Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elías Vilhjálmur er látinn

Elías Vilhjálmur er látinn
Elías er fall­inn frá

Elías Vil­hjálmur Ein­ars­son veit­inga- og leið­sögu­maður lést 27. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn á Sólvangi í Hafn­ar­firði, 81 árs að aldri.

For­eldrar Elíasar voru hjónin Gunn­þór­unn Erlings­dóttir, hús­móðir og Einar G. Guð­munds­son, járn­smiður. Systur Elíasar eru þær: Kristín Svein­björg, f. 1933, sem hefur búið í Osló frá 1956. Hún á eina dóttur og einn son. Hafdís Ein­ars­dóttir, f. 1935, d. 2024, en hún bjó lengst af í Reykja­vík. Hún eign­að­ist tvo syni og eina dóttur.

Elías ólst upp á Frakka­stíg 24 með stór­fjöl­skyldu sinni í föð­ur­ætt, en afi hans byggði húsið. Hann gekk í Aust­ur­bæj­ar­skóla og fór síðan í Alþýðu­skól­ann á Eiðum, þaðan sem hann lauk gagn­fræða­prófi 1958. Hann útskrif­að­ist sem fram­reiðslu­maður frá Hótel- og veit­inga­skól­anum 1964, hlaut skip­stjórn­ar­rétt­indi hin minni 1973, einka­flug­manns­rétt­indi 1984 og útskrif­að­ist sem leið­sögu­maður frá Leið­sögu­skóla Mennta­skól­ans í Kópavogi 2016. Á starfs­ferli sínum vann Elías við ýmis fram­reiðslu­störf á hót­elum og veit­inga­stöðum bæði hér­lendis og erlendis, var á öllum gerðum fiski­skipa og báta og starf­aði um tíma sem flug­þjónn hjá Air Viking. Hann stofn­aði og rak Krem­gerð­ina um ára­bil og var starfs­maður í Arn­ar­hvol. Hann var for­stöðu­maður Ráð­stefnu­sala rík­is­ins í Borg­ar­túni 6, Rúg­brauðs­gerð­inni, í 27 ár og ann­að­ist rekstur Hótel Val­hallar á Þing­völlum á árunum 2002 til 2005.

Eftir að Elías hætti veit­inga­rekstri starf­aði hann sem leið­sögu­maður, sem hann hafði mikla ánægju af. Hann bjó yfir ein­stakri frá­sagn­ar­gáfu og var frá­bær sögu­maður. Hann var fróður um land og þjóð, stálminn­ugur og með sér­stakan áhuga á nor­rænni goða­fræði. Á yngri árum keppti Elías á skíðum og var alla tíð góður skíða­maður. Hann spil­aði brids með félögum sínum að minnsta kosti einu sinni í viku og var einnig mik­ill golfari, á meðan heilsan leyfði. Árið 2019 fór Elías að finna fyrir mátt­leysi í fótum og greind­ist með MND-sjúk­dóm­inn árið 2020. Hann naut umönn­unar heima með hvíld­ar­inn­lögnum inn á milli næstum til ævi­loka en dvaldi undir það síð­asta á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi þar sem hann lést. Hugurinn hélst skarpur og frjór alla tíð og naut sköp­un­ar­gáfan sín í ljóða- og kvæða­gerð eftir að lík­ams­þrekið þvarr.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Elíasar er Ólöf G. J. Eyj­ólfs­dóttir (f. 1942), hús­móðir, sem starf­aði einnig með Elíasi í Rúg­brauðs­gerð­inni. Börn Elíasar eru Þórunn Scheving, dós­ent (f. 1966), gift Ragnari G. Krist­jáns­syni, og eiga þau einn son. Sóley, fram­kvæmda­stjóri (f. 1967), gift Hilmar Jónssyni, og eiga þau fjögur börn. Eyjólfur Einar, mat­reiðslu­mað­uri (f. 1971), giftur Sigríði Kristínu Helga­dóttur, og eiga þau fjórar dætur. Helgi Fannar, flug­vél­tæknir (f. 1974), í sam­búð með Lísu Sólrúnu, og eiga þau saman sex börn. Laufey, lista­kona (f. 1979), og á hún tvö börn. Langafa börnin eru sex tals­ins.

Elías verður jarð­sung­inn 19. des kl. 13:00 í Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina