Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Norskur læknir minnist tveggja sem létust í árás Ísraela: „Þeir drápu hana með köldu blóði“

Norskur læknir minnist tveggja sem létust í árás Ísraela: „Þeir drápu hana með köldu blóði“
Dr. Mads Gilbert á Gaza 2014. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Norski lækn­ir­inn Mads Gilbert er staddur í Suður-Líbanon þar sem hann starfar á sjúka­húsi og minn­ist sér­stak­lega tveggja sjúk­linga sem hann missti í gær, nú þegar ár er liðið frá því að þjóð­ar­morð Ísraela hófst á Gaza.

Dr. Mads Gilbert hefur í fjöldi ára vakið athygli á hrylli­legri með­ferð ísra­el­skra stjórn­valda á Palest­ínu­mönnum en hann hefur starfað sem læknir á Gaza í gegnum tíð­ina og orðið vitni að skelfi­legum hlutum þar og verið dug­legur að miðla því sem fyrir augum hans ber, á sam­fé­lags­miðlum og í við­tölum við fjöl­miðla. Fyrr á árinu kom hann til Íslands þar sem hann hélt fyr­ir­lestur um Gaza fyrir troð­fullum sal í Háskóla­bíói. Í nýrri færslu á Instagram segir hann frá tveimur sjúk­lingum sem lét­ust á sjúkra­hús­inu sem hann starfar nú á í Líbanon en þau höfðu verið myrt af Ísra­els­her.

Missti tvo sjúklinga af átta

„Ég sit hér á litla Najdah-spít­al­anum í Nabati­yeh í Suður-Líbanon að kvöldi sjötta októ­ber 2024 sem er dag­ur­inn fyrir mjög sorg­legt og hræði­legt afmæli, ef það er hægt að kalla þetta það. Ég er að hlusta á sprengjugný­inn frá sprengjum Ísraela. Þetta er nán­ast gengd­ar­laust,“ segir Mads og áður en hann getur haldið áfram má heyra hljóð úr sprengjum Ísra­els­hers og hann segir: „Þið heyrið í sprengj­unum,“ og heldur áfram: „Starfs­fólkið á spít­al­anum er að vinna ótrú­lega vinnu hér, líbanska starfs­fólkið og í dag fengum við til okkar átta sjúk­linga frá Suð­ur­hluta Líbanon, suður af Letani-ánni þar sem öll stað­bundnu sjúkra­húsin hafa neyðst til að loka vegna sprengju­árása Ísra­els­hers.“

Mads segir að sjúk­ling­arnir átta hafi allir verið særðir eftir sprengju­árásir. „Við börð­umst hart til að halda þeim á lífi en því miður lét­ust tveir þeirra sem komu hingað á lífi, annað hvort hér eða í sjúkra­bíl á leið á stærra sjúkra­hús í Saida. Og mig langar að minn­ast þess­ara tveggja mann­eskja vegna þess að það sem gerð­ist var að ísra­elski hryðju­verka­hóp­ur­inn, ísra­elska her­námsliðið, fram­kvæmdi eitt af sínum illu árásum þar sem þeir not­uðu sprengju­dróna til að hæfa mann á mót­or­hjóli á götum út í bænum Marjayoun, suð-austur frá okkur, um 45 mín­útur frá okkur.“

Drepin með köldu blóði

Mads segir síðan áhorf­endum frá hinum látnu: „Hind, takið eftir nafn­inu, hún var vin­sæll kenn­ari í þorp­inu. Hún var úti að labba og ætl­aði að hitta vin sinn og hljóp að til a’ hjálpa mann­inum á mót­or­hjól­inu. Og ísra­elski morð­drón­inn kom aftur og skaut á björg­un­ar­að­il­ana, eins og þeir gera svo oft.“ Segir lækn­ir­inn að Hind hafi verið á lífi þegar hún kom á sjúkra­húsið en illa farin. Sýnir hann svo ljós­mynd af kenn­ar­anum á skurð­ar­borð­inu og af lækn­unum sem reyndu að bjarga lífi hennar. Hún lést stuttu síðar. Mads les síðan minn­ing­ar­orð fjöl­skyldu Hindar en tekur svo sterk­lega fram: „Hún varð ekki fyrir því óhappi að lenda í skotárás Ísraela, hún var skotin vilj­andi. Hún var tekin af lífi. Af því að þeir sem stjórna drón­unum sjá allt. Þeir sjá andltið, geta séð hvort um er að ræða konur eða karla, full­orðna eða börn. Þeir vita nákvæm­lega hverja þeir eru að skjóta. Þeir drápu hana með köldu blóði.“ Því næst segir Mads frá hinu fórn­ar­lamb­inu en það var lög­reglu­maður frá sama svæði en hann heldur að hann hafi verið skot­inn í sömu dróna­árás og Hind. Sá lög­reglu­maður lést á leið­inni frá spít­ala Mads, til stærri spít­ala í nágrenn­inu.

„Af þessum átta lét­ust tvö. Tvö fóru í upp­skurð og eru nú í stöð­ugu ástandi á gjör­gæslu­deild­inni,“ segir Mads undir sprengjugný í nágrenn­inu og heldur áfram: „Punkt­ur­inn minn er þessi. Þetta fólk er drepið með köldu blóði af her­námsliði Ísraela. Þeir hafa verið að gera þetta, ekki aðeins síð­asta árið, heldur hafa þeir verið að drepa fólk í Líbanon og í Palest­ínu, Gaza og á Vest­ur­bakk­anum síð­ustu 45 árin með engum afleið­ingum fyrir Ísra­els­ríki eða fyrir her­inn. Eða þá stjórn­mála­menn sem bera ábyrgð. Við verðum að stöðva þetta. Við verðum að láta Ísrael bera ábyrgð. Og við þurfum að nota þetta sorg­lega eins árs afmæli til að auka sam­stöðu okkar og auka sam­stöðu­að­gerðir okkar því við getum ekki átt heim sem er svona, þar sem máttur er ofar rétt­indum. Ég tek ofan fyrir allt starfs­fólk heil­brigð­is­kerf­is­ins á Gaza, á Vest­ur­bakk­anum og í Líbanon sem sinna kalli sínu, yfir­gefa ekki sjúk­linga sína og þjóna sínu fólki af kost­gæfni, þrátt fyrir dauðaógnir frá Ísra­els­her. Og auð­vitað minn­ist ég líka ein­stak­ling­ana tvo sem lét­ust í dag. Þau hafa öll nöfn, þau hafa öll fjöl­skyldur, þau hafa öll dáðir og hlut­verk í líf­inu. Og þau eru bara slátrað af her­námsliði Ísrael. Hættið þessu og hættið þessu strax.“

Hér má sjá mynd­skeiðið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife