Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bjartmar hjólahvíslari kveður: „Þetta fólk vaknar peningalaust og „craving“ í næsta skammt“

Bjartmar hjólahvíslari kveður: „Þetta fólk vaknar peningalaust og „craving“ í næsta skammt“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er eng­inn annar en reið­hjóla­hvísl­ar­inn Bjartmar Leósson. Bjartmar sem nýlega hætti störfum sem leik­skóla­starfs­maður eftir 17 ára starf, er einna helst þekktur í sam­fé­lagi fíkla og utan­garðs­manna fyrir brenn­heita rétt­læt­is­kennd og end­ur­heimt stol­ina hjóla sem mikið er af í miðbæ Reykja­víkur, sér­stak­lega. Hér er brot úr við­tal­inu.

Bjartmar Leósson

„Það kom tíma­bil þar sem ég ákvað að bara ekki vera á bíl, hjólaði alltaf í vinn­una hálf­tíma leið og senni­lega í besta formi lífs míns þá. En bíla­dellan er sterk en ég hef það mottó að ég þurfi ekki að nota bíl til að kom­ast í vinnu, ég verð að búa nálægt vinn­unni í göngu eða hjóla­færi. Stundum er bíl­arnir bara ónot­aðir fyrir utan í nokkra daga. Ég myndi aldrei getað það verið fastur í traffík á leið í vinn­una á hverjum ein­asta degi.“

Sá þrjú rándýr hjól með hræódýra tiger lása

Bjartmar hefur haft brenn­andi áhuga á öllu sem er á hjólum síðan hann var smá pjakkur. Reiðhjól, bílar og mót­or­hjól eiga hug hans allan. Það var svo fyrir nokkrum árum að hann rakst á glæný og dýr reið­hjól fyrir utan spila­tækja­sal­inn Háspennu, en Háspenna er þekkt fyrir vissan hóp fastakúnna. Hann sá hjól í andyr­inu sem voru læst með 1.000 króna Tiger lás og átt­aði sig strax á því að hjólin væru að öllum lík­indum stolið. Bjartmar gat ekki undir nokkrum kring­um­stæðum látið eins og þessi vit­neskja hans væri ekki til staðar án þess að gera eitt­hvað í því. Hann fann sig knú­inn til að leið­rétta það sem hann sá og koma hjól­unum í réttar hendur sem og honum tókst með hjálp lög­regl­unnar, eftir smá stapp við þjóf­ana sem auð­vitað við­ur­kenndu ekki neitt. 

„Hér voru bara þessi þrjú hjól og það var bara eitt­hvað off við þetta,“ sagði Bjartmar í við­tal­inu. „Ég ákvað bara að fá lögg­una og lendi í stappi við þá í hurð­inni og stóð bara í hurð­inni bara „Nei, nei, these are sto­len bikes“ og þeir bara „No, no not sto­len.“ Loksins kom löggan og maður sem kann­að­ist við hjólið sitt og kíkti á stell­núm­erið og það pass­aði og dag­inn eftir var annar eig­andi hjóls búinn að sjá að hann átti eitt og nokkrum dögum seinna var þriðja hjólið komið í réttar hendur.“

Umgengst utangarðsfólk með virðingu

Eftir þetta atvik fór hann að líta í kringum sig og fór að taka eftir ástand­inu eins og það var, sem sagt stolin hjól út um allt í höndum utan­garðs­manna og eng­inn var að gera neitt í því, engin virt­ist sjá hvað var í gangi, ekki einu sinni lög­reglan sem að hans sögn bara keyrðu fram hjá kannski nokkrum rán­dýrum reið­hjólum læstum fyrir utan gisti­skýlið, kannsi hjól fyrir mörg hund­ruð þús­und. Þetta blöskr­aði Bjartmar og ákvað að gera eitt­hvað í því í sinni sann­fær­ingu. Hann tekur það samt fram að ástæða þess að lög­reglan er ekki að taka þennan slag er nátt­úru­lega bara mann­ekla og í því sam­hengi tal­aði Gunnar um að í Kaup­manna­höfn þar sem hann bjó hér áður fyrr væri lög­reglan nán­ast á hverju götu­horni á meðan maður snéri sér úr háls­lið ef maður sæi lög­reglu­bíl.

Það kom til tals í við­tal­inu að Gunnari fynd­ist að lög­reglan í Reykja­vík ætti að ráða Bjartmar í vinnu sem tengilið við utan­garðs­fólk og hjóla­þjófa því sam­kennd hans og tengsl við þennan hóp hefur skilað gríð­ar­legum árangri og vakið marga einmitt til sam­kenndar og hreinna sið­ferðis í þessum efnum. Hann talar um að í sumum til­fellum séu menn farnir að afhenta honum hjólin algjör­lega óum­beðnir um leið og þeir sjá að Bjartmar sé mættur á svæðið því hann hefur skipað sér svo fastan sess í þess­ari senu sem heið­ar­legur, ákveðin en kær­leiks­ríkur. Það að ein­hver eins og Bjartmar sé til­bú­inn að sjá þessa ein­stak­linga sem sjúk­linga í stað ræfla og skapa tengsl við þá gefur þeim svo mikla von og fram­kallar svo mikla virð­ingu í sam­skiptum segir Bjartmar.

Tvennskonar hjólastuldur

Talið barst að því hvort hjólin væru ein­ungis tekin svo hægt sé að kom­ast leiðar sinnar eða hvort að þau ein­fald­lega væru seld fyrir smá­pen­ing eins og almennt er verslað með þýfi ann­ars­konar. Hann segir að bæði ferlin séu í gangi, að það séu staðir hér í Reykja­vík þar sem tekið er á móti dýrum hjólum og þau eflaust tekin í sundur og þar eftir send erlendis í stút­fullum gámum. Ein­fald­lega skipu­lögð glæp­a­starf­semi sem veltir eflaust tugum ef ekki hund­ruðum millj­óna og lítil afskipti eru höfð af.

„Eitt er reið­hjóla­stuldur eins og ein­hver ung­lingur upp í Breið­holti sem vill bara kom­ast niður í bæ, maður heyrir svo­lítið um það, nappa ein­hverju hjóli og rúlla í bæinn en svo er það að fár­veikt fólk sem er búið með féló bæt­urnar fyrsta hvers mán­aðar og það þarf að redda fok­dýrum efnum og þau eru bara á ferð um bæinn, skann­andi allt, leit­andi að ein­hverju til að grípa. Bara eins og Lauga­veg­ur­inn, rétt skrapp inn í smá stund og bara boom, hjólið er farið. Við vöknum á morgn­ana og förum í vinn­una og gerum allt sem við erum að gera og fók­usum á það, þetta fólk vaknar pen­inga­laust og craving í næsta skammt, á ekki pen­ing en þarna er hjól, rad­ar­inn er bara í gangi. Fyrir jólin 2018 fannst hérna gámur með 160 hjólum á leið­inni út. Einn sagði við mig sem var í rugl­inu hérna á árum áður að í gamla daga þegar hann var að stela hjólum þá stal hann hjóli og tætti það í sundur og henti stell­inu af því að þar er ser­ial númer og þú kemur miklu meira að lausum hjóla­pörtum inn í gám en heilum reið­hjólum.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið við þennan öðling sem Bjartmar er hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu