Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Guðmundur vill miklu betri leigumarkað á Íslandi: „Það er ákveðið kúrekamentalitet ríkjandi“

Guðmundur vill miklu betri leigumarkað á Íslandi: „Það er ákveðið kúrekamentalitet ríkjandi“
Guð­mundur Arn­gríms­son Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er eng­inn annar en Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son lands­lags­arki­tekt og skipu­lags­fræð­ingur, hellu­hvísl­ari, möndlurist­ari og for­maður Samtaka leigj­enda.

Guð­mundur Arn­gríms­son

Guð­mundur, sem sjálfur er á leigu­mark­aði, hefur skellt sér á bólakaf í þessi mál með auk­inni eft­ir­spurn á eins­konar reglu­verki utan um rétt leigu­taka og rými leigusal­ans.

Mun skilvirkari leigukerfi í nágrannalöndunum

Guð­mundur segir í við­al­inu frá þræl­skipu­lögðu og skil­virku leigu­kerfi í öðrum löndum á borð við Danmörku, Noreg, og Finnland, svo eitt­hvað sé nefnt. Í raun eru ein­hvers­konar kerfi eða reglu­verk í flestum Evr­ópu­löndum, sem heldur utan um þessi mál og skilar fyrir vikið af sér heil­brigðum og vel hag­nýtum leigu­mark­aði, bæði fyrir leigusal­ann og leigu­tak­ann.

Gunnar spyr hann hvort að ekki sé von­laust að glíma við þessi há kapital­ísku öfl.

„Nei það er það ekki því við erum með svo margar góðar fyr­ir­myndir af leigu­mark­aði í norð­ur­lönd­unum, alls staðar í Norður-Evrópu og jafn­vel í Iberu­skag­anum og á Ítalíu. Á stöðum þar sem leigu­mark­að­ur­inn er bara í jafn­vægi, blússandi gangur á fast­eigna­mark­aði en þar eru bara leigj­endur varðir. Þar er reglu­verk sem tak­markar óeðli­legar hækk­anir á húsa­leigu, rétt­indi leigj­enda eru meiri sem þýðir að þú getur búið lengur í íbúð­inni. Þú ert ekki með þessa tíma­bundnu árs­samn­inga eins svo oft er hér.“

Villta vestrið

Guð­mundur vill meina að á Íslandi ríki hálf­gerð kúreka­stemn­ing þar sem lög er varða rými til hækk­unar á leigu séu svo opin að leigusal­inn geti túlkað þau sér í vil. Leigu­verð hefur hækkað gríð­ar­lega und­an­farið, sem margir vilja meina að sé í engu sam­ræmi við þróun í nágranna­ríkjum sem og að for­sendur hins frjálsa mark­aðar séu allt aðrar víða erlendis í þessum málum.

„Það er ákveðið kúreka­menta­litet ríkj­andi, þetta er til­tölu­lega fámennur hópur svona kúreka í þessu en það er af því að við erum með óreglu­væddan leigu­markað. Ef við værum með reglu­væddan leigu­markað sem tæki fyrir óeðli­legar hækk­anir á hús­leigu, við myndum bara finna eitt­hvað við­mið, getum fundið við­mið út frá verð­lags­þróun, látið hana stýra eða við­mið sem eru hlut­fall af lág­marks­launum. Í Danmörku er með­alleiga á 100 fer­metra íbúð í Kaup­manna­höfn um 37% af lág­marks­launum, hérna er það 69%. Með­alleiga á 100 fer­metra íbúð í Reykja­vík árið 2020 var 212 þús­und og þá voru lág­marks­laun 330 þús­und.“

Guð­mundur talar um að hlut­fall þeirra á leigu­mark­aði hafi hækkað gríð­ar­lega síð­ustu ár og að við séum hægt og rólega að færa okkur meira og meira úr því að kaupa okkur fast­eignir yfir í leigu­mark­að­inn sem hefur ekki upp á mikið að bjóða hér á Íslandi. Leigu­salan er búin að fær­ast úr höndum margra einka­að­ila yfir í fjár­sterk fast­eigna­fé­lög, ýmis í einka­eigu eða í eigu hlut­hafa og þar geti félögin nán­ast stýrt sínum hækk­unum sökum neyðar fólks á fast­eigna­mark­aði. Lítið sem ekk­ert er til af eignum í almennri sölu og svo hefur fast­eign­ar­verð rokið upp úr öllu valdi síð­ustu ár og nán­ast ógjörn­ingur fyrir ungt fólk í dag að kaupa sér 2-3 her­bergja íbúð nema að standa uppi með minnst 15 millj­óna króna útborgun sem fæstir hafa mögu­leika á að afla sér.

Segir Guð­mundur að þess vegna fari fólk út á leigu­markað og með tím­anum eftir því sem fólk eld­ist á leigu­mark­aði, fest­ist fólk þar og á sér enga mögu­leika á því hvorki að kaupa sér íbúð né koma sér í örugga leigu þar sem afborg­anir eru í ein­hverju sam­ræmi við hvað íbúð­ar­eig­endur eru að borga oft­ast í afborg­anir á sínum hús­næð­is­lánum. Og hvað þá með íbúð­ar­verð? Hvernig eiga leigusalar að fá sann­gjarna end­ur­gjöf sem amk rekur fast­eign­ina að stóru leiti?

Hættulegt heilsunni

„Það er nátt­úru­lega ekk­ert vit í því að vera með fólk út á leigu­mark­aðnum sem er kannski að borga 300 þús­und á mán­uði í leigu en synja því um 180 þús­und króna greiðslu­mat.“

„Það er eitt­hvað óeðli­legt með það að svona til­tölu­lega vel þén­andi fjöl­skyldu­fólk, eldra en 34 ára, bara kemst ekki burtu úr þeim aðstæðum sem það vill alls ekki vera í. Við vitum hvað við köllum sam­bönd sem þér líður illa í og þráir að kom­ast úr en getur það ekki. Þetta er óheil­brigt og skapar alls­konar vanda­mál, skapar streitu, kvíða, áfallastreitu. Þetta skapar óör­yggi hjá börn­unum. Leigj­endur eru að flytja oft og títt. Til­finn­ing­ar­legt óör­yggi í æsku hefur afgerð­andi áhrif á geð­heilsu fólks í fram­tíð­inni. Við getum ein­fald­lega ekki boðið fólki og sér­stak­lega börnum upp á þetta.“

Þetta magn­þrungna og upp­lýsandi við­tal má heyra og sjá hér á spil­ar­anum fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið finnst á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu