Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kinski kemur til Íslands í fyrsta skipti: „Það er auðvitað mikill heiður“

Kinski kemur til Íslands í fyrsta skipti: „Það er auðvitað mikill heiður“
Nastassja Kinski lék í mynd­inni Tess eftir Roman Polanski – Mynd: Skjáskot

Þýska kvik­mynda­leik­konan og fyr­ir­sætan Nastassja Kinski er heið­urs­gestur á Alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­inni í Reykja­vík í ár og hreppir heið­ur­svið­ur­kenn­ingu RIFF, en hún hefst í Háskóla­bíói 26. sept­em­ber næst­kom­andi og stendur til 6. októ­ber en greint er frá þessu í frétta­til­kynn­ingu frá RIFF en hægt er að lesa til­kynn­ing­una hér fyrir neðan:

Kinski á að baki langan og glæsi­legan feril á hvíta tjald­inu, en hún hefur allt frá 1978 leikið í yfir sex­tíu bíó­myndum, þar á meðal í leik­stjórn margra kunn­ustu kvik­mynda­gerð­ar­manna sög­unnar á borð við David Lynch, Francis Ford Coppola, Paul Schrader, Roman Polanski, Wim Wenders og Wolfgang Petersen.

„Það er auð­vitað mik­ill heiður fyrir hátíð­ina að svo kunnur lista­maður sem Kinski er komi hingað til lands og heiðri okkur með nær­veru sinni,“ segir Hrönn Mar­in­ós­dóttir, stjórn­andi RIFF og bætir því við að heið­urs­gest­ur­inn í ár sé sann­ar­lega „ein af goð­sögnum bíó­mynd­anna sem kyn­slóðir stelpna á sínum tíma hermdu eftir í hár­greiðslu og útliti.“

Sló í gegn sautján ára

Stjarna Kinski reis skart undir lokin á átt­unda ára­tugnum, en heita má að hún hafi slegið í gegn, aðeins sautján ára gömul, í kvik­mynd Ítalans Alberto Lattuada, Stay as you are, þar sem hún lék eft­ir­minni­lega á móti sjálfum Marcello Mastroi­anni sem þar er í hlut­verki mið­aldra arki­tekts í líf­lausu hjóna­bandi og fellur fyrir ungri skóla­mær, túlk­aðri af Kinski. Aðeins ári seinna, 1979, hreif hún kvik­myndaunn­endur upp úr skónum í hlut­verki sínu í kynn­gi­magn­aðri kvik­mynd Polanski, Tess, og hlaut fyrir vikið til­nefn­ingu til Gullna hnatt­ar­ins fyrir túlkun sína á ungri konu sem verður fórn­ar­lamb eigin feg­urðar. Myndin hlaut þrenn Ósk­arsverð­laun, meðal ann­ars sem besta myndin.

Og ten­ing­unum var kastað – og hver myndin af annarri festi leikkon­una í sessi á stjörnu­himni heims­frægð­ar­innar á níunda ára­tug síð­ustu aldar, og má þar nefna One from the Heart eftir Coppola, Cat People í leik­stjórn Paul Schrader, að ekki sé talað um Paris, Texas í höndum Wim Wenders. Tvær síð­ast­nefndu mynd­irnar verða einmitt sýndar á hátíð­inni í ár.

Hvergi af baki dottin

Nastassja Kinski hefur sem fyrr segir leikið í meira en sex­tíu kvik­myndum, bæði austan hafs og vestan, og er enn að, en á meðal þekktra mynda sem hún hefur leikið í á nýrri öld eru Inland Empire eftir David Lynch og Sugar í leik­stjórn Rotimi Rainwater. Og svo því sé líka til haga haldið keppti þessi marg­verð­launa leik­kona og dáða fyr­ir­sæta í þýsku útgáf­unni af Lets Dance á útmán­uðum 2016, hvergi af baki dottin.

Þetta er í fyrsta skipti sem Kinski kemur til Íslands og hér mun hún dvelja í nokkra daga og vera meðal ann­ars með meist­ara­spjall við gesti þar sem hún fer yfir feril sinn og frama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu