Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Anna gleðst yfir veðrinu en hefur áhyggjur af ársuppgjörunum: „Þið eigið alla mína samúð í dag“

Anna gleðst yfir veðrinu en hefur áhyggjur af ársuppgjörunum: „Þið eigið alla mína samúð í dag“
Anna Krist­jáns­dóttir Mynd: Facebook

Anna Krist­jáns­dóttir hefur engar áhyggjur af veðr­inu framundan enda er blessuð blíðan með lög­heim­ili á Tenerife.

Í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni talar vél­stjór­inn og þjóð­ar­ger­semin Anna Krist­jáns­dóttir um veðrið á Tenerife og fjár­fest­ingar. Í fyrri hluta færsl­unnar, sem hún birti á Facebook í morgun, er veðrið henni hug­leikið en hún segir Íslend­inga eiga alla hennar samúð en app­el­sínugul við­vörun er yfir öllu land­inu nú þegar lægð nálg­ast landið óðfluga.

„Dagur 2003 – Blessuð blíðan.

Mikið er nú gott að vera stödd hér suður í höfum í blíð­skap­ar­veðri og laus við áhyggjur af veðr­inu á Íslandi. Þetta er ein af ástæð­unum fyrir því að ég vildi breyta húsa­leigu­samn­ingnum frá ára­mótum yfir á mitt sumar. Að flytja til Íslands um hávetur er svo fjarri mér að ég get vart hugsað þá hugsun til enda.

Til að fyr­ir­byggja allan mis­skiln­ing, þá gerði ég mér grein fyrir því miðað við lögin frá því í des­em­ber 2023, að afnám per­sónu­af­slátt­ar­ins  yrði mér nán­ast um megn miðað við líf­eyr­is­greiðsl­urnar mínar og því yrði ég að flytja heim­il­is­festið til Íslands og hugs­an­lega einnig sjálfa mig. Með því að þetta ákvæði var afnumið með laga­breyt­ingu fyrir jólin 2024 liggur mér ekk­ert á lengur og mun von­andi eiga tvö til þrjú ár til við­bótar  hér í Paradís.

Það er samt fremur svalt hér þessa dag­ana, hit­inn rétt skríður yfir 20°C á dag­inn og fer niður í 15°C á nótt­unni. Þið hin sem búið á Íslandi eigið svo alla mína samúð í dag og á morgun, en von­andi fer allt vel.“

Í seinni hluta dag­bók­ar­færslu Önnu talar hún um árs­upp­gjör en hún á hlut í nokkrum fyr­ir­tækjum, þar á meðal Icelandair.

„Nú er komið að árs­upp­gjörum fyrir okkur fjár­fest­ana. Enn einu sinni veldur árs­upp­gjör Icelandair mér von­brigðum þrátt fyrir að for­stjór­inn hafi talað upp vænt­ing­arnar.  Ef mig mis­minnir ekki, hefur Icelandair ekki greitt út arð síðan 2017 frekar en 2018. Eru kannski of margir milli­stjórn­endur á of háum launum? Kannski kom­inn tími til að hrista upp í hópnum og bæta kjör þeirra sem eru á gólf­inu eða í háloft­unum, fólk­inu sem vinnur verkin?“

Þá talar Anna um önnur fyr­ir­tæki sem hún á hlut í en upp­gjörið er mis­gott hjá þeim eins og gengur og ger­ist.

„EIK er með jákvæðar nið­ur­stöður og kannski örlítil aukn­ing á arði úr þeirri átt­inni, en Eimskip sýnir verri afkomu en áður. Það er eðli­legt úr því félagið lét Fær­ey­ing­ana um að ná til sín bíla­flutn­ing­unum og þá í gegnum Þor­láks­höfn. Næstu dag­ana munu félögin birta árs­reikn­ing­ana hvert af öðru og vafa­laust mun bros mitt breikka eftir því sem gróð­inn verður meiri, en ann­ars verður fýlu­svipur.“

Anna segir að fjár­magnstekjur hennar eftir skatta í fyrra hafi verið lægri en síð­ustu tvö ár á undan og að hún hefði allt eins getað geymt pen­ing­inn inn á banka­bók.

„Fjár­magnstekjur mínar eftir skatta í fyrra voru lægri en bæði 2022 og 2023 þrátt fyrir aukn­ingu hluta­fjár­eignar minnar. Ég hefði alveg eins getað geymt aurana mína inni á banka­bók og fengið meira í vexti og ekki hefur Icelandair aukið við vonir mínar. Ég á hluti í nokkrum félögum sem hafa gefið gott af sér svo það er óþarfi að örvænta strax, en samt. Að eiga hluti í tíu félögum er alveg nóg fyrir gamla konu sem lifir af líf­eyr­is­sparn­aði og fjár­magnstekjum og sleikir sól­ina suður í höfum ell­efu mán­uði árs­ins.

If you can´t beat them, join them!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu