum, tækni­lega og launa­kostn­að­ur­inn hækk­aði mikið.“

Tölvu­pósts­sam­skipti Salome og Elvars.

Þegar Mannlíf spurði Elvar út í tölvu­pósts­sam­skipti milli hans og Salome frá 10 maí síð­ast­liðnum, þar sem hann full­yrðir við hana að hún fái greitt þann dag, dæsti Elvar en svar­aði svo: „Við klárum þetta. Þetta er í annað skiptið sem þetta ger­ist hjá okkur, að launin komi seint en það er bara eins og staðar er í dag með þetta, það er bara búið að vera rosa­lega rólegt og plús við lentum í þessu ves­eni þarna. Og launa­kostn­að­ur­inn er svaka­legur. Ég var búinn að segja fólk­inu frá þessu, vakt­stjór­unum að þetta verður tough, næstu mán­að­ar­mót, aftur, búið ykkur undir það bara. En þetta lag­ast nú samt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina