Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor á Hólum: „Vil sjá rannsóknarmiðstöð íslenska hestsins rísa á Hólum“

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor á Hólum: „Vil sjá rannsóknarmiðstöð íslenska hestsins rísa á Hólum“

„Ég fann fyrir svo mik­illi til­hlökkun áður en ég byrj­aði og áður en ég mætti og það hefur ekk­ert dvínað. Þannig að þetta er bara mjög skemmti­legt. Það er gott fólk þarna, mikil hefð, mikil saga, mikil menn­ing og nátt­úr­lega er skól­inn á margan hátt mjög sér­stakur,“ segir Hólm­fríður Sveins­dóttir í hlað­varps­við­tali við Guðna Ágústs­son þar sem þau ræða meðal ann­ars um Háskól­ann á Hólum og nám og fyrri störf rekt­ors­ins en hér fyrir neðan er minnst á Hóla en ann­ars fara þau um víðan völl í við­tal­inu. Hólm­fríður tók við sem rektor Háskól­ans á Hólum 1. júní.

„Það verður gaman að halda áfram að byggja upp þessi fræði­svið sem nú þegar eru og nýta grunn­inn til þess að efla skól­ann.“ Þrjár deildir eru við skól­ann: Fisk­eldis- og fiska­líf­fræði­deild, Ferða­mála­deild og og Hesta­fræði­deild. Hólm­fríður er með meistara­gráðu í nær­ing­ar­fræði frá Justus Liebig háskól­anum í Giessen í Þýska­landi og dokt­ors­gráðu í mat­væla­fræði frá Háskóla Íslands. Hún vann áður meðal ann­ars hjá Matís og svo Fisk Seafood.

Verði sjálfbærara

Hólm­fríður er spurð hvað blasi nú við og hvernig hún sjái fram­tíð­ina.

Alveg gríð­ar­leg tæki­færi hvort sem það er land­eldi, sjó­eldi eða úthaf­seldi.

„Nú er ég svo­lítið að taka stöð­una hvar hlut­irnir eru staddir og síðan að efla þessi þrjú fræða­svið en það er gríð­ar­lega góður og mik­ill grunnur á öllum þessum þremur fræða­sviðum. Fisk­eldið er sú atvinnu­grein á Íslandi sem er að fara að skapa okkur lík­leg­ast hvað mest útflutn­ings­verð­mæti. Það eru skiptar skoð­anir um fisk­eldið en það verður ekk­ert aftur snúið; við byggjum hér upp fisk­eldi. Það þarf bara að ná ákveð­inni sátt og það verður gert að mínu viti með því að gera þetta aðeins sjálf­bær­ara – meira í sátt við nátt­úr­una og sam­fé­lögin og þar eru tæki­færi fyrir Háskól­ann á Hólum. Alveg gríð­ar­leg tæki­færi hvort sem það er land­eldi, sjó­eldi eða úthaf­seldi.“

Þannig að þú gengur for­dóma­laus inn í þetta starf?

„Algjör­lega og ég er nátt­úr­lega búin að vera í kringum þetta fisk­eldi lengi af því að í dokt­ors­nám­inu mínu var ég að skoða áhrif umhverfis á þorsklifur því þá var svo mikil áhersla á þor­sk­eldi og ég var að skoða umhverf­is­þætti sem gætu haft jákvæð áhrif í lifun­ina. Þannig að ég kynnt­ist eld­inu mjög snemma og þessum aðilum sem eru að vinna í eldi. Þannig að ég þekki þann heim ágæt­lega.“

Ferðamannaiðnaður í dreifbýli

Talið berst að ferða­mennsku og segir Hólm­fríður að námið í Ferða­mál­deild sé meira í fjar­námi. „Það vantar mikið starfs­fólk inn í þennan geira; inn í ferða­þjón­ust­una. Það er mikil eft­ir­spurn eftir starfs­fólki. Við höfum verið með styttri náms­brautir þar en líka lengri og ég sæi alveg fyrir mér að auka fram­boð á styttri náms­leiðum. Mig myndi langa út af stað­setn­ingu Hóla að þróa okkur aðeins meira út í ferða­manna­iðnað í dreif­býli. Og það er nú þegar verið að horfa í þá átt.“

Meiri rannsóknir

Hesta­fræði­deildin á Hólum er vin­sæl og kom­ast ein­ungis 20 nem­endur inn á hverju ári. Hvað sér Hólm­fríður fyrir sér á Hólum hvað hest­inn varðar?

Svo langar mig að auka rann­sóknir á sam­spili hests og manns.

„Ég sé fyrir mér á Hólum að auka rann­sóknir á íslenska hest­inum. Það er ekki mikið verið að stunda rann­sóknir á íslenska hest­inum og Háskól­inn á Hólum hefur gert mjög vel í að auka alla fag­mennsku í kringum reið­mennsku. Þeir eiga alveg hrós skilið og við sem höfum verið í þessu svo­lítið lengi sjáum hvernig hesta­mennska hefur orðið fag­legri. En ég myndi vilja sjá miklu meiri rann­sóknir. Hest­ur­inn er ein­stakt dýr. Það er búið að vera ein­angrað hérna og okkur hefur tek­ist vel upp í ræktun og þetta er orðin mikil keppn­is­líf­vera ef svo má segja. Það er mikið verið að keppa á hest­inum. Hvaða áhrif er þetta allt að hafa? Og svo langar mig að auka rann­sóknir á sam­spili hests og manns; hvernig getum við breikkað not­enda­hóp­inn? Íslenski hest­ur­inn er með sér­staka gang­teg­und; tölt. Er hægt að nýta það fyrir þá sem geta ekki hreyft sig? Svo hefur maður séð að þeir sem eiga við and­leg veik­indi að stríða ná ein­hverju sam­bandi við hest­inn og hest­ur­inn gerir þeim gott. Þannig að þetta er eitt­hvað sem við eigum að horfa á finnst mér við Háskól­ann á Hólum og ég vil sjá rann­sókn­ar­mið­stöð íslenska hests­ins rísa á Hólum.“

Hest­ur­inn getur verið guðs­gjöf fyrir hinn fatl­aða og hinn sjúka.

„Já, þetta eru hug­myndir sem koma frá kenn­ur­unum á Hólum. Hvað varðar áfallastreitu og annað sem bæði margir full­orðnir og börn verða fyrir á lífs­leið­inni þá hætta sumir að treysta og þá virð­ist hest­ur­inn hafa þá eig­in­leika að brjóta ein­hvern múr þannig að fólk byrjar að treysta honum; þetta hefur líka verið sýnt með hunda. Og svo er það líka þessi hreyf­ing; þetta leysir úr læð­ingi ein­hver hormón sem valda ákveð­inni vellíðan. Við þekkjum þetta sem höfum riðið á góðu tölti að þetta vekur ákveðna vellíðan. En við vitum svo lítið um þetta. Þetta þarf að rann­saka. Og þarna þurfum við að fá með okkur allt öðru­vísi sér­fræð­inga heldur en sér­fræð­inga á sviði hesta­fræð­innar. Þarna er alveg óplægður akur að mínu mati.“

Og þá þurfum við að fá stjórn­völd með okkur.

Rekt­or­inn nýi er spurður hvort aðstaðan á Hólum sé full­nægj­andi.

„Hún var full­nægj­andi þegar hún var byggð upp hérna á sínum tíma. Við þurfum að fara í átak. Tækni og þekk­ingu hefur fleygt fram. Við vitum núna meira um svo mikið varð­andi aðbúnað og við megum ekki drag­ast aftur úr. Við verðum að vera með besta aðbún­að­inn eða alla­vega á pari við það sem ger­ist úti í iðn­að­inum. Og það er því miður ekki þannig núna. Við verðum að fara í átak. Og þá þurfum við að fá stjórn­völd með okkur. Því mér finnst þetta svo mik­il­vægt. Við megum ekki gleyma þessum menn­ing­ar­arfi og þessum sendi­herra sem hest­ur­inn er fyrir Ísland. Þetta er ein­stakt.“

Hólm­fríður segir að fram­tíðin sé björt fyrir Háskól­ann á Hólum. „Ég sé gríð­ar­lega mikil tæki­færi og ég veit að fólkið á Hólum sér líka þessi tæki­færi. Við ætlum að efla þessi þrjú fræða­svið sem eru gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir íslenskt efna­hags­líf og sam­fé­lagið hérna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu