Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir „framsóknardrengsins“ í VMA opnar sig um Sigmund Davíð: „Þarna er sökudólgurinn“

Móðir „framsóknardrengsins“ í VMA opnar sig um Sigmund Davíð: „Þarna er sökudólgurinn“
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Stórfurðu­legt mál kom upp á Akureyri í gær en þar var Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vísað úr Verk­mennta­skóla Akur­eyrar að sögn skóla­stjóra hans fyrir að skemma myndir og varn­ing frá öðrum flokkum í skól­anum. Mið­flokk­ur­inn hafði tekið þátt í pall­borðsum­ræðum í skól­anum fyrr um dag­inn.

Sig­mundur Davíð þver­tekur fyrir þetta og segir skóla­stjór­ann ljúga og gaf í skyn á Facebook og í sam­tali við Mbl.is að það sé vegna þess að skóla­stjór­inn hafi verið neð­ar­lega á fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Heim­ildir Mannlífs herma að fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins hafi verið beðnir um að yfir­gefa skól­ann.

Seint í gær­kvöldi steig svo Guðríður Bald­vins­dóttir fram á sjón­ar­sviðið með færslu um atvikið en Baldvin Ein­ars­son, sonur Guðríðar, var á staðnum og segir hún að fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins hafi upp­nefnt son hennar fyrir að spyrja krefj­andi spurn­inga.

Ætlar ekki að kjósa Framsóknarflokkinn

„Í dag fékk Baldvin Ein­ars­son sonur minn við­ur­nefnið “fram­sókn­ar­dreng­ur­inn*” í VMA. Það voru samt ekki hans sam­nem­endur sem fundu upp á þessu stór­sniðuga upp­nefni, heldur fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins í kjör­dæm­inu.

*reyndar ber frá­sögnum ekki saman; sumir segja að hann hafi verið kall­aður fram­sókn­ar­fá­vit­inn eða fram­sókn­ar­djöf­ull­inn“,“ skrifar Guðríður á Facebook.

„Svolítil for­saga. Á okkar heim­ili er mikið rætt um póli­tík nú í aðdrag­anda kosn­inga. Við erum hér fjögur með kosn­inga­rétt, sem munum vænt­an­lega kjósa amk 3 mis­mun­andi flokka sem spanna allt póli­tíska lit­rófið. Kannski eiga fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins því ekki að venj­ast að ræða póli­tík við börnin sín eða önnur ung­menni. Allavega. Í dag þá mættu fram­bjóð­endur allra flokka í VMA til að kynna sig og sín stefnu­mál fyrir ungum kjós­endum. Kannski hafa þeir ekki átt von á bein­sk­eittum spurn­ingum en í pall­borðsum­ræðum beindi Baldvin einni til fram­bjóð­anda Mið­flokks­ins sem var eitt­hvað á þessa leið. ”Ég er með spurn­ingu til Mið­flokks­ins. Mið­flokk­ur­inn talar mikið um tolla­mál og álögur í land­bún­aði. Var það ekki rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs sem stóð fyrir síð­ustu tolla­lækkun á inn­fluttum mat­vælum/land­bún­að­ar­vörum?”. Sá fram­bjóð­andi sem sat fyrir svörum við­ur­kenndi að hún vissi ekki svarið, sem ég virði fyrir heið­ar­leik­ann. Svarið er að undir tolla­samn­ing­inn 2015 skrif­uðu starfs­maður utan­rík­is­ráðu­neytis (sendi­herra) fyrir hönd utan­rík­is­ráð­herra sem  þá var Gunnar Bragi Sveins­son, og starfs­maður atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis fyrir hönd Sigurðar Inga sem var þá ráð­herra þess mála­flokks. Þeir sátu í rík­is­stjórn undir stjórn Sig­mundar Davíðs for­sæt­is­ráð­herra. Eitthvað mis­lík­aði öðrum fram­bjóð­endum Mið­flokks­ins spurn­ingin, enda þótti einum á fimm­tugs­aldri við hæfi að koma að máli við tæp­lega tví­tugan dreng sem er að fara að kjósa til Alþingis í fyrsta sinn og segja að þetta hafi hann nú greini­lega beint heiman frá sér. Hvort við­kom­andi hafi verið að ýja að því að Baldvin hafi verið beð­inn um að spyrja þess­arar spurn­ingar af föður sínum veit ég ekki, en óneit­an­lega var verið að tala niður til Baldvins eins og hann gæti ekki haft sjálf­stæðar skoð­anir eða haft frum­kvæði að því að spyrja. Í raun held ég að það skipti ekki máli hvaðan stað­reynd­irnar koma því sjaldn­ast er það mál­staðnum til fram­dráttar fara í mann­inn en ekki mál­efnið.  En nú að upp­nefn­inu. Baldvin var að klára tíma eftir hádegið þá frétti hann og félag­arnir að Sig­mundur Davíð og með­fram­bjóð­endur væru komnir í hús. Baldvin og félagar fóru ekki sam­tímis úr kennslu­stof­unni og einn félag­inn fór á undan. Þegar hann gengur fram heyr­ist í einum fram­bjóð­anda Mið­flokks­ins “þarna kemur fram­sóknar dreng­ur­inn/fávit­inn/djöf­ull­inn”. Félaginn ber af sér sakir og þegar Baldvin gengur út skömmu seinna glymur aftur í fram­bjóð­anda Mið­flokks­ins “þarna er söku­dólg­ur­inn”.  

Þetta er sagan af því þegar son­ur­inn fékk við­ur­nefnið Fram­sókn­ar­dreng­ur­inn. Það sorg­lega er að hann ætlar ekki einu sinni að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn!“

Guðríður birti einnig mynd­ina sem er hér fyrir neðan með eft­ir­far­andi texta: „Skjáskot úr mynd­bandi þar sem Sig­mundur Davíð áritar mynd af fram­bjóð­endum í 1.og 2.sæti fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sem hann hafði áður teiknað á skegg og dökkar auga­brúnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina