Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bendir á seinheppinn samning Icelandair við Southwest Airlines: „Blekið var vart þornað …“

Bendir á seinheppinn samning Icelandair við Southwest Airlines: „Blekið var vart þornað …“

Kristinn Hrafns­son bendir á sein­heppni Icelandair í nýrri Facebook-færslu.

Rit­stjóri Wikileaks, Kristinn Hrafns­son bendir á sein­heppni Icelandair sem í vik­unni und­ir­rit­aði starfs­samn­ing við banda­ríska flug­fé­lagið Southwest Airlines:

„Icelandair var sein­heppið í vik­unni.

Á mið­viku­dag und­ir­rit­aði flug­fé­lagið með pompi og pragt (og brosi á hvers manns vörum) í sendi­herra­bú­stað Íslands í Washington, sam­starf­samn­ing við banda­ríska flug­fé­lagið Southwest Airlines. Send var út frétta­til­kynn­ing með mynd af þess­ari hátíð­legu athöfn og í fjöl­miðlum á Íslandi á fimmtu­dag var vitnað í hana þar sem segir að Southwest sé stærsta flug­fé­lagið þar í landi í inn­an­lands­flugi og að samn­ing­ur­inn „..muni gefa við­skipta­vinum tæki­færi á góðum teng­ingum á milli leiða­kerfa flug­fé­lag­anna tveggja“.“

En hvað var svona sein­heppið við samn­ing­inn? Kristinn bendir á að amer­íska flug­fé­lagið var sama dag kært af sam­göngu­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna fyrir sak­næma van­ræsklu:

„Blekið var vart þornað á samn­ingnum á mið­viku­dag þegar Sam­göngu­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna (DoT) þing­festi dóms­mál gegn Southwest vegna sak­næmrar van­rækslu með því að bæta ekki úr krónískum sein­k­unum á flugi sem stöf­uðu af óraun­hæfum flug­á­ætl­unum félags­ins. Með þess­ari van­rækslu hafi flug­fé­lagið valdið neyt­endum umtals­verðum skaða.

Máls­höfð­unin, þar sem kraf­ist er bóta­greiðslna, er vænt­an­lega eitt af síð­ustu emb­ætt­is­verkum Pete Buttigieg, sam­göngu­ráð­herra í rík­is­stjórn Bidens for­seta. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu er haft eftir ráð­herr­anum að „flug­fé­lög hafi lag­skyldu að tryggja að flug­á­ætlun þeirra veiti ferða­löngum raun­sæja brott­farar- og komu­tíma. Aðgerðir dags­ins sendi þau skila­boð til allra flug­fé­laga að ráðu­neytið sé reiðu­búið að höfða dóms­mál til að tryggja vernd far­þega“.“

Að lokum segir Kristinn frá svolitlu sem gerir tíma­setn­ingu samn­ings­ins enn pín­legri:

„Sagt var skil­merki­lega frá þess­ari máls­höfðun í fréttum í Banda­ríkj­unum enda nokkur tíð­indi.

Þessi óheppi­lega tíma­setn­ing samn­ings­ins verður enn háð­ug­legri þegar skoð­ast að ein helsta flug­leiðin þar sem Soutwest sinnti ekki að bæta úr krónískri seinkun í sínum áætl­unum var einmitt til og frá Baltimore fug­velli sem sér­stak­lega er getið í til­kynn­ingu Icelandair sem sér­lega hag­felldur ávinn­ingur fyrir far­þega félags­ins sem þurfi tengiflug.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina