Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Húðflúrari og BDSM áhugamaður: „Ég hef húðflúrað talsvert af kynfærum kvenna“ EKKI FYRIR VIÐKVÆMA

Húðflúrari og BDSM áhugamaður: „Ég hef húðflúrað talsvert af kynfærum kvenna“ EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
Boff í öllu sínu veldi. Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium er eng­inn annar en Boff Konkerz. Boff er húð­flúr­meist­ari frá London sem býr yfir mörgum sér­kennum og ein­stæðum hæfi­leikum. Boff er mik­ill Íslands­vinur enda búinn að venja komu sína til Íslands síð­ustu ár með mjög reglu­legu milli­bili í þeim til­gangi að húð­flúra land­ann.

Boff Konkerz

„Ég kem úr umhverfi þar sem var mikið pönk rokk og ég ein­hvern­vegin aldrei verið drifin áfram á löngun í mikla pen­inga eða efni­hyggju almennt. Ég man þegar ég var lítil í Bret­landi, það var mikið atvinnu­leysi á Tatcher árunum og ég man að ég spurði mömmu á hverju þetta atvinnu­lausa fólk lifði eig­in­lega. Mamma sagði að ríkið gæfi þeim pen­inga og ég hugs­aði engin spurn­ing, það er það sem ég vil gera þegar ég er orðin stór,“ segir Boff er hann ræðir upp­hafið.

Ekki týpískur húðflúrari

Kúnna­hóp­ur­inn hans Boff er frekar sér­stakur hvað stíl varðar, Boff nefni­lega sér­hæfir sig í vél­lausum húð­flúrum. Stílinn sem ber heitið Machine free tattooing eða Stick and poke sem fer þannig fram að hann notar í raun bara sér­stakan penna með áföstum nálum sem hann svo notar til að koma blek­inu inn undir húð skjól­stæð­ings­ins. Allt gert í höndum, ekk­ert raf­magn eins og helst tíðkast í hefð­bund­inni húð­flúr­list.

Fallega skeyttur lófi og rúm­lega það.

„Ef þið skoðið mikið af fang­elsis húð­flúrum sjáið þið að þeir búa til vélar þarna inni úr raf­magns­rak­vélum til dæmis. Vanalega þegar talað er um þetta stick and poke tattoo þá tengir fólk það við svona eitt­hvað hobby sem gert er heima í stofu eða í fang­elsum,“ segir Boff við bræð­urna.

Hann er með tryggan hóp fastakúnna sem koma til hans aftur og aftur með jöfnu milli­bil. Sjálfur er Boff nán­ast flúr­aður um allan lík­ama, það eina sem vantar upp á er undir ilj­arnar og höfuð, meira að segja við­kvæm­ustu staðir Boffs eru flúraðir en það fer hann inn á í við­tal­inu. Spurður út hvort höf­uðið og and­lit séu eftir svarar Boff ákveðin að svo verði ekki. Hann kann vel við þennan kontr­ast sem mynd­ast í þessu sam­spili hreins and­lits og flúri upp fyrir háls­mál.

Boff í öllu sínu veldi.

„Svolítið eins og í gam­alli James Bond mynd þar sem kona var gull­húðuð og dó, það er ekki svo­leiðis með húð­flúr. Það að húðin geti ekki andað fyrir húð­flúrum er bara goð­sögn og ekki satt. Mér líkar alls ekki við hug­mynd­ina um að húð­flúr­ari sé ekki þungt húð­flúr­aður sjálfur, mér finnst ekki að maður eigi að gera hluti við fólk sem maður er ekki til­búin að gera við sjálfan sig,“ segir Boff og heldur áfram: „Ég er húð­flúruðar nán­an­ast alls­staðar nema á haus og and­liti sem og á ilj­unum, bók­staf­lega alls­staðar ann­ars­staðar.“

Er Davíð spyr hann hvort einka­stað­irnir séu húð­flúraðir segir Boff svo vera en þeir séu þó  enn í vinnslu. „Ég hef húð­flúrað tals­vert af kyn­færum kvenna, það er frekar auð­veld.“

Þetta þykir sumum fal­legt.

Bræð­urnir spyrja Boff hve langt maður kemst hvað varðar kven­kyns kyn­færi og Boff seg­ist í raun getað flúrað eins langt og maður kemst með verk­færin.

Hræðist ekki sársauka

Boff virð­ist ekki hræð­ast né forð­ast sárs­auka eins og flestir kannski gera í hefð­bundnum skiln­ingi. Hann hefur einnig verið síð­ustu árin mjög virkur í BDSM senu Lundúna sem og heim­sótt við­burði og dýflissur um allan heim. Konan hans Boff er atvinnu Dom­in­at­rix eða sárs­auka­gjafi í London sem þýðir að hún veiti fólki þjón­ustu sem kannski fólk fær ekk­ert endi­lega full­nægt heima hjá sér. Alls­konar kink eru í gangi þarna úti og nefnir Boff sem dæmi að kúnni gæti þess vegna pantað tíma eða tvo í svo­kall­aða fóta­dýrkun þar sem fætur eru til­beiðnir á fjórum. Tám troðið í and­lit, tær og fætur sleiktar og nefnir hann að í þessu sam­hengi geti kyn­ferð­is­leg spenna orðið þannig að full­næg­ing ein­fald­lega komi að sjálfu sér óháð ytra áreiti á kyn­færum.
Hins­vegar þurfi svo ekk­ert að vera að athöfnin sé kyn­ferðs­leg, hvort sem um er að ræða fóta­dýrkun, fleng­ingar eða hvað eina. Hann tal­aði meira að segja um við­burð sem hann fór á fyrir nokkru síðan þar sem gengið var hart að fólki með fullu sam­þykki. Fólki blæddi á gólfið því bar­smíð­arnar voru svo miklar og spennan sem mynd­að­ist var ekk­ert endi­lega kyn­ferð­is­leg heldur var líkt og æðra sviði úforíu hefði náðst.

„Þetta með kynörvun­ina er athygl­is­vert, til dæmis þegar ég fór um dag­inn á við­burð sem heitir Corporal pun­is­h­ment night þar sem fólk var virki­lega barið og pínt harka­lega, blóð út um allt, mjög harka­legt en það var engin sjá­an­leg kynörvun á bak­við gjörn­ing­inn og engin sjá­an­leg kyn­mök eða neitt slíkt en los­unin var klár­lega eins og svona end­or­fín losun.“

Boff í góðra vina hópi.

„Atvinnu dom­in­at­rix bíður upp á alls­konar þjón­ustu innan BDSM. Stundum er þjón­ustan ein­ungis á net­inu en oft­ast fara við­skiptin fram í dýflissum viðs­vegar í stór­borgum sem hægt er að leiga fyrir BDSM hitt­ing með atvinnu­mann­eskju. Sumir vilja aðeins láta sparka í pung­inn á sér, sumir vilja láta stinga sig með nálum, láta binda sig, mögu­leik­arnir eru enda­lausir,“ segir Boff spurður út í það hvað felst í því að vera atvinnu dom­in­at­rix.

Davíð spyr Boff hvort það séu margar atvinnu dom­in­at­rixar á Íslandi. Boff sagði svo ekki vera og svar­aði Davið þá að það hlyti þá að vera miklir mögu­leikar til staðar eða „gap in the market“ eins og hann orð­aði það.

Krókar komu einnig til tals en hann sagð­ist kannski ekki vera mað­ur­inn til að ræða þetta í þaula en sagð­ist þó hafa orðið vitni að svona athöfnum og meira að segja tekið þátt í að útfæra athöfn í eitt skipti. Það sem þarna fer fram er til dæmis að flug­beittum krókum, 6-8 mm þykkum er ein­fald­lega þrýst í gegnum húð og fólk svo híft upp með tal­íum. Ýmist á einum krók eða nokkrum, allt eftir reynslu og löngun hvers og eins. Fólk dinglar svo bara þarna í ein­hvern tíma, oft í því­líku sælu­á­standi þar til því er svo slakað niður aftur, krók­arnir teknir út og sárin saumuð saman. 

Hann segir að þetta hafi verið gert hér á landi en ekki hafi verið margir sem voru til­búnir í þetta ferli sem var fram­kvæmt af erlendum sér­fræð­ing í þessum málum. „Suspension eða það sem þið talið um, það að hengja fólk upp í krókum er í raun ekki hluti af kinki. Þetta er svo­lítið sér á báti þar sem fólk hitt­ist á svona við­burðum og lætur hengja sig eða horfir á fólk hengt upp á krókum. Alls­konar, mikið í gegnum húð­ina á bak­inu og þá ýmist með einum krók eða fleirum. Algengt er að krókar séu settir í gegnum húð á baki og kannski öxlum og svo er fólk híft upp með talíu. Fólk virð­ist upp­lifa eins­konar úfor­íska eða and­lega upp­lifun en ekki kyn­ferð­is­lga örvun í þessum aðstæðum.“

Gunnar spyr Boff hvort það þurfi að skera húð­ina svo hægt sé að koma krók­unum fyrir. „Nei alls ekki, krók­arnir eru flug­beittir, þykk­astir geta þeir verið í kringum 6-8 mm, þeir þurfa að vera sterkir svo þeir geti borið lík­aman, þeir eru super beittir og málið með húð, það er ekk­ert mál að skera húð en ómögu­legt að rífa hana svo þegar krók­arnir eru í gegnum húð­ina myndi fólk halda að auð­velt væri fyrir krók­ana að rífa sig lausa en það er ekki séns, ger­ist aldrei.“

Fatalínan SATANAL

Boff hefur hafið hönnun og fram­leiðslu á eigin fata­línu sem hann kallar SATANAL. Þetta verk­efni segir hann að sé ein af þeim mörgu áttum sem sem hann hefur farið í gegnum tíð­ina án þess að vita né setja neina kröfu á fyr­ir­fram ákveðna útkomu. Hann sé ein­fald­lega bara komin af stað með þetta og þetta lofi góðu og sé farið að skila sér, fata­lín­una má sjá hér. https://www.instagram.com/officialsatanal/

Hann sagði að tískan og tengslin sem húð­flúrin hafa við BDSM eða kink heim­inn séu tals­verð en fljót­andi samt sem áður. Flóran sé ein­fald­lega svo viða­mikil því allt er nán­ast leyfi­legt svo lengi sem virð­ing og mörk séu í hávegum höfð. Hann til dæmis klæðir sig tals­vert í kvenn­manns­föt við ýmis til­efni og engin venju­leg kvenn­manns­föt. Við erum að tala um að Boff til að mynda gæti fundið upp á því að klæða sig sem satanísk nunna eða í rautt pils eftir eigin hönnun með mynd af risa­stórri rassainns­tungu (e. butt plug) framan á með öfugum kross í miðri rassainnstung­unni.

Boff í klæðn­aði sem hann bjó til sjálfur. Takið eftir öfuga kross­inum inni í rassainnstung­unni.

Boff nefni­lega skil­greinir sig sem satanista þó án þess að til­heyra neinum skipu­lögðum hóp í þeim efnum. Hann seg­ist ekki vera til­bú­inn að til­heyra neinum hóp því þar liggi einmitt kúg­unin sem hann upp­lifi svo oft í kringum skipu­lögð trú­ar­brögð eins og kristni, Islam, Búddisma eða Hindu­isma, svo eitt­hvað sé nefnt. Hann vill meina að ef maður les satönsku bíbl­í­una sem gefin var út árið 1969 af Anton Szandor LaVe kom­ist maður að því að þar liggi einmitt sjálf­skær­leik­ur­inn því sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt­ur­inn og sjálf­bærnin er færð mann­inum. Þar er ein­fald­ega eng­inn guð nema innra með hverjum og einum, mörkin séu þar afstæð og undir hverjum og einum að setja þau, allt sé í raun leyfi­legt nema þá að mörk ann­arra séu brotin.

Sjálfsákvörðunarrétturinn í hávegum hafður í satanisma

„Satan­ismi fyrir mér er þegar eng­inn eða ekk­ert getur sagt þér hver þú ert eða hver þú átt að vera, kyn­ferð­is­lega, lík­am­lega. Það er satan­ismi. Ég afneita ykkar guð, ég er minn eig­inn, ég ákveð hver mín reynsla er en ekki kerfið ykkar,“ segir Boff og bætir við: „Svona í lokin vil ég segja að ef þið hafið áhuga á kynna ykkur satan­isma frekar byrjið að lesa satönsku bibl­í­una eftir Anton LaVe, hún gæti komið ykkur á óvart.“

Þegar hann talar um sjálfá­kvörð­un­ar­rétt hvers og eins yfir eigin lík­ama, tekur hann það sem gott dæmi þegar fólk ákveður í þess­ari senu að brenni­merkja sig, þekkt sem „brand­ing“, koma fyrir aðskota­hlutum úr rið­fríu járni undir húð sem kall­ast „Inplantation“, kljúfa tungur, skera til eða fjar­læga eyru, fjar­lægja fingur eða ein­fald­lega skera getn­að­ar­limi af. Allt eru þetta dæmi um öfgar sem eru for­dæmdar og þykir umdeilt en þegar á öllu er á botn­inn hvolft er þetta sjálfá­kvörð­un­ar­réttur hvers og eins, að gera hvað sem því sýn­ist við sinn eigin lík­ama. 

„Mér finnst að fólk eigi bara að leyfa öðrum að vera það sjálft, svo ef fólk vill skera af sér fingur eða kljúfa á sér tung­una, fikta í augn­stein­unum á sér eða höggva af sér getn­aðr­lim­inn þá bara gangi ykkur vel, þetta er ykkar lík­ami. Allt svona kyn­lífstengt veistu sjálfur hvort það sé að kveikja í þér. Vandinn með svona trúað lið er að þau eru alltaf að reyna að segja þér hvað þú á að gera, mega og verða. Ég meina gerðu það sem þú vilt, ef þú vilt nota rassainns­tungu þá not­aðu rassainns­tungu en ef þú vilt ekk­ert upp í rass­gatið á þér þá bara slepptu því, gerðu það sem vilt.“

Þetta áhuga­verða við­tal við þennan sér­stak­lega áhuga­verða mann má hlusta og horfa á hér fyrir neðan í heild sinni. Viðtalið fór fram á ensku.

Instagram­síðu Boffs má sjá hér.

https://www.instagram.com/bofftattoo/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu