Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gefa partísenu Íslands vítamínsprautu: „Erfðaefnið alltaf til staðar“

Gefa partísenu Íslands vítamínsprautu: „Erfðaefnið alltaf til staðar“
Eldmóðir voru að gefa plötu – Mynd: Aðsend

Hljóm­sveitin Eldmóðir gaf út plöt­una Endalok á tóma tappa síð­ustu viku en að sögn Þráins og Óla Hrafns skipta hljóm­sveit­ina er plöt­unni ætlað að vera vítamín­sprauta í íslensku partísen­una en platan er önnur plata þeirra á árinu.

Mannlíf ræddi við Þráinn „Thrilla GTHO“ Þor­steins­son um nýj­ustu plötu þeirra félaga.

„Óli Hrafn er mikil alæta á tón­list er hálf­gert tón­list­ar­ka­melljón,“ sagði Þráinn um þá ákvörðun að blanda saman mörgum tón­list­ar­stefnum á plöt­unni. „Til að mynda hefur hann verið dug­legur að gefa út fjöl­breytt efni undir lista­manns­nafn­inu Holy Hrafn, allt frá funkplötum yfir í dans­tón­list og hefur verið að DJa eigið efni á dans­tón­list­ar­kvöldum. Við hitt­umst reglu­lega heima hjá honum og rúllum í gegnum það nýjasta sem hann hefur verið að vinna í og í miðjum dans­tón­list­arfasa hans þá settum við til hliðar nokkra grunna að lögum sem okkur lang­aði að taka lengra undir rapp­flagg­inu Eldmóðir. Við höfðum áður gefið út lagið Stefán Braga árið 2023 sem var smá til­rauna­mennska hjá okkur í þessa átt og við­tök­urnar við því lagi hvatti okkur áfram á þess­ari braut.“

Brjóta eigin reglur

En hver er mun­ur­inn á þess­ari plötu og sein­ustu plötu?

„Endalok á tóma tappa er þriðja plata okkar og önnur platan á árinu 2024. Við erum að vinna út frá því mód­eli að gefa út 5 laga smá­skífu að vori og aðra að hausti,“ sagði Þráinn. „Það eru ekk­ert endi­lega skýr mörk á milli vinn­unnar sem fer í hverja plötu svo það kemur alveg fyrir að við séum að klára síð­ustu lögin á einni plötu á sama tíma og við erum byrj­aðir á næstu með öðru­vísi hljóm. Fyrri plata árs­ins, Láttu loga, er tölu­vert meiri hiphop plata en EÁTT, á meðan hug­myndin var að EÁTT gæti vel átt heima í næsta heimapartýi eða skemmti­stað á föstu­dags­kvöldi er Láttu loga platan sem þú spilar á rúnt­inum á dimmu fimmtu­dags­kvöldi á leið úr Árbænum í Vest­ur­bæ­inn. Láttu loga var líka hugsuð sem annar hluti þrí­leiks sem hófst með fyrstu plötu okkar, Bálsýnir, árið 2023 og er því í sama anda og sú plata.“

„Við erum eig­in­lega svo­lítið ósam­kvæmir sjálfum okkur með því að brjóta vinnu­regl­una okkar varð­andi tvær útgáfur á ári því í lok nóv­em­ber kemur út önnur 5 laga plata sem var að koma úr master­ingu,“ sagði Þráinn um fram­haldið hjá hljóm­sveit­inni. „Okkur finnst gaman að hugsa verk­efnin okkar eins og litlar bíó­myndir, þó við séum að flakka svo­lítið til í stefnum eða áherslum er Eldmóðir erfða­efnið alltaf til staðar. Á sama hátt og myndir eftir Coen bræður geta verið um ólíkt fólk á ólíkum tímum þá finnur þú vel fyrir því að þú sért að horfa á Coen mynd. Árið 2025 er líka nokkuð vel stillt upp þar sem við erum byrj­aðir að vinna í vor­út­gáf­unni okkar, Til kaldra kola, sem mun loka drunga­lega hiphop þrí­leiknum okkar,“ sagði Þráinn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu