Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það virðist allt benda til þess að kreppa sé í aðsigi“

„Það virðist allt benda til þess að kreppa sé í aðsigi“
Már Wolfgang Mixa. Mynd: Skjáskot af RÚV.

„Í stuttu máli, það sem er að ger­ast er að atvinnu­leysis­tölur í Banda­ríkj­unum eru háar. Og það virð­ist hafa komið á óvart hversu háar þessar atvinnu­leysis­tölur eru og það virð­ist allt benda til þess að kreppa sé í aðsigi. Þá eru fyrstu við­brögð fjár­festa almennt að selja hluta­bréf,“ segir Már Wolfgang Mixa, sem er dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, um verð­hrun á hluta­bréfum víða um ver­öld­ina í dag.

Hann segir að það hafi alls ekki hjálpað til að Warren Buffet seldi nýverið helm­ing hluta­bréfa sinna í tækniris­anum Apple.

Warren Buffet.

Segir Már það hafa komið sér nokkuð á óvart hversu mikið verð­bréf á mörk­uðum í Asíu lækk­uðu í verði, en Nikkei-vísi­talan í Japan lækk­aði um 12 pró­sent; en það er ein mesta lækkun frá árinu 1987 í pró­sentum talið, en vísi­talan hefur sjaldan fallið um eins mörg stig og í morgun.

Kemur fram á RÚV að lækk­unin minni í Evrópu sem og í Banda­ríkj­unum; þar sem vísi­tölur lækk­uðu í kringum 2 pró­sent. Það skýrist af því hve mörg tækni­fyr­ir­tæki eru skráð þar –  en verð slíkra fyr­ir­tækja hefur lækkað einna mest.

Búast má við að verð íslenskra hluta­bréfa lækki við opnun Kaup­hallar.

Segir áður­nefndur Már að við­búið sé að lækkun verði á íslenskum hluta­bréfum er kaup­höllin opnar á morgun; erfitt sé að segja til um lang­tíma­á­hrifin:

„Íslenska hluta­bréfa­vísi­talan, hún sam­anstendur af færri vaxt­ar­fyr­ir­tækjum. Þetta eru stöndugri fyr­ir­tæki sem mynda stærstan hluta af íslensku hluta­bréfa­vísi­töl­unni. Líklega mun ein­hver lækkun eiga sér stað á Íslandi.“

Telur Már að hrun hluta­bréfa­verðs geti verið fyr­ir­vari stýri­vaxta­lækk­unar í Banda­ríkj­unum:

„Ef maður lítur á sög­una þá er miklu meiri sam­fylgni milli vaxta­stigs og gengi hluta­bréfa heldur en atvinnu­leysis þarna. Þannig að þessi lækkun núna, ég myndi ekki halda að hún hafi langvar­andi áhrif en það ber samt að líta til þess að fjár­festar hafa lengi verið að gera ráð fyrir lækk­andi vaxta­stigi. Og það gæti nú bara gerst í fram­haldi af þessum fréttum fyrr heldur en áður var áætlað.“

Már segir tíma­bært að pen­inga­stefnu­nefnd lækki vexti stýri­vexti hér á landi:

„Ef að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ætlar að horfa fram á við í stað þess að líta í bak­sýn­is­speg­il­inn, þá mun nefndin fara að hefja vaxta­lækk­un­ar­ferli á næstu vikum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina