Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Margrét og Villimey vinna í neyslurýminu Ylja: „Eruð þið að meina þetta? Má ég nota þetta?“

Margrét og Villimey vinna í neyslurýminu Ylja: „Eruð þið að meina þetta? Má ég nota þetta?“
Margrét og Villimey

Nýjustu gestir bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wííum eru þær Villimey Líf Frið­riks­dóttir og Margrét Dís Yeoman. Villimey Líf sem er þroska­þjálfi og Margrét Dís sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur, starfa að til­rauna­verk­efni á vegum Rauða kross­ins sem ber heitið Ylja. 

Neyslu­rýmið Ylja er úrræði þar sem þau sem nota vímu­efni geta komið og notað efnin í öruggu rými undir leið­sögn heil­brigð­is­mennt­aðra aðila. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir hættu á ofskömmtun sem og sýk­ingum sem algengar eru meðal neyt­enda. 

Ylja er fær­an­legt neyslu­rými og er fyrsta neyslu­rýmið sem opnar á Íslandi. Rýmið er í gamla bíl Frú Ragn­heiðar sem fengið hefur nýja bif­reið til afnota. Neyslu­rými er laga­lega verndað umhverfi þar sem not­endur 18. ára og eldri geta sprautað ávana- og fíkni­efnum í æð undir eft­ir­liti sér­hæfðs starfs­fólks og gætt er fyllsta hrein­lætis, öryggis og sýk­inga­varna. Neyslu­rými eru starf­rækt víða um heim og hafa mik­inn sam­fé­lags­legan ávinn­ing í för með sér.

Koma í veg fyrir neyslu á almannafæri

Ylja vinnur eftir hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar, sem felur í sér að fyr­ir­byggja þann skaða og þá áhættu sem hljót­ast af notkun vímu­efna fremur en að fyr­ir­byggja notk­un­ina sjálfa. Villimey Líf og Margrét Dís segja að með því að veita öruggan og hreinan stað til að neyta vímu­efna sé hægt að tryggja bætt öryggi til not­enda sem og sam­fé­lags­ins. „Markmið okkar er að koma í veg fyrir aft­ur­kræf­an­legan skaða, vera til staðar fyrir ein­stak­linga, að þau hafi stað til að nota efni og bara að vera,“ sagði Villimey Líf og Margrét Dís bætti við: „Staðan er sú að þetta fólk sér­stak­lega sem hefur ekki heim­ili á dag­inn er að nota efni inni á kló­settum á veit­inga­stöðum og inni á bóka­safni, í bíla­kjall­ara og fleiri stöðum.“ 

Markmið Ylju eru því að lág­marka þörf ein­stak­linga til að neyta vímu­efna á almanna­færi og þannig koma í veg fyrir þann skaða sem vímu­efna­neysla í óör­uggum aðstæðum getur haft í för með sér. Má þar nefna sýk­ingar, blóð­borna smit­sjúk­dóma og ofskammt­anir. Ylja leggur einnig áherslu á að mynda traust, veita stuðn­ing og við­halda mann­legri reisn hjá not­endum úrræð­is­ins. „Já, þau koma þarna inn og þurfa að byggja upp traust, sumir ná því ekki strax, sumir þurfa bara að sitja og horfa á okkur og spyrja „eruð þið að meina þetta? Má ég nota þetta?“,“ sagði Villimey Líf.

Hvetja notendur til að nota Frú Ragnheiði á kvöldin

Ylja býður upp á hreinan búnað fyrir notkun vímu­efna í æð og tekið er á móti not­uðum bún­aði. Ylja er þó ekki með búnað í sama magni og Frú Ragn­heiður og því hvetja þær Villimey Líf og Margrét Dís not­endur að nýta sér þjón­ustu þeirra á kvöldin. Ylja er opin alla virka daga frá klukkan 10:00 til 16:00.

Stað­setn­ingar Ylju eru breyti­legar og er stöðugt unnið að því að finna stað­setn­ingu sem hentar not­endum sem allra best. Á dag­inn getur not­andi haft sam­band í síma 774-2957 og fengið upp­lýs­ingar um stað­setn­ingu bíls­ins.

Kostar 50. milljónir á ári

Laga­breyt­ingar sem gerðar voru 5. júní 2020 eru grund­völlur þess að hægt er að reka neyslu­rými en þær fólu í sér heim­ild til sveit­ar­fé­laga um að koma á fót slíku rými. Eftir sam­þykkt laga­breyt­ing­anna hófust við­ræður vel­ferð­ar­sviðs við Sjúkra­trygg­ingar Íslands og í kjöl­far þess við Rauða kross­inn um rekst­ur­inn, að fengnu starfs­leyfi frá Embætti land­læknis.

Eftir að Embætti land­læknis gaf út starfs­leyfi vegna rekst­urs­ins, og skal það tekið fram að  það er í fyrsta skipti sem slíkt leyfi hefur verið veitt, tók neyslu­rýmið til starfa, nánar til­tekið 10 mars á þessu ári. Neysluýmið er til­rauna­verk­efni til 1 árs og er ætl­aður rekstr­ar­kostn­aður neyslu­rým­is­ins um 50. millj­ónir króna yfir árið sem greið­ist af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.

Þakklátar fyrir traustið

Í lok þátt­ar­ins tóku þær stöllur fram plast­kassa sem inni­hélt hinn ýmsan búnað til neyslu á vímu­efnum í æð. Mortel og hár­ná­kvæma vog til að mæla magn þeirra efna sem not­and­inn dælir í sig. Svo­kall­aða kúkk­era og filt­era til að blanda og gera efnin til­búin til notk­unar og svo síð­ast en ekki síst dælur sem fólk þekkir undir heit­inu sprautur og nálar í mis­mun­andi stærðum og gerðum allt eftir æðum og húð not­and­ans.

Villimey Líf og Margrét Dís sem byrj­uðu báðar sem sjálf­boða­liðar hjá Frú Ragn­heiði segj­ast finna fyrir þakk­læti fyrir að fá að vinna við að þjón­usta þennan hóp sem svo oft er litin horn­auga af bæði öðru fólki og stofn­unum. Þær segja að með kær­leik og virð­ingu nái þær að mynda tengsl við not­endur sem þeir ann­ars finna ekki útí sam­fé­lagi sem fram­kallar enn meiri aðskilnað og þján­ingu og að það sé alls ekki neinum til góðs. Lokaorð þeirra Villi­meyjar og Mar­grétar voru þau að þær væru afar þakk­látar fyrir það starf sem þær vinna: „Við værum ekki hér ef ekki væri fyrir not­end­una, traustið sem við erum búnar að vinna okkur inn og við erum bara ótrú­lega þakk­látar fyrir það, af öllu hjarta. Það er kannski það eina sem við getum sagt,“ sagði Villimey Líf og Margrét Dís tók fullshugar undir.

Þetta upp­lýsandi og kraft­mikla við­tal má hlusta á og horfa á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu