Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn kvartar yfir áhugaleysi RÚV: „Það væri eðlilegra ef Ríkisútvarpið gerði seríu um Samstöðina“

Björn kvartar yfir áhugaleysi RÚV: „Það væri eðlilegra ef Ríkisútvarpið gerði seríu um Samstöðina“
Björn Þor­láks­son Mynd: Skjáskot

„Rúvarar voru í Kast­ljós­inu að birta skemmti­legt sjón­varps­við­tal við Dr Football. Aldeilis gaman. En frétta­deild Rúv hefur enn ekki minnst á að nýlegur fjöl­mið­ill í almanna­eigu sé að sigra landið og miðin. Ég er að tala um Sam­stöð­ina.“ Þannig hefst reiði­lestur Björns Þor­láks­sonar, rit­höf­undar og fjöl­miðla­manns Sam­stöðv­ar­innar sem hann birti á Facebook í gær­kvöldi. Þar kvartar hann yfir áhuga­leysi hans gamla vinnu­staðar, Rík­is­út­varps­ins, á sjón­varps­stöð­inni sem hann vinnur hjá nú. Hann heldur áfram:

„Sjón­varps­stöð sem þjón­ustar tug­þús­undir lands­manna í viku hverri með frum­legum efn­is­tökum en er ein­hverra hluta vegna þó ekki við­ur­kennd af Rúv nema kannske í örlitlum hluta menn­ing­ar­deildar Rásar 1.

Aldrei hefur frétta­deild Rúv dottið í hug að taka við­töl við fólkið sem vinnur á Sam­stöð­inni eða fjallað um stöð­ina. Sem að mínu viti vinnur þó ansi frétt­næma vinnu frá degi til dags, vinnu sem sum­part hefur breytt við­miðum lands­manna svo um munar.“

Segir Björn að það gæti orðið vand­ræða­legt fyrir RÚV ef rík­is­mið­ill­inn hundsi Gunnar Smára Egilsson og félaga hans á Sam­stöð­inni og stingur upp á að RÚV geri seríu um hann og Sam­stöð­ina.

„Ég hef í heilt ár beðið eftir að Gunnar Smári Egilsson, öfl­ug­asti fjöl­miðla­maður þjóð­ar­innar, fái heim­sókn frá frétta­deild Rúv. Að hundsa hans vinnu og félaga er að mínu mati orðið mjög vand­ræða­legt fyrir frétta­deild Rúv. Það væri eðli­legra ef Rík­is­út­varpið gerði seríu um mann­inn og Sam­stöð­ina fremur en að reyna að láta eins og Sam­stöðin sé ekki til.“

Þá segir Björn að starfs­menn Sam­stöðv­ar­innar heyri dag­lega hrós frá hinum og þessum um hið mikla ágæti fjöl­mið­ils­ins en þurfi svo að „lúta í gras fyrir Dr. Football“:

„Sá tími er lið­inn að Rúv ráði hvaða hlið skuli standa opin fyrir upp­lýs­ingum. En áhuga­vert hefur verið fyrir okkur starfs­menn Sam­stöðv­ar­innar að heyra dag­lega í sund­laug­inni, kjör­búð­inni og á förnum vegi margs konar hvatn­ingu um að Sam­stöðin sé mögu­lega áhuga­verð­asti fjöl­mið­ill sam­tím­ans en svo þurfi Sam­stöðin sem hlað­varp að lúta í gras fyrir Dr Football er kemur að áherslum frétta­deildar Rúv. Þögnin ein. Og er Sam­stöðin þó ekki bara hlað­varp heldur líka útvarp, sjón­varp, frétta­vefur – nán­ast allt!“

Björn spyr síðan hvað hann fái fyrir „þessa nauð­ung­ar­á­skrift“ hjá RÚV og hvort rík­is­fjöl­mið­ill­inn þjón­usti ekki lengur almenn­ing:

„Afsakið en fyrir hvern er þetta almanna­út­varp aftur? Hvað fæ ég fyrir þessa nauð­ung­ar­á­skrift? Af hverju þarf ég að greiða laun starfs­manna sem mér finnst að standi sig ekki? Þjón­ustar Rúv ekki lengur allan almenn­ing? Þjón­ustar Rúv ekki háa sem lága – upp og niður – til vinstri og hægri?Getur það verið satt að Rúv fái þús­und sinnum meira opin­bert fé árlega en Sam­stöðin? Plús allar aug­lýs­ing­arnar.Er Rúv þá þús­und sinnum betri fjöl­mið­ill en Sam­stöðin?Er kannske hægt að segja frétta­stefnu almanna­út­varps­ins upp?Getur maður beðið um nýja?“

Að lokum biður Björn um „aðeins meira sjálfs­traust“ á gamla vinnu­stað sinn:

„Væri hægt að biðja um aðeins meira sjálf­traust inn á minn gamla vinnu­stað, frétta­deild Rúv, þótt þar séu enn nokkrir snill­ingar, gamlir og góðir félagar.Mætti kannske biðja um aðeins minni ótta hjá hinum svoköll­uðu stjórn­endum frétta­deild­ar­innar…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu