Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nektarjóga kynnt á Íslandi: „Tæklum þetta með nærgætni og fagmennsku í fyrirrúmi“

Nektarjóga kynnt á Íslandi: „Tæklum þetta með nærgætni og fagmennsku í fyrirrúmi“

Glæný teg­und af jóga, að minnsta kosti hér á landi, verður kennd á næst­unni en það er svo­kallað nekt­ar­jóga.

Í dag er Alþjóð­legi jóga­dag­ur­inn og því ekki úr vegi að segja frá teg­und jóga­kennslu sem ekki hefur verið áður kennd hér á landi. Um er að ræða nekt­ar­jóga en það eru nokkrir jóga­kenn­arar sem stofn­uðu verk­efnið Naked Yoga Reykja­vík, sem standa fyrir þess­ari nýstár­legu jóga­kennslu.

Mannlíf ræddi við Svetlönu Álfheiði Malyut­inu, sem er einn af stofn­endum verk­efn­is­ins Naked Yoga Reykja­vík, og for­vit­að­ist um þessa teg­und jóga.

Svetlana Álf­heiður Malyut­ina

Af hverju nekt­ar­jóga?

Svetlana: „Af því að okkur finnst það algjör­lega frá­leitt að nútíma­fólk skammist sín fyrir sinn eigin lík­ama og reynir stöðugt að breyta útliti sínu eða lögun, á kostnað geð­heils­unnar – bara af því að ein­hver sniðug aug­lýs­ing eða áhrifa­valdur á TikTok segir að lík­am­inn okkar er ekki nógu góður eins og hann er.

Við trúum því líka að ef maður er sáttur við sjálfan sig, ber virð­ingu fyrir lík­ama sínum og líður vel í honum þá mun hann hafa sömu við­horf til fólks í kringum sig og mun ef til vill síður fara illa með, til dæmis til­finn­ingar eða lík­ama ann­arra. Svo þegar allt kemur til alls þá er til­gangur með þessu verk­efni að sjá meiri kær­leik og minna ofbeldi í heim­inum.“

Hvernig datt ykkur þetta í hug?

Svetlana: „Þetta byrj­aði í raun út frá því að ég fór að stúd­era jógíska heim­speki sem hvetur mann til að ber­hátta huga sinn, horfa fram hjá sög­unum sem maður trúir um sjálfan sig og afhjúpa sitt innra eðli. Þegar maður sekkur sig í þetta og beitir jóga­að­ferðum í hvers­dags­líf­inu þá finnst manni oft skrýtið að sjá hið tvö­falda sið­gæði í sam­fé­lag­inu. Allir eru sam­mála um að hver og einn eigi að vera alveg frjáls – að tjá sig, að hafa skoð­anir, að lifa eins og hann vill, svo lengi sem hann tak­markar ekki frelsi ann­arra, en þegar kemur að manni sjálfum þá vill helst eng­inn skera sig úr. En til hvers að hafa skoð­anir ef maður lifir ekki sam­kvæmt þeim sjálfur?“

Svetlana bætti við:

„Við erum reyndir jóga­kenn­arar og nátt­úru­börn og við tókum eftir því að klæða­laus jóga­iðkun hefur tals­vert dýpri áhrif, eykur vellíðan og styrkir teng­ingu manns við eigin lík­ama. Þannig að við ákváðum að blása lífi í mynd­lík­ing­una og bjóða upp á jóga­æf­ingar þar sem fólk berar sig bæði bók­staf­legan og á mynd­rænan hátt.“

Hvað nákvæm­lega er nekt­ar­jóga?

Svetlana: „Klæða­laus iðkun (nagna yoga) þekk­ist frá fornum tíma sem partur af mein­læta­lifn­aði hjá þeim sem fylgdu jógískri hug­mynda­fræði þegar jóga var ekki nema ein af stefnum fornrar heim­speki. Í stórum dráttum snýst jóga um það að tengj­ast sínu ekta eðli og losa sig við blekk­ingar hug­ans. Ein af aðferðum til að kom­ast undan trufl­andi áhrifum reynslu­heims er hóf­semi eða aðhald (austerity). Í and­legum skiln­ingi þýðir það að skilja við allar utan­að­kom­andi hug­myndir sem hindra beina skynjun en í efn­is­legum að losa sig við allar eignir sem eru ekki bráð­nauð­syn­legar – að föt­unum með­töldum.“

Eru æfing­arnar kyn­ferð­is­legar?

Svetlana: „Alls ekki. Þetta er ein­stak­ling­smiðuð jóga­iðkun ætluð þeim sem vilja bæta sam­band sitt við lík­ama sinn, byggja upp jákvæða lík­ams­í­mynd og vinna úr áföllum sem höfðu áhrif á sam­band lík­am­ans og hug­ans. Þess vegna höldum við stemn­ing­unni eins hlut­lausri og hægt er og bjóðum fólki að víkka sjón­deild­ar­hring­inn sinn, end­ur­skil­greina hug­mynd sína um nekt og upp­lifa nekt á mjög per­sónu­legan en ekki kyn­ferð­is­legan hátt. Við höfum mjög strangar þátt­töku­reglur sem allir verða að sam­þykkja áður en þeir mæta í tím­ana til okkar, til að forð­ast allan mis­skiln­ing um hvað nekt­ar­jóga snýst um.“

Hvað ætlið þið að bjóða upp á?

Svetlana: „Fyrst og fremst ætlum við að bjóða upp á venju­lega klæða­lausa jóga­tíma (kynja­skipta og bland­aða) í stúd­íóum í bænum, nett­tíma og einka­tíma fyrir þá sem þora ekki að æfa í hóp strax. Fyrir þá sem vilja vita meira um heim­spek­ina á bak við nekt­ar­jóga áður en þeir fækka klæðum, höldum við sér­stakar vinnu­stofur sem skipt­ast í kynn­ingu, umræðu og stuttan klæða­lausan prufu­tíma, fyrir þá sem þora. Svo er annar stór partur af verk­efn­inu okkar núna í sumar að bjóða upp á nátt­úru­ferðir fyrir litla hópa þar sem æft er úti, ef veður leyfir.

Til að gera iðkun­ina eins vand­aða og hægt er og auka upp­byggj­andi áhrif hennar til lengri tíma, erum við líka að bjóða upp á ýmsar aðrar lík­am­legar og and­legar upp­lif­anir eins og hug­leiðslu, önd­unaræf­ingar, kakó athöfn, sauna, nudd og hljóð­heilun.“

Af hverju myndi maður vilja prófa þetta?

Svetlana: „Klæða­lausar jóga­æf­ingar geta haft víð­tæk jákvæð áhrif bæði á and­lega og lík­am­lega líðan og farið með sam­band lík­am­ans og hug­ans í nýjar hæðir. Í þessum tímum ertu laus við tak­mark­andi klæði og til­búin(n/ð) að upp­lifa algjört hreyfifrelsi og kynn­ast lík­ama þínum á nýjan hátt. Með því að æfa í hóp og anda í gegnum ótt­ann, losar þú þig einnig við tak­mark­andi hug­myndir um útlitið þitt og ann­arra sem og nei­kvæða sjálfs­gagn­rýni. Með tím­anum munt þú finna fyrir dýpri teng­ingu við sjálfan þig, verða ham­ingju­sam­ari og öðl­ast innri ró og sátt.

Ef þú vilt bæta sjálfs­traustið eða leitar að sátt við sjálfa(n/t) þig, ef þú vilt vera laus(t) við lík­ams­skömm og nið­ur­ríf­andi sjálf­s­tal, ef þú vilt bæta geð­heilsu þína sam­hliða lík­am­legri heilsu og þú ert til­búin(n/ð) til að mæta sjálfum þér alveg ber­skjöld­uðum, í þágu geð­heils­unnar og innri ham­ingju – þá eru nekt­ar­jóga­tím­arnir kannski eitt­hvað sem þú ættir að prófa.“

Eruð þið ekki hrædd við gagn­rýni? Nekt er frekar við­kvæmt efni.

Svetlana: „Nei! Við erum til­búin til að sæta gagn­rýni! Verk­efnið okkar bygg­ist á mjög sterkum hug­mynda­legum grunni sem vegur á móti þeim gömlum úreltu hug­myndum sem gagn­rýnendur okkar munu vænt­an­lega sækja rökin sín í og sem okkur dreymir um að breyta. 

Okkur finnst mik­ils virði að opna þessa umræðu og breyta við­horfi sam­fé­lags til mann­legs lík­ama og nektar.

Þetta er vissu­lega við­kvæmt efni og þess vegna höfum við vandað okkur mjög vel. Ég fékk hug­mynd­ina fyrir meira en ári síðan en síðan þá höfum við legið yfir henni í marga mán­uði. Við höfðum jafn­vel heyrt í banda­rískum félögum okkar sem eru að kenna nekt­ar­jóga í New York og Boston, til að fá ráð­gjöf um hvernig er best að hátta málum – en nekt­ar­jóga þekkst miklu meira þar. Svo við tæklum þetta krefj­andi verk­efni með mik­illi nær­gætni og fag­mennsku í fyr­ir­rúmi.“

Einhver loka­orð?

Svetlana: „Við viljum hvetja alla, hvort sem þau hafa æft jóga eða ekki, að æfa sjálfs­skoðun, að lifa lífi sínu með fullri eft­ir­tekt og í sátt við sjálfa sig og vinna að and­legu og lík­am­legu jafn­vægi. Það mun ýta okkur, djúp­þenkj­andi mann­ver­unum í átt að sam­ein­ingu í stað aðskiln­aðar, bæta sam­skipti fólks á milli og stuðla að holl­ara sam­fé­lagi – hér á landi og út um allan heim. 

Það er stóri draum­ur­inn. En við erum alveg sátt við að byrja smátt, til þess að sjá hann ræt­ast. Við erum spennt að sjá hvern og einn nem­anda á dýn­unni hjá okkur og erum til­búin til að hjálpa þér að taka fyrstu skrefin og kynn­ast sjálfum þér á nýjan hátt.

Við ætlum að hafa opna kynn­ingu um verk­efnið okkar næsta fimmtu­dag kl. 16:00 á Loft Hostel – komdu endi­lega, þú getur kynnst okkur kenn­ur­unum, spurt okkur spurn­inga og nýtt þér gott byrj­enda til­boð í tím­ana okkar í leið­inni – ef þú þorir að byrja að lifa eftir eigin sann­fær­ingu. Athugið, kynn­ingin fer fram í fötum.“

Hér má svo sjá kynn­ing­ar­mynd­band:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu