Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Syst­urnar Hanan og Misk slös­uð­ust illa í sprengju­árás Ísraela í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza.

Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT!

Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var til í sam­starfi Össurar Krist­ins­sonar og Félags­ins Ísland – Palest­ína. Frá árinu 2009 hafa verið farnar nokkrar ferðir með efni í gervi­fætur sem Össur Krist­ins­son heit­inn hann­aði og fór hann sjálfur í fyrstu ferð­ina með gervi­fætur til Gaza. Sjaldan hefur þörfin fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu verið meiri á Gaza en nú eftir stans­lausar sprengju­árásir síð­ustu 15 mán­uði. Þúsundir barna og full­orð­inna hafa misst útlimi og þarfn­ast gervi­lima. Félagið Ísland-Palest­ína stefnir á að senda hið fyrsta stoð­tækja­smið til Gaza og efni í gervi­fætur fyrir 100 börn og 100 full­orðna. Félagið mun njóta vel­vildar og stuðn­ings Össurar ehf. til að hrinda þessu verk­efni í gang að nýju.

Hvetur félagið félags­menn til að fjöl­menna á þessa glæsi­legu tón­leika og leggja þar með þess­ari mik­il­vægu söfnun félags­ins lið.

Miðaverð er 5900 kr.
Miðasala fer fram hér

Einnig er hægt að leggja söfn­un­inni lið með því að leggja inn á neyð­ar­söfnun Félags­ins Ísland-Palest­ína
Kt. 520188-1349 Banki: 542-26-6990

Hér má lesa um verk­efnið Gervi­fætur til Gaza:

Meira um Gervi­fóta­verk­efni Félags­ins Ísland-Palest­ínu i sam­starfi við Össur og ALPC:

Frum­kvöð­ull­inn Össur Krist­ins­son fór fyrstu ferð­ina með gervi­fætur til Gaza í maí 2009, ásamt stoð­tækja­smið­unum Óskari Þór og Johan Snyder frá Suður-Afríku. Ferðin var farin í sam­vinnu við Félagið Ísland-Palest­ína, sem hélt síðan verk­efn­inu áfram, en ævin­lega með stuðn­ingi Össurar. ALPC (Artificial Legs and Polio Center), Gervi­lima­stöðin á Gaza, hefur verið sam­starfs­að­ili félags­ins á svæð­inu frá fyrstu tíð. Sveinn Rúnar Hauksson læknir og fyrr­ver­andi for­maður FÍP hefur séð um þetta verk­efni af hálfu FÍP frá upp­hafi en fór þangað síð­ast haustið 2018 með efni í gervi­fætur og þá með aðstoð PCRF (Palest­ínska Barna­hjálp­ar­sjóðs­ins) við að kom­ast inn á svæðið. Nú kallar ástand mála meir en nokkru sinni á að gervi­fætur séu sendir til Gaza, en upp­finn­ing Össurar felur í sér að hægt er að smíða gervi­lim á klukku­stund við hvaða aðstæður sem er. FÍP mun með stuðn­ingi Össurar ehf. fara eins fljótt og aðstæður leyfa með efni í 100 gervi­fætur fyrir börn og 100 fyrir full­orðna. Óskar Þór Lárusson mun smíða og leið­beina eins og áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu