Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ef bændur ætla ekki að standa vörð um eigin hagsmuni þá mun enginn gera það fyrir þá

Ef bændur ætla ekki að standa vörð um eigin hagsmuni þá mun enginn gera það fyrir þá

Við­mæl­andi Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni er Gunnar Þor­geirs­son, for­maður Bænda­sam­tak­anna. Gunnar hefur rekið Gróð­ar­ar­stöð­ina Ártanga á sam­nefndri jörð í Gríms­nesi frá því að hann og kona hans byggðu þar nýbýli árið 1986.

Gunnar tók við á erf­iðum tímum fyrir Bænda­sam­tökin en Hótel Saga ehf. sem rak sam­nefnt hótel og var í eigu Bænda­sam­tak­anna varð lýst gjald­þrota síðla árs 2021. Spurður hvort Covid-19 hafi sett hót­elið á haus­inn játar Gunnar því og kallar málið allt eina sorg­ar­sögu „það eru ýmis kenni­leiti til árs­ins 2020 sem gerir það að verkum að þetta varð í raun­inni ekki að neinu. Það er líka umhugs­un­ar­vert að þegar menn fara inn á Bún­að­ar­þing, sko hvað er þetta 2017 frekar en 2016, með sam­þykkt kauptil­boð frá stjórn inn á Bún­að­ar­þing sem fellir þetta með örfáum atkvæðum. Síðan eftir það þá er farið í ýmsar ráð­staf­anir sem að leiða það að verkum að nán­ast allt eigið fé er brunnið upp til ösku. Farið í heil­mikið við­hald og end­ur­bætur sem kost­uðu umtals­verða fjár­muni og ég held að þetta hafi ekki verið góð ráð­stöfun.“

Spurður út í starf­semi Bænda­sam­tak­anna vekur Gunnar athygli á því þegar bún­að­ar­gjald var afnumið, frá og með gjald­ári 2018 í kjöl­far dóms Mann­rét­inda­dóm­stóls Evrópu um iðn­að­ar­mála­gjald, og það stillt á núll er í dag eng­inn Bjarg­ráða­sjóður og enn fremur litlir sem engir pen­ingar til rann­sókna­sjóð­anna „rann­sóknir, til­raunir og kyn­bætur – þetta fór allt út með því að setja bún­að­ar­gjaldið í núll! Og svo segja menn að við verðum að reka Bænda­sam­tökin á fram­lögum bænda eða sem sagt bændur reka sitt félags­kerfi, gott og vel, en ég held að menn hafi bara ekk­ert hugsað þetta alla leið á þeim grunni að veltu­tengt bún­að­ar­gjald var 1,2% af allri veltu í íslenskum land­bún­aði og tekj­urnar sem Bænda­sam­tökin höfðu á þessum tíma á þessum grunni voru um 800 millj­ónir króna. Á þessu ári erum við að berj­ast við að ná endum saman með um 180-190 millj­ónir króna í félags­gjöldum frá bændum og þá eigum við eftir að reka allt til­rauna­starfið og allt hitt. Ég segi nú bara að ég held líka að bændur þurfi að horfa til þess að ef bændur ætla ekki að standa vörð um eigin hags­muni þá mun eng­inn gera það fyrir þá.“

Þeir verða að standa á bak­við Bænda­sam­tök Íslands ef þeir ætla að hafa ein­hvern sam­eig­in­legan málsvara í slagnum. Það er bara þannig; standa sem heild í því.

Um hlut­verk Bænda­sam­tak­anna segir Gunnar „Bænda­sam­tök Íslands eru í raun og veru hags­muna­sam­tök bænda um hvernig eru lög og reglur um aðbún­að­ar­hætti og eft­ir­lit og reglu­gerðir um starfs­leyfi þeirra sem þurfa starfs­leyfi. Svo sam­talið við rík­is­valdið um hvernig við útfærum búvöru­samn­inga.“

Það er álit Gunnars að búvöru­samn­ingar ættu að vera end­ur­skoð­aðir einusinni á ári í stað þess að vera gerðir á tíu ára fresti þar sem nú er uppi ger­breytt staða. Milli end­ur­skoð­un­ar­á­kvæða áranna 2019 og 2023 hafi ýmis­legt breyst eins og hækk­anir á aðföngum til land­bún­aðar og áburð­ar­verð í sögu­legu hámarki. Til lausna á áburð­ar­vand­anum stingur Gunnar upp á að umfram sú orka sem fellur til við álf­ram­leiðslu og fyr­ir­hugað er að nýta til vinnslu raf-elds­neytis verði jafn­framt nýtt til áburð­ar­fram­leiðslu enda þurfi þær verk­smiðjur sem vinna raf-elds­neyti litlar við­bætur til að fram­leiða áburð einnig.

Spurður út í byggða­málin lítur Gunnar svo á að Íslend­ingar séu vel­vilj­aðir íslenskum land­bún­aði og að Íslend­ingar kjósi frekar að sjá blóm­legar byggðir og slegin tún en arfa og ill­gresi „

það er ekki alveg gott að stýra byggða­þróun með fram­leiðslu­styrkjum sko. Ef við ætlum að hafa landið í byggð sem all­flestir eru sam­mála um þá þurfum við að gera það í gegnum stuðn­ing um byggð og byggðir. Eini byggða­stuðn­ing­ur­inn er kannski greiðslu­mark í sauðfé en þú ætlar kannski ekk­ert að vera þar sko. Þá segi ég bara og hvernig ætla menn þá að veita byggða­stuðn­ing í þessum dreifðu byggðum sem eiga undir högg að sækja.“

Gunnar nefnir svo að við sem þjóð og fram­leið­endur land­bún­að­ar­vara ættum frekar að ein­blína á hágæða vöru til útflutn­ings en ekki líta til þess að fram­leiða þús­undir tonna af lamba­kjöti til Banda­ríkj­anna.

Við eigum að vera í gæða­vöru sem er fram­leidd með hreinu íslensku vatni, engum sýkla­lyfjum og á þeim grunni eigum við að geta pres­enterað vör­una.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu