Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Unnur Helga Gunn­ars­dóttir. Mynd: Facebook

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu.

Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu.

Eftir tæp­lega 20 ára hjóna­band skildu hjónin Unnur og Jói árið 2017.

„Það var nátt­úru­lega langur aðdrag­andi að skiln­að­inum okkar Jóa,“ segir Unnur í við­tal­inu og heldur áfram. „Og traustið var auð­vitað löngu farið. En ég meina, þetta voru bara ynd­is­leg ár og ég er mjög þakk­lát fyrir það allt. Svo tók við mjög erf­iður tími. Skiln­að­ur­inn var mér mjög þung­bær. Það að stíga sam­tímis út úr hjóna­bandi sínu og einnig út úr fyr­ir­tæk­inu sínu, sem hafði verið ástríða manns og lifi­brauð í þetta langan tíma, var bara mjög stórt.“

Segir Unnur að hún hafi lifað og hrærst í fyr­ir­tæk­inu og að það hafi ekki verið á plan­inu að skilja.

„En stundum ganga hlut­irnir bara ekki upp og það er bara þannig. Og lífið fer með mann inn í alls­konar ævin­týri.“

Aðspurð hvort hún hafi verið lengi að jafna sig á skiln­að­inum svarar Unnur: „Já, ég var alveg lengi að jafna mig og ég var alltaf að setja súr­efn­is­grím­urnar á alla nema sjálfa mig. Af því að ég var svo ákveðin í að standa mig, ég var svo ákveðin í að vera fyr­ir­mynd.“ Segist Unnur oft hafa fengið að heyra hvað hún væri dug­leg en hún byggði sér meðal ann­ars glæsi­legt hún eftir skiln­að­inn. „En það var allt í klessu inn í mér. Ég var með blæð­andi sár og mér leið bara ekki vel.“

Unnur segir að í fyrstu hafi það hjálpað henni að byggja húsið en svo kom að skulda­dögum. „Smá saman blæddi mér svo­lítið út“.

Hugvíkkandi efni

Sig­ur­laug spyr Unni hvernig henni hafi tek­ist að kom­ast á betri stað en það var vinur Unnar sem hjálp­aði henni með það. „Það kom að máli við mig kær ást­vinur og sagði mér frá hug­víkk­andi efnum. Ég hafði aldrei á ævinni heyrt um það eða ef ég hafði ein­hverjar skoð­anir á því, var ég bara með for­dóma. En þegar hann segir mér frá þessu þá bara finn ég í hjarta mínu að þetta er leið sem ég þarf að fara. Ég hugs­aði „þetta er leiðin þín, aftur heim, þarna er ljósið þitt“. Og ég sem sagt fór þessa leið, að prófa hug­víkk­andi efni. Þessi mið­aldra kona í Kópavogi sem fór út í bæ og fékk sér hug­víkk­andi efni.“

Unnur sagð­ist ekki hafa þorað að segja börn­unum frá þessu, hún hafi dauð­skamm­ast sín fyrir þetta. „En ég var aldrei ótta­slegin. Ég steig inn í þetta í svo mik­illi ein­lægni og æðru­leysi. Og ég vissi og treysti Guði. Þannig að ég fékk alveg afskap­lega mikið út úr þessu. Ég komst aftur heim og fékk bara mig í fangið.“ Svo fór að lokum að Unnur sest­ist niður með börn­unum því hún vildi ekki fela neitt fyrir þeim en það kom henni á óvart hversu upp­lýst þau voru um þessa hluti og hafi ekki verið með neina for­dóma. Segir hún mikla vakn­ingu vera meðal ungs fólks í dag um þessi mál.

Sig­ur­laug spyr Unni út í ferlið.

„Ég kom mér í sam­band við ákveð­inn með­ferð­ar­að­ila en það er mjög nauð­syn­legt að gera það. Og svo er hægt að horfa á mynd­ina How to Change Your Mind á Netflix, hún er afskap­lega fræð­andi. Og það er nauð­syn­legt að hitta ein­hvern sem kann til verka og veit um hvað þetta snýst, bæði áður, á meðan og ekki síst eftir. Þessi efni eru ekki fyrir alla, það þarf að fara gæti­lega að þeim og umgang­ast þau með virð­ingu.“ Unnur seg­ist hafa fengið stórt ferða­lag, eins og þetta kall­ast. „Ég fékk svo stórt ferða­lag. Ég sá hvernig myrkrið fór út úr mér og hvernig ljósið fór inn í mig.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið á vef­síðu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu