Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ásdís upplifði fyrsta áfallið 18 mánaða gömul: „Á þessum tíma voru uppeldishugmyndir skelfilegar“

Ásdís upplifði fyrsta áfallið 18 mánaða gömul: „Á þessum tíma voru uppeldishugmyndir skelfilegar“
Ásdís Olsen

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er engin önnur en lífskúnstner­inn Ásdís Olsen. Hér er brot úr þessu ynd­is­lega opin­skáa og flotta við­tali:

Ásdís er marg­faldur Íslands­meist­ari á skíðum, sjón­varps­kona, fyrrum flug­freyja, fræði­maður, kenn­ari og fyr­ir­les­ari á sviði jákvæðrar sál­fræði og núvit­undar og hefur sér­hæft sig í hag­nýtum aðferðum til að auka vellíðan og ham­ingju fólks. Sem sagt kona sem hefur komið víða við. Gunnar hafði orð á því í byrjun við­tals­ins hve fer­il­skrá Ásdísar væri löng og fjöl­breytt, nán­ast heill doðrantur. Sagðist Ásdís hafa verið lengi að en að hún hafi alltaf haft áhuga á „mann­legum mögu­leikum,“ (e. human potential – to live and per­form in align­ment with the hig­hest self.) sem er ákveðin hug­mynda­fræði og alltaf haft þrá til að upp­lifa það sem hægt er að upp­lifa í þessum veru­leika.

Upplifði áfall 18 mánaða

„Það getur vel verið að ég sé svo fucked up að ég er bara að leita af sjálfum mér, alltaf,“ svar­aði Ásdís með bros á vör þegar Gunnar spurði hvort hún væri með þrá­hyggjuröskun. 

Ásdís hefur stjórnað þátt­unum Undir yfir­borði á Hring­braut en þar talar hún við ein­stak­linga sem eiga það sam­eig­in­legt að vera í and­legri leit og þá oft í kjöl­far áfalla. Gunnar spurði hana af hverju hún hefði svona mik­inn áhuga á þessu mál­efni og svar­aði Ásdís að hún hafi alltaf verið leit­andi og for­vitin en að hennar eigin áföll séu þó eflaust hvat­inn í þess­ari leit hennar.

„Traumað mitt er í frum­bernsku, svo flýt ég ofan á og er mjög lukku­leg og gengur allt í hag­inn í langan tíma og hélt að ég væri bara sæl og sátt og væri að lifa góðu lífi,“ sagði Ásdís er hún segir bræðr­unum frá áfall­inu sem hún varð fyrir aðeins 18 mán­aða gömul. Segist hún hafa snert á og unnið úr áfall­inu með hjálp dáleiðslu sem og með notkun hug­víkk­andi efna í serómónísku umhverfi.

Áfallið segir hún að snúi að spít­ala­inn­lögn þegar hún var aðeins 18 mán­aða. Hún glímdi þá við veik­indi í hálsi sem kröfð­ust þess að hún yrði lögð inn á spít­ala í tals­verðan tíma. Á þeim tíma hafi ekki þótt eðli­legt að for­eldrar hennar dveldu með henni á spít­al­anum. Segir hún að þessi til­finn­ing sem hún upp­lifði í kjöl­far þess að vera yfir­gefin aðeins 18 mán­aða gömul hafi alltaf fylgd henni. Seinna þegar hún er aðeins eldri er hún send tíma­bundið á barna­heim­ili sökum anna for­eldra hennar, sem byggðu hús fyrir fjöl­skyld­una. Þá seg­ist hún aftur hafa upp­lifað þessa til­finn­ingu höfn­unar og að verða yfir­gefin.

„Fyrir þetta eitt­hvað 50 og eitt­hvað árum voru börn sem fóru á sjúkra­hús bara látin afskipta­laus, gráta og þjást og það mátti engin koma og heim­sækja þau svo að það verður svona tengsla­rof og van­traust gagn­vart for­eldrum“, sagði Ásdís og hélt áfram: „Börn voru oft sett á barna­heim­ili þegar for­eldrar voru að fara í frí og svona, svona eins og að setja þau í geymslu. Á þessum tíma voru upp­eld­is­hug­myndir skelfi­legar, það var verið að umgang­ast börn eins og skyn­lausar skepnur. Ég held að for­eldrar hafi á þessum tíma verið að gera sitt besta en gátu bara ekki betur.“

Fannst eins og hún væri að deyja

Líf Ásdísar hélt svo bara áfram og segir hún bræðr­unum frá þeim tíma­mótum sem urðu til þess að hún vakn­aði til vit­undar um að hún væri ekki hugs­anir sínar eða líðan heldur ljós sem aldrei í raun getur verið neitt annað en rými og kær­leikur. En til þess að kom­ast á þennan stað þurfti hún að upp­lifa mikla þján­ingu sem kvíð­inn við hið óþekkta olli. Ásdís segir frá því er hún var að glíma við rif­beins­meiðsl eftir að hafa fengið í sig haka og brotið rif­bein. Skömmu síðar er hún með manni sínum þáver­andi og börnum í fríi úti á landi og fær allt í einu rosa­legan sting að því er virð­ist í hjarta­stað. Ásdís fyllt­ist ofsa­kvíða og hélt hrein­lega að rif­bein hefði stung­ist í hjartað og henni myndi blæða út inn­vortis. Hún reyndi að koma sér í ein­hverjar stell­ingar en þá fannst henni eins og rif­beinin stingi einnig gat á lungun og gerði henni þar af leið­andi erfitt með and­ar­drátt. Hún í sann­fær­ingu sinni var flutt upp á sjúkra­hús en þegar skoðun hafði farið fram kom í ljós að ekk­ert amaði að henni. Hún var bara með brákuð rif­bein en heilt hjarta og heil lungu. Í kjöl­farið sótti hún Ham-nám­skeið en þar kynn­ist hún í fyrsta skipti núvit­und­ar­iðkun sem eins og sagt er hér að ofan sleit þessa sam­sömun með hug­anum og öllu sem að því kemur. Hún komst að því að það er sem hún séu í raun tvær mann­eskjur, kjarn­inn og svo hinn hverf­uli hugur.

„Ég hef oft lýst þessu kvíða­kasti sem ég fékk, algjöru panik ástandi og það ger­ist á tíma­bili þar sem allt var gott í lífi mínu, þar sem að allt var full­komið. Ég hugsa að nú stakkst rif inn í hjartað og ég er að deyja, og ég finn hit­ann og ég finn blóðið streyma út úr hjart­anu. Og þá koma lækn­arnir með þessar upp­lýs­ingar að það sé ekk­ert að mér og það verður til þess að ég fæ algjört sjokk því að þá átta ég mig á því að það er eitt­hvað mikið að mér, mikið að hausnum. Fyrsta sem ég læri er að hug­ur­inn á mér er fullur af bulli, hugur minn er alltaf að bulla í mér og að ég er ekki hugur minn, og mér fannst þetta það merki­leg­asta sem ég hafði lært í líf­inu. Ég fór upp á geð­deild og leit­aði mér hjálpar, ég bank­aði upp á og sagði það er eitt­hvað að og ég er að fá kvíða og hug­ur­inn minn er að segja mér eitt­hvað sem að er ekki rétt. Og þá er ég svo heppin að það er verið að bjóða upp á núvit­und­ar­kennslu þar inni í fyrsta skiptið fyrir fólk sem er með kvíða.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu