Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lilja sáli undirbýr fólk fyrir tripp: „Við erum búin að byggja dýragarð utan um okkur“

Lilja sáli undirbýr fólk fyrir tripp: „Við erum búin að byggja dýragarð utan um okkur“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er sál­fræð­ing­ur­inn Lilja Sif Þor­steinssdóttir. Lilja sem stendur á bak­við sál­fræði­þjón­ust­una Heils­hugar hefur feng­ist við ýmis­legt innan hefð­bund­innar sál­fræði. Heils­hugar virð­ist samt sem áður bjóða upp á nýj­unga­gjarnar aðferðir hvað varðar and­lega heilsu og heilun.

Lilja Sif Þor­steins­dóttir

Tjáskipti trjáa

„Heils­hugar er svona bata­miðað rými með skaða­minnk­andi áherslum þar sem að ég er að blanda saman þessum top down aðferðum og bottom up aðferðum,“ sagði Lilja aðspurð um fyr­ir­tæki hennar, Heils­hugar.

Sem dæmi um aðferðir má nefna trommu­hringi­Hún Lilja vill meina að takt­ur­inn sé gíf­ur­lega áhrifa­ríkt­verk­færi þegar kemur að and­legu heil­brigði. Að beina athygli að trommuslætti eins og um ákveðna mön­tru eða end­ur­tekn­ingu sé að ræða, segir hún hjálpa okkur að kom­ast í svo­kallað „flow state“, sem er það ástand sem við þjálfum upp í hug­leiðslu.

Hún vildi meina að allt þetta flæði upp­lýs­inga og hraði sam­fé­lags­ins sé í raun aðeins að auka á fjar­lægð­ina á milli okkar og með­bræðra og -systra í sam­fé­lagi. Í trommu­hringj­unum skap­ast vett­vangur fyrir fólk til þess að leika af fingrum fram og leyfa sköp­un­ar­kraft­inum að flæða, í hópi fólks, sem stuðlar að ákveð­inni sam­still­ingu og teng­ingu milli þátt­tak­enda. Segir hún enn­fremur að nútíma­mað­ur­inn lifi í sam­fé­lagi sem hann hafi ekki verið hann­aður fyrir og auð­vitað líði honum því ekk­ert vel. Svo spyr hún bræð­urna hvort þeir kann­ist við hug­takið „Wood wide web“ sem hún líki þessu við. Þegar þeir neita því svarar hún þeim. „Wood wide web vísar til þess að ef þið horfið á skóg af trjám þá lítur þetta út fyrir að vera sam­an­safn af ein­stak­lingum en ef að þið kíkið undir svörðin ofan í mold­ina kom­ist þið að því að öll þessi tré eru rosa­lega tengd í rótar- og sveppa­þráða­kerfi. Þar í gegnum tala þau saman, þau senda nær­ingu og skila­boð til vina. Þau gera ekki manna­mun heldur trjáa­mun, þau senda nær­ingu mest til for­eldra og svo til systk­ina,“ segir Lilja og bætir svo við: „Ef að þau fá pest í sig geta þau sent til vina ekki bara að þau séu með pest heldur hvers­konar pest þau eru með svo þau geti myndað mótefni. Það eru heilu stríðin sem eru háð þarna á milli teg­unda í formi efna­vopna­árása, alveg rosa­lega mikil tjá­skipti í trjám. Mér finnst þetta svo góð lík­ing fyrir okkur því við mann­fólkið erum eins og trén. Teng­ingin á milli okkar, hún sést ekki en hún er ofboðs­lega mikið til staðar og þarf ekki nema eitt nei­kvætt eða jákvætt orð og það fer allt af stað inni í okkur. Þetta er allt það sama, ef ég fer aftur að líkja okkur við plöntur, ef þú ert ekki með rétta jarð­veg­inn og réttu nær­ing­una til þess að þríf­ast þá þrífstu ekki. Sam­fé­lagið er ekki hannað fyrir okkur,“ segir Lílja og þegar hún segir okkur, þá meinar hún fyrir okkur mann­eskjur sem heild.

Áföll eru áverkar á taugakerfið

Gunnar spurði Lilju út í það sem hann telur að sé grunnur alls ásetn­ings í hvers­konar leit að hjálp í þessum efnum en það eru ein­fald­lega áföll eða áfalla­eind­irnar sem sitja innra með okkur vegna óupp­gerðrar for­tíðar. Fortíð sem svo mótar okkur og öll okkar við­horf til lífs­ins og sam­ferða­fólks okkar. Lilja vildi meina að áföll sem mikið er talað um í dag í hinu og þessu sam­hengi sé í raun ekk­ert annað en áverki, áverki á tauga­kerfi sem svo fram­kallar áfram­hald­andi skaða á flestum ef ekki öllum sviðum lík­ama og hugar. Minn­ingar sem við berum innra með okkur í ár eða ára­tugi geta orðið að eins­konar staf­rænum trufl­unum og er í raun ban­eitrað og þá oft í formi eins­konar rang­hug­mynda því sagan ein­fald­lega breyt­ist með tím­anum ásamt því að vera filt­eruð í gegnum ófull­komið til­finn­inga­líf. Einn stór hræri­grautur óupp­gerða sagna og atburða sem móta okkur miklu meira en hver og einn oft­ast gerir sér grein fyrir.

„Það sem ég meina með áverka er að bara ein­fald­lega það að það sem við erum að vinna með er ekki hlut­ur­inn sem gerð­ist heldur sporin sem sitja eftir í lík­ama og heila við­kom­andi.“

Sagði hún að með því að vinna rétt úr minn­ingum, reynslu sem við höfum orðið fyrir, náum við stað þar sem minn­ingin sem slík er aðeins innra með okkur sem reynsla og stundum dýr­mæt reynsla en ekki eitt­hvað sem við upp­lifum sem óþægi­lega og hræði­lega, þannig að við þurfum ekki lengur að upp­lifa sárs­auka í hvert skipti sem minn­ingin kemur upp.

„Það sem þetta snýst um er svo­lítið að taka þessa til­finn­inga­hleðslu úr minn­ing­unni, þú getur svo­lítið fundið hver hleðslan er með því að hugsa til baka. Færðu ennþá þessi lík­am­legu við­brögð, kjána­hroll­inn eða skelf­ing­una eða ógeðið eða hvað sem er? Þá þýðir það að eitt­hvað tauga­net veit ekki að þetta er búið.“

Lilja sagði að oft átti fólk sig ekki strax á því að það hafi orðið fyrir áfalli.

„Það er oft sem fólk er kannski ekki átta sig á fyrir en löngu seinna að það hafi lent í ein­hverjum erf­iðum hlutum, en það er að bregð­ast við for­tíð­inni í nútíð­inni. Það kannski ger­ist eitt­hvað smá­vægi­legt en það springur upp í til­finn­ingu sem er kannski ekki alveg í sam­ræmi við það sem gerð­ist og þá er það oft að atvikið hefur trig­gerað tauga­kerfið og við förum beint í varn­ar­kerfið.“

Lilja Sif Þor­steins­dóttir

Hugvíkkandi efni ofmetin í meðferðum

Úr þess­ari umræðu um heilun áfalla og úrvinnslu á reynslum, barst talið að nám­skeiðum sem sál­fræði­þjón­usta hennar, Heils­hugar bíður upp á. Eitt slíkt nám­skeið ber heitið Stuðn­ings­nám­skeið fyrir ferða­langa. Gunnar spyr Lilju hverjir þessir ferða­langar eru og hvert ferð­inni sé heitið. Nám­skeiðið er und­ir­bún­ings- og úrvinnslu­vinna fyrir ein­stak­linga sem leggja af stað í eins­konar ferða­lög með hjálp hug­víkk­andi efna. Þau hug­víkk­andi efni sem um ræðir eru öll ólög­leg og því und­ir­strik­aði Lilja að aldrei undir neinum kring­um­stæðum mælir hún með notkun þess­ara lyfja eða efna við neinn mann né hefur nein tengsl við þá aðila sem fram­kvæma svo sjálfa athöfn­ina. Hún aðeins und­ir­býr í sam­tali við­kom­andi eins vel og hún getur undir ferða­lagið sem framundan er og tekur svo við við­kom­andi að ferða­lagi loknu þar sem hjálp frá fag­að­ila er oft bráð­nauð­syn­leg og oft á tíðum van­metin í þessum málum.

„Oft er það þannig að sham­anar eru að vinna með eitt eða tvö efni, þannig er svona traditional en svo á Vest­ur­löndum er fólk kannski meira allt í blandi í poka. Þá erum við komin aðeins úr þess­ari þús­unda ára notkun þar sem að sham­an­inn virki­lega þekkir sitt efni og vinnur með sitt efni. Sambýli við þann anda sem býr í efn­inu.“

Gunnar taldi upp þau hug­víkk­andi efni sem um ræðir í þessum með­ferðum hér á landi. LSD, MESCALIN (PAJOTE EÐA KAKTUS), DMT (AYAHUASCA), PSILOCYBIN (SVEPPIR), KETAMIN og MDMA, svo eitt­hvað sé nefnt. Lilja segir að auð­vitað út í heimi séu efnin meira ein­angruð við ein­hver ákveðin svæði eða mörg þús­und ára hefðir þess vegna en á Vest­ur­lönd­unum sé oft mun meiri flóra og úrval þess­ara efna, því hefðin er ein­fald­lega ekki með okkur og því bara allt tekið. Hún vildi meina að í mjög mörgun til­fellum þar sem fólk er að fara aftur og aftur á hin og þessi tripp með hinum og þessum aðilum og hinum og þessum efnum sé fólk í raun ekki að vinna vinn­una sem þarf til ef raun­veru­leg úrvinnsla eigi að eiga sér stað. Hún vill meina að þessi efni séu gríð­ar­lega öflug og geti unnið mikið gagn en ef þau séu ekki notuð rétt þá geti þau alveg eins unnið mik­inn skaða.

„When you get the message, hang up the phone, og ef að fólk er að fara aftur og aftur í þessar serómón­íur þá hef ég það svo­lítið á til­finn­ing­unni að fólk sé ekki að vinna vinn­una því þessi lyf eru ekki töfra­lyf. Þau geta sýnt þér hvar þú átt að vinna og svo byrjar ferða­lagið.“ Þess vegna er það sem með­ferð­ar­vinnan fyrir og eftir ferða­lag skiptir ekki minna máli, og í raun meira máli, en ferða­lagið sjálf. 

Lilja segir bræðr­unum frá upp­hafi MDMA í para­með­ferðum.
„Það er gaman frá því að segja varð­andi MDMA að þetta var notað í para­með­ferðum í mörg ár áður en þetta var bannað og þegar þetta var bannað árið 1985, þá var fimm dóm­ara panill og það voru allir sam­mála um það að banna þetta til afþrey­ingar en leyfa þetta áfram í með­ferð­ar­til­gangi en það var einn dóm­ari sem beitti neit­un­ar­valdi. Þess vegna höfum við ekki geta haft aðgang að þessu efni í með­ferðum síðan.“

Höfum byggt dýragarð í kringum okkur

Lilja vonar að notkun og beit­ing hug­víkk­andi efna í heil­un­ar­til­gangi verði á end­anum raun­hæfur val­kostur og við­bót við hefð­bundin geð­lyf. Lyf á borð við SSRI, ADHD lyf, róandi og kvíða­still­andi segir hún að geti alveg gert eitt­hvað gagn í ein­hverjum til­fellum en eins og allt annað eru þau engin töfra­lausn ef úrvinnslan á sér ekki stað. Hún sagði í við­tal­inu að lyfja­iðn­að­ur­inn hafi í raun ekki sýnt fram á mikla fram­þróun í þessum efnum síð­ustu hálfa öld hér um bil.

„Það sem að þyrfti að ger­ast til að losna við alla þessa lyfja­gjöf þá þyrftum við nýja sam­fé­lags­gerð, við erum í dýra­garði bók­staf­lega, við erum búin að byggja dýra­garð utan um okkur.“

Lilja von­ast eftir áfram­hald­andi vit­und­ar­vakn­ingu í málum hug­víkk­andi efna og að notkun þeirra fari smátt og smátt að koma inn sem raun­hæfur mögu­leiki fyrir þá sem kjósa að fara þá leið. 

„Það er verið að afglæpa­væða þetta á mörgum stöðum í heim­inum. Sko, þegar þetta er gert á réttan hátt þá er þetta að gefa miklu meira en þetta er að taka,“ sagði Lilja um fram­tíð­ina er snertir lög­leið­ingu á hug­víkk­andi efnum í með­ferð­ar­til­gangi. „Ég hef þá trú að með fleiri rann­sóknum og með fleiri laga­breyt­ingum úti í heimi, þá verði Ísland að fylgja með.“

Gunnar spyr hana Lilju hvort hún telji að lyfja­fyr­ir­tækin vilji raun­veru­lega lækna sjúk­linga sína og hvort hug­víkk­andi efni séu að fara að leysa almenn geð­lyf af hólmi.

„Til að svara þess­ari spurn­ingu bara beint þá held ég að lyfja­fyr­ir­tækin vilji bara alls ekki missa kúnn­ana sína,“ svar­aði Lilja og bætir svo við:

„Yfir­leitt í rann­sóknum er þetta talið sem eitt af mik­il­væg­ustu augna­blikum lífs þíns og jafn­vel ofar fæð­ingu fyrsta barns að taka svona efni, þetta er rosa­lega stór lífs­reynsla en þetta er ekki töfrapilla. Ef að þú breytir engu í umhverf­inu þínu og ef að þú breytir engu í hegðun þinni… ég meina, það sem þessi efni gera er að þau leyfa heil­anum að tala meira saman og allt í einu getur þú farið að sjá hluti frá fleiri sjón­ar­hornum en þú hefur aðgang að í venju­legu vit­und­ar­á­standi. Það koma fleiri teng­ingar á milli tauga­fruma, það er í raun­inni það sem nám er, þegar nýjar teng­ingar verða. Ef þú svo ekki við­heldur þessum nýju teng­inum með alls­konar leiðum, festir þessar breyt­ingar í sessi, jú þá bara rýrna þær aftur.

Lífið fyrir og eftir „ferðalagið“

Gunnar spurði hana hvað hafi ollið því að hún hafi ákveðið að fara þessa leið sjálf sem lærður sál­fræð­ingur, leið sem oft innan hins akademíska heims hefur mætt vissum for­dómum. Hún segir að úts­lagið hafi verið þegar hún sjálf fór í svo­kallað ferða­lag og að í hennar til­felli upp­lifir hún eins og hægt sé að tala um líf hennar fyrir og eftir ferða­lagið, svo mikil áhrif hafði það á hana. Hún hafi í kjöl­farið sökkt sér í lestur á bókum og rann­sóknum á þessum lyfjum ásamt því að sækja sér nám­skeið og reynslu frá fleiri stöðum. Út frá þess­ari reynslu ásamt greini­legri þörf sem er að skap­ast með auknum fjölda ferða­langa innan hins hug­víkk­andi heims hafi hún ákveðið að taka þessi skref af hug­rekki en með fag­mann­legri nálgun þar sem engin afsláttur er gefin hvað varðar lög og siða­reglur.

„Til að svara því hve langt ég má ganga þá þarf ég að halda mig innan ramma lag­anna og ég þarf að halda mig i innan ramma siða­regln­anna og það er einmitt þetta, ég get komið að því sem ger­ist á undan og ég get komið að því sem ger­ist á eftir en allt sem hefur með efnin sjálf að gera er bara lokuð bók fyrir mig.“

Viðtalið má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt því að finn­ast á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu