Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brigitte Bardot sagði ísbjarnadráp Íslendinga hneyksli: „Þetta er smánarlegt!“

Brigitte Bardot sagði ísbjarnadráp Íslendinga hneyksli: „Þetta er smánarlegt!“
Ísbjörn­inn sem felldur var árið 2006. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Franska leik- og söng­konan fyrr­ver­andi og dýra­vernd­ar­sinn­inn Brigitte Bardot varð níræð í fyrra­dag en fyrir 18 árum síðan tjáði hún sig við DV um ísbjarn­ar­dráp í Skaga­firði og er óhætt að segja að hún var allt annað en ánægð með gjörn­ing­inn.

Á dög­unum var ísbjarn­ar­húnn skot­inn til bana í Jök­ul­fjörðum fyrir vestan og eins og alltaf, sýnd­ist sitt hverjum með þau dráp. Flestir telja slíka ógn stafa af hvíta­birn­inum að viss­ara sé að skjóta þá á færi ef þeir sjást hér á landi á meðan sumir eru á þeirri skoðun að betra væri að svæfa þá og flytja síðan aftur á heima­slóðir, enda um að ræða dýra­teg­und sem á mjög undan högg að sækja vegna hlýn­unar jarðar.

Árið 2006 sást ísbjörn í Skaga­firði og var aflíf­aður aðeins tveimur klukku­stundum síðar. DV heyrði í Brigitte Bartot af því til­efni enda er hún einn þekkt­asti dýra­vernd­ar­sinni heims, þá sem nú. Spurði fjöl­mið­ill­inn Bardot hvað henni fynd­ist um bjarn­ar­drápið og hún svara afdrátt­ar­laust. „Þvílíkt hneyksli! Þetta er smán­ar­legt! Þetta er örvænt­ing!“ sagði fyr­ir­sætan fyrr­ver­andi við blaða­mann DV. Bætti hún við að dráp virð­ist vera lausn manns­ins við öllum vanda­málum. Erfitt er að rök­ræða gegn því.

Þá tal­aði DV einnig við Paul Watson, leið­toga Sea Shepherd en hann kall­aði Íslend­inga bleyður.

Hér má lesa umfjöllun DV í heild sinni:

DRÁPIÐ HEFUR AFLEIÐINGAR

Brigitte Bardot leik­kona, söng­kona og fyrr­ver­andi fyr­ir­sæta, for­dæmir ísbjarn­ar­drápið í Skaga­firði í síð­ustu viku. Hún segir málið vera hneyksli og sýna fram á að dráp sé eina lausn manns­ins við vanda­málum hans. „Aum­ingj­ans jörðin er að deyja jafnt og þétt og við með henni,“ segir Bardot við DV. Paul Watson, leið­togi Sea Shepherd, tekur í svip­aðan streng. 

„Þvílíkt  hneyksli! Þetta er smán­ar­legt! Þetta er örvænt­ing! Hvert sem vanda­málið virð­ist vera hefur mað­ur­inn aðeins eina lausn á því. Að drepa! Drepa! Drepa!,“ segir leik­konan, söng­konan og fyrr­ver­andi fyr­ir­sætan Brigitte Bardot við DV um þá ákvörðun Íslend­inga að aflífa hvíta­björn sem gekk á land í Skaga­firði í síð­ustu viku. Bardot er þekkt fyrir störf sín í skemmt­ana­brans­anum, en hún lagði upp laupana á þeim vett­vangi að mestu á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og sneri sér að vernd dýra. Bardot var að mestu í sviðs­ljós­inu á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og mark­aði sér sess ásamt Marilyn Monroe sem ein kyn­þokka­fyllsta leik­kona þeirra tíma. Er Bardot nú for­svars­maður dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna Foundation Brigitte Bardot. Höf­uð­stöðv­arnar eru í París í Frakk­landi og njóta sam­tökin stuðn­ings um 60 þús­und aðila frá 60 þjóð­löndum.



Vantar við­bragðs­á­ætlun

DV spurði Bardot álits á því að hvíta­björn sem kom til lands­ins hefði verið aflíf­aður. Hún seg­ist harma mjög að ákveðið hafi verið að bregð­ast við með þessum hætti og efast um að litið hafi verið nægi­lega á aðra kosti í stöð­unni. Eins og greint hefur verið frá sást fyrst til bjarn­ar­ins um klukkan tíu um morg­un­inn og var hann skot­inn um tveimur klukku­stundum síðar. Var hann aflíf­aður með vísan til þess að hann hafi verið tal­inn ógna öryggi fólks í nágrenn­inu. Dýra­læknar hafa meðal ann­ars gagn­rýnt að engri við­bragðs­á­ætlun sé haldið úti á Íslandi hvað varðar komu dýra sem þess­ara til lands­ins. Umhverf­is­ráðu­neytið hyggst fara ofan í saumana á mál­inu, en kallað hefur verið eftir þess­ari áætlun frá árinu 1988 þegar síð­asti hvíta­björn gekk hér á land.

Ástæð­urnar ekki mark­tækar

„Þessi heilaga regla um að hafa öryggið í fyr­ir­rúmi er orðin að afsökun fyrir því að útrýma öllu því sem er hreint og fag­urt á jörð­inni. Aum­ingj­ans jörðin er að deyja jafnt og þétt og við með henni,“ segir Bardot sem seg­ist hneyksluð á fram­ferði sem þessu. Skoðanir Bardot hafa verið mjög umdeildar og hefur mörgum þótt þær vera rót­tækar. Einkum hafa það verið síð­ustu tveir ára­tugir sem hafa fallið mis­vel í kramið hjá fólki, þar sem hún hefur talað opin­skátt um sam­fé­lag múslima og sam­kyn­hneigða. Hefur hún hlotið nokkra dóma fyrir meið­yrði og féll sá síð­asti byrjun þessa mán­aðar. Þar var hún dæmd fyrir að ýta undir kyn­þátta­hatur. Þar kvart­aði hún undan því að múslimar væru að eyði­leggja Frakk­land með því að þröngva siðum sínum upp á franska menn­ingu. Var Bardot dæmd til að greiða jafn­virði um 1,8 millj­óna króna í skaða­bætur.

Segir Íslend­inga vera skræfur

DV hafði einnig sam­band við Paul Watson, leið­toga Sea Shepherd-sam­tak­anna, og spurði hann álits á aflífun hvíta­bjarn­ar­ins. Skoðanir Watsons hafa einnig verið umdeildar en hann sökkti sem kunn­ugt er íslenskum hval­veiði­skipum í Reykja­vík­ur­höfn árið 1986. Hann for­dæmir dráp Íslend­inga á hvíta­birn­inum. Hann segir þá sem skutu hann vera gungur. „Banda­rísk stjórn­völd settu ísbirni á lista yfir dýr í útrým­ing­ar­hættu í síð­asta mán­uði. ísbirnir eiga í vök að verj­ast vegna hlýn­unar jarðar og það er vænt­an­lega ein af ástæðum þess að hann kom alla leið til fslands. Mér er brugðið að nor­rænir menn skuli vera svo hræddir við sam­borg­ara sína úr hánorðri að þeir þurfi að skjóta þá. Þeir sem skutu ísbjörn­inn eru vist­fræði­lega fávísir og algjörar gungur,“ segir Watson. DV spurði þau Watson og Bardot einnig út í hvort þau hygð­ust grípa til ein­hverra sér­stakra aðgerða vegna dráps­ins, líkt og með því að senda rík­is­stjórn Íslands bréf þar sem ákvörð­unin er gagn­rýnd. Ekki vildu þau svara því að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni