Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tæplega þrjátíu ára gamalt morðmál frá Skotlandi leyst: „Nei, mamma, Robbie var blautur“

Tæplega þrjátíu ára gamalt morðmál frá Skotlandi leyst: „Nei, mamma, Robbie var blautur“
Blessuð sé minn­ing hennar. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Tæplega þrjá­tíu ára gam­alt morð­mál í Skotlandi hefur nú verið leyst. BBC sýnir brátt heim­ild­ar­mynd um málið.

Þann 25 ágúst árið 1996, fannst lík hinnar fjórtán ára gömlu Caroline Clachan í ánni Leven í Vestur Dun­barton­skíri í Skotlandi. Það var ekki fyrr en árið 2023 að morð­ingjar hennar fund­ust.

Little Archie Wilson var dæmi­gerður fjög­urra ára gam­all drengur, fullur af orku og upp­á­tækjum. En sunnu­dag­inn 25. ágúst 1996 var eitt­hvað að, hann svaf fram að hádegi. Yngri bróðir hans, Jamie, var líka í fasta­svefni þegar mamma þeirra, Betty Wilson, kom heim og sá barn­fóstru þeirra þurrka gegn­blautu bux­urnar hans Archie við eld­inn.

Barn­fóstran, Andrew Kelly sagði henni að Archie hefði pissað á sig og að stór pollur hefði blettað glæ­nýja teppið hennar. En eitt­hvað gekk ekki upp, og það myndi taka næstum 30 ár fyrir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn að afhjúpa hinn skelfi­lega sann­leika. Nú mun ný BBC- heim­ild­ar­myndin Murder Trial: Girl in the River kafa ofan í málið sem hneyksl­aði þjóð­ina.

Börnin á heim­il­inu yfir­gáfu íbúð­ina í Renton, í Vestur Dun­barton­skíri um mið­nætti með fjórum ung­lingum. Þeir sneru heim innan við klukku­stund síðar í félags­skap morð­ingja.

Í innan við 1,6 kíló­metra fjar­lægð lá skóla­stúlkan Caroline Glachan, 14 ára, en and­litið snéri niður í ánni Leven. Hún hafði orðið fyrir mörgum og hrotta­legum höggum í höf­uðið. Lík hennar fannst síð­degis, sama dag og Margaret móðir hennar átti 40 ára afmæli.

Í mörg ár var nöfnum Robbie O’Brien, Donnu Marie Brand, Andrew Kelly og kær­ustu Kelly,  Söruh Jane O’Neill heit­innar, hvíslað um þorpið. En hóp­ur­inn hélt fast í fjar­vist­ar­sönnun sína og hélt því fram að þaur hefðu eytt nótt­inni í íbúð Betty Wilson á 12 Allan Crescent-götu þar sem þau pössuðu börn.

Sú lygi vernd­aði þau í ára­tugi. En Aðal rann­sókn­arteymi Skotlands opn­aði málið aftur í júní 2019, þar sem Stuart Grainger, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, leiddi leit­ina að rétt­læt­inu.

Rann­sak­endur höfðu engar upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum í hönd­unum, engin DNA sönn­un­ar­gögn og ekk­ert morð­vopn. Hinir grun­uðu höfðu ekk­ert skilið eftir sig. Teymið sneri sér að vitna­skýrslum. Mörg hugs­an­leg vitni höfðu lát­ist en þeir sem eftir voru voru sjálfir orðnir for­eldrar. Og í þetta skiptið voru þeir til­búnir að tala.

Eitt vitni skipti mestum sköpum en það var Linda Dorrian, sem hafði búið á efri hæð­inni frá Betty Wilson árið 1996. Hún minnt­ist þess að hafa verið heima með 10 ára dóttur sinni nótt­ina sem morðið var framið og beðið eftir að kvik­mynd myndi hefj­ast á mið­nætti. Það var þá sem hún heyrði úti­dyra­hurð­ina opn­ast.

Þegar hún gægð­ist út, sá hún fjóra ung­linga fara, með tveggja ára Jamie í vagni og fjög­urra ára Archie í eft­ir­dragi. Þeir héldu í átt að ánni Leven.

Í fyrsta skipti hafði lög­regla sönnun fyrir því að gengið hefði yfir­gefið húsið um nótt­ina. Rétt eftir mið­nætti sögð­ust að minnsta kosti sex manns hafa heyrt skað­ræð­isöskur frá ánni Leven.

„Þetta var stelpa,“ rifjar eitt vitnið upp. „Hún var að öskra: „Ég sagði það ekki! Ég sagði það ekki!“ Um 40 mín­útum síðar sá Linda Dorrian klík­una snúa aftur, að þessu sinni voru þeir í miklu upp­námi.

„Þau skellt hurð­inni,“ sagði hún. „Þá var öskrað: „Þetta átti ekki að ger­ast! Það gekk of langt! Hvernig mun þetta líta út?“ Svo komu orðin sem enn ásækja hana: „Ungarnir! Ungarnir! (e. the weans, skoskt orð oft notað fyrir ung börn).“

Kven­maður grét stjórn­laust. Caroline Glachan hafði verið lokkuð til dauða síns.

Robbie O’Brien, sem þá var 18 ára, hafði verið að deita Caroline en hann var einnig að hitta hina 17 ára Donnu Marie Brand, sem var ólétt á þeim tíma. O’Brien, sem lög­reglan lýsti sem „ofbeld­is­fullum ein­elt­is­seggi“, var ótt­aður í sam­fé­lag­inu.

Hann ákvað að mæla sér mót við Caroline á Black Bridge-brúnni á mið­nætti. Það yrði síð­asta ferð hennar.

Besta vin­kona Caroline, Joanne Menzies, hafði grát­bað hana um að fara ekki. En hún gerði það samt. Þegar hún fannst var það of seint.

Í krufn­ing­unni komu í ljós að minnsta kosti tíu meiðsl á höfði eftir högg, umfangs­mikið höf­uð­kúpu­brot og merki um að hún gæti hafa verið á lífi en með­vit­und­ar­laus þegar hún féll í vatnið. Það voru engin eit­ur­lyf eða áfengi í blóði hennar.

Móðir hennar, Margaret, gaf átak­an­legan vitn­is­burð fyrir dómi og end­ur­lifði sárs­auk­ann við að missa einka­dóttur sína. En það voru orð fjög­urra ára barns sem myndu loks­ins inn­sigla örlög morð­ingj­anna.

Þegar Betty Wilson sneri heim að morgni morðs­ins fann hún barn­fóstr­una Kelly einan. Nokkrum klukku­stundum síðar, þegar Archie vakn­aði, spurði hún hvort hann hefði pissað teppið.

„Nei, mamma,“ sagði hann. „Robbie var blautur.“ Þessi sak­lausa yfir­lýs­ing varð mik­il­vægt sönn­un­ar­gagn.

Seinna sagði Archie lög­reglu að hann hefði verið tek­inn „niður að Leven“ og hefði séð Caroline verða fyrir árás. Hann lýsti því að ein­hver sem heitir Robbie hafi slegið hana með „staf og stöng“ áður en henni var ýtt í vatnið.

Og svo, hroll­vekj­andi smá­at­riði sem eng­inn gat hunsað: „Hann tal­aði um að hún hefði verið lamin og verið með málm í aug­anu,“ sagði lög­reglu­mað­ur­inn Grainger. „Hvernig veit þessi litli drengur það nema hann hafi verið þarna?“

Mik­il­vægt er að Archie gaf þessar yfir­lýs­ingar áður en lík Caroline hafði fund­ist. „Hvernig veit hann að stúlka var barin og henni hent í Leven?“ spurði Grainger. „Vegna þess að hann sá það.“

Í mörg ár var málið óleyst, að hluta til vegna þess að fjöl­skylda O’Brien fór með völd á svæð­inu. „Það var raun­veru­legur ótti við að tjá sig,“ sagði Grainger. „Fólk var hrætt við hann.“

Morð­ingja­gengið, O’Brien, Brand og Kelly, voru allir fíkni­efna­neyt­endur, sem stund­uðu búð­ar­þjófnað til að fjár­magna neyslu sína. Heróín hafði eyði­lagt bæinn og mörg vitni í mál­inu lifðu óreiðu­kenndu lífi.

En þrátt fyrir lygarnar, hræðsl­una og ótt­ann náði rétt­lætið þeim loks­ins. Nú hafa þrjú verið dæmd fyrir morðið á Caroline, næstum þremur ára­tugum síðar.

For­eldr­arnir fagna dómnum.

Mirror fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife