Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gústi kokkur tekur míkróskammta af sveppum:„Hefði átt að vera nógu auðmjúkur til að biðja um hjálp“

Gústi kokkur tekur míkróskammta af sveppum:„Hefði átt að vera nógu auðmjúkur til að biðja um hjálp“
Gústi Mynd: Svavar Burgundy

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­hús­inu er eng­inn annar en kokk­ur­inn, lífskúnstner­inn, alkinn og fyrrum áhrifa­vald­st­vítar­inn Gústi „Chef“ Eyrún­ar­son.

Gústi tekur á því.

Gunnar byrjar á að rifja upp fyrstu kynni hans af Gústa en þá átti Gústi kær­ustu sem var bekkj­ar­systur Gunnars. Gunnar seg­ist einnig muna eftir Gústa sem vina­mörgum, vin­sælum og lit­ríkum ung­lingi. Sú lýs­ing átti vel við hann út frá sög­unni sem hann sagði okkur í þessu við­tali.

Fann köllunina í eldhúsinu

Hann elst upp á Kjal­ar­nesi og um 8 ára aldur seg­ist hann bara hafa tekið ein­hvers­konar ákvörðun að allt væri bara til­gangs­laust og grimmt. Hann seg­ist hafa upp­lifað tals­vert vesen heima fyrir en það sem gerði úts­lagið var örygg­is­leysi sem hann upp­lifði í skól­anum á Kjal­ar­nesi. Eftir að hann klárar svo æfinga­deild­ina í Reykja­vík fer Gústi í MH. Ágætis náms­maður en var far­inn að djamma mikið. Þegar hann er kos­inn sem skemmt­ana­stjóri skól­ans á öðru ári fer bara allt í vaskinn. Hann hrökkl­ast úr skóla og er kom­inn í með­ferð 18 ára gam­all. Eftir að hafa flutt norður til Akur­eyrar á áfanga­heim­ili finnur hann kallið í eld­hús­inu á Jarlinum. Hann stendur þar inni á sinni fyrstu vakt og það klikkar eitt­hvað inn í honum. Honum finnst eins og allt sé innan seil­ingar, þarna hafði hann full­komna stjórn á aðstæðum og hann vissi hvað hann ætti að gera. Því næst lærir hann kokk­inn á KEA.

„Ég var nýkom­inn og alls staðar eitt­hvað lið að vinna og ég var mjög stress­aður. En svo allt í einu vissi ég allt sem var að ger­ast inn í þessu her­bergi,“ sagði Gústi og smellti fingri. „Og inn í eld­hús­inu er ég þannig, ég heyri í pott­unum og veit allar tíma­setn­ingar og fleira, þetta er mjög skrítið. Franska lyk­il­orðið yfir það að und­ir­búa mat heitir mi sen place og þýðir allir hluti á sínum stað.“

Slysið

Í Pollinum á Akureyri lendir hann í slysi á sæþotu einn dag­inn sem olli miklu brjósklosi sem hann svo með­höndl­aði með verkja­lyfjum. Brjósklosið háði honum lengi og tvisvar hefur hann þurft að fara í aðgerðir. Eftir langa edrú­mennsku og í kjöl­far þess­ara aðgera tók við smá verkja­lyfja­brölt þar sem hann mis­not­aði kódein. Samband hans við síð­ustu barns­móður sína fór í vaskinn og hann end­aði 115 kílóum og að eigin sögn við dauð­ans dyr.

„Árið 2019 er ég að reyna að stoppa þetta og fer í bak­skóla Jósefs Blöndal til að reyna að finna leið til að díla við þessa enda­lausu bak­verki. Þessi bak­skóli Jósefs er frá­bært, hann er einn klár­asti maður þjóð­ar­innar. Og í fram­hald­inu hætti ég á Kódeini cold tur­key. Sem var eftir á að hyggja ekki góð hug­mynd. Það var bara hræði­legt, mjög vont. Það varð að ger­ast en ég hefði átt að vera nógu auð­mjúkur til að biðja um hjálp,“ sagði Gústi og sagði að á þessum árum hafi hann enn verið þannig þenkj­andi að hann væri „edrú“ og að eng­inn mætti vita af kódein-fíkn hans.

Andleg reynsla í brúðkaupi

Fyrir um tveim árum fór Gústi í brúð­kaup hjá vinum sínum en hann var tæpur á að nenna að fara því hann seg­ist hafa misst trúna á ást­ina, lífið og feg­urð­ina. Hann hafi samt látið sig hafa það og það sem hann sá í þessu brúpð­kaupi var glatt og ham­ingju­samt fólk, gleði meðal gesta. Hann hafi á þess­ari stundu orðið fyrir vissri and­legri reynslu sem færði honum við­horfs­breyt­ingu. Hann var byrj­aður að kokka á Kaffi Vest og eftir vinnu fór hann að fara í Vestu­bæj­ar­laug­ina. Hann byrj­aði að synda nokkra metra og svo jókst vega­lengdin smátt og smátt og hann fann að lík­am­leg heilsa hans fór að taka breyt­ingum. Gústi lét í kjöl­farið gamlan draum ræt­ast sem var að mæta á Jijitsu æfingu hjá RVK MMA. Eitthvað sem hann hafði langað til lengi en hafði bara ekki hug­rekkið út af bak­meiðslum. Hann lét sig hafa það og ásamt því að lyfta, dedda þungt eins og Gunnar benti á, fór lík­ami hans að taka stakka­skiptum.

Gústi á verð­launa­palli

Fordómar fyrir hugvíkkandi efnum

Það fór að bera á umræðu í umhverfi Gústa tengt hug­víkk­andi efnum. LSD, Mescalin, DMT, Psilosobin, Auyaska. Fyrstu við­brögð hans voru algjör nei, nei. Gunnar spyr hann út þessi við­brögð, við­horf og þessa for­dóma innan edrú sam­fé­lags­ins og svar­aði hann því að hann taki eftir og sjái þessi skila­boð sem þá aða­l­ega koma frá SÁÁ eða með­ferð­ar­batt­er­í­inu almennt um að hinir og þessir trig­gerar séu eitt­hvað sem mun setja alka­hólist­ann á hlið­ina. Það hélt hann með þessi efni eins og svepp­inn, að hann myndi fara á hlið­ina og „detta í það“ við að fara þessa leið. Áður en að Gústi fór í næsta kafla við­tals­ins, þann sem snéri að notkun hans af vit­und­ar­víkk­andi efnum í edrú­mennsku las Gunnar upp smá texta sem kom fram í grein sem hann skrif­aði fyrir nokkru sem birt­ist á Vísi fyrir ekki svo löngu.

“Þetta er algjört tabú innan 12 spora sam­fé­lags­ins sem hefur með fíkni­sjúk­dóma að gera. Þetta er meira að segja svo mikið tabú að reynt hefur verið ítrekað að gera lítið úr eða véfengja sögu­legar stað­reyndir um til­raunir stofn­anda AA sam­tak­anna, sjálfan Bill Wilson og yfir ára­tuga löngu til­raunir hans með góð­vini sínum og met­sölu­rit­höf­undi Aldous Huxley með LSD. Fyrsta trippið hans fór hann í umsjá lækna í ágúst 1956 á spít­ala í Kali­forniu. Ástæðan fyrir þessu fyrsta trippi hans var fyrst og fremst að reyna að kom­ast aftur í þessa and­legu reynslu sem hann varð fyrir 14 des­em­ber árið 1934, reynslu sem átti sér stað án efa enda lýs­ingar hans trú­verð­ugar en það sem kannski ekki fylgdi sög­unni í AA bók­inni til dæmis var að þegar hann varð þess­ari reynslu aðnjót­andi var hann á sínum þriðja degi í inn­lögn og einnig á sínum þriðja degi í svo­kall­aðri Towns Lambert cure sem inni­hélt meðal ann­ars tvö mjög hug­víkk­andi efni, Bella­donna og Henbane sem eru plöntur sem valda miklum vímu­á­hrifum sé tekið í réttu magni. En ára­langar til­raunir hans á LSD voru til þess að koma aftur í þessa reynslu sem og að vinna bug á eða finna leið á að vinna á alvar­legu þung­lyndi sem hann hafði þjáðst af þessi fyrstu 20 ár edrú­mennsku sinnar. Þung­lyndið sagði hann þó að aldrei hafi horfið alveg en hann náði að finna leið til að sjá það í skýr­ara ljósi og lifa með því sem þýddi að það missti mátt sinn veru­lega í lífi hans. Fyrsta skiptið sem hann tripp­aði á LSD var tekið upp á filmu en þær upp­tökur eru víst glat­aðar en manuscript var tekið af upp­tök­unni og það fysta sem hann sagði þegar áhrifin voru byrjuð að láta verða vart sig var „fólk á að hætta að taka öllu svona alvar­lega.“ Alveg ótrú­lega við­eig­andi skila­boð til okkar sem lifum og hrærumst í ótta við póli­tískan rétt­trúnað, við ótt­umst að verða dæmd fyrir að sam­ræm­ast ekki því sem fjöld­inn segir okkur.”

Eftir að hafa afþakkað svepp­inn hér og þar, meðal ann­ars í svoköll­uðum kakóserómón­íum þar sem fólk fékk sér sveppi með kakó­inu, hitti hann fyrir gamlan vin í Vest­ur­bæj­ar­sund­laug­inni. Vinurinn og Gústi höfðu alltaf nudd­ast svo­lítið utan í hvor annan síðan þeir voru litlir pjakkar. Öfund­sýki, kald­hæðni og met­ingur hafði alltaf ein­kennt sam­skipti þeirra tveggja en nú var allt annað upp á ten­ingnum. Vinurinn var allt í einu ljúfur sem lamb, hann virt­ist áhuga­samur um hvað Gústi hafði að segja og virt­ist bara vera gjör­breyttur. Allt við hann, and­lits­drætt­irnir sem og lund var breytt. Það kom svo upp á ten­ing­inn að hann var búinn að vera að Microdósa svepp­inn, smá skammta. Smá­skammtur myndi flokk­ast sem dag­skammtur upp á ca 0.1-0.3 grömm af svepp og tekið í nokkra daga í röð og svo hvílt í nokkra daga, allt eftir mis­mun­andi upp­skriftum.

Farinn að dreyma aftur

Í febr­úar á þessu ári upp­lifir Gústi mál sem honum fannst gríð­ar­lega erfitt að ráða við, erfitt mál. Þótt að hann vilji meina að hann hafi verið í topp formi og í virki­lega góðum and­legum málum er þetta það fyrsta sem poppar upp í hausnum á honum, sveppur. Hann hefur sam­band við einn af mörgum sínum vinum sem eru að fikta við svepp­inn og fær hjá honum svepp sem hann byrjar að fikra sig áfram með magn fyrir smá­skammt­inn því magnið sem hentar hverjum og einum er mis­mun­andi. Hann fer einnig að æfa sig með ásetn­ing­inn sem hann vill meina að sé það mik­il­væg­asta þó svo að ekki sé verið að nota svepp­inn í stórum skömmtum. Einnig vill Gústi mæla með því að sá sem byrjar þessa veg­ferð sé í sam­bandi við annað hvort fag­að­ila í þessum geira eða ein­hvern vanan sem hægt er að treysta.

Gunnar spyr hann hvað svepp­ur­inn væri svo að gera fyrir hann. Gústi segir að sirka tveimur vikum eftir að hann byrj­aði fór hann að upp­lifa skýr­leika í hugsun. Ótti við sam­skipti eða ótti við að mæta og virða mörk sín í sam­skiptum hvarf að miklu leiti. Hann sagði að í fyrsta skiptið í ein­hver fimm ár hafi hann farið að dreyma aftur. Hann seg­ist hafa náð þeim djúpsvefn, hvíld sem hann hafði ekki fengið að vera aðnjót­andi í mörg ár.

„R.E.M. svefn­inn var eig­in­lega horf­inn en flestir draumar koma þaðan. Úrvinnslan er mest í djúpsvefn­inum en ég var bara ekki með djúpsvefn­inn.“

Þennan ljúfa og upp­lýsandi þátt má sjá í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu