Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Binni, 17 ára, var um borð í Svani ÍS sem fórst: ,,Það er betra að ég fari einn en við förum allir“

Binni, 17 ára, var um borð í Svani ÍS sem fórst: ,,Það er betra að ég fari einn en við förum allir“
Brynjólfur Bjarna­son var stýr­maður á Svaninum þegar hann fórst. Mynd: Reynir Traustason.

Gestur Sjóarans að þessu sinni er þaul­vanur sjó­maður og tog­ara­jaxl Brynjólfur Bjarna­son frá Ísafirði.

Eft­ir­minni­leg­asta sjó­mennska Brynj­ólfs var án efa árið 1969 þegar Svanur ÍS sem gerður var út frá Súðavík fórst með honum um borð. Hann gegndi þá hlut­verki stýri­manns aðeins 17 ára gam­all en skipið var 101 tonna stál­skip, smíðað í Austur-Þýska­landi.

Hann man þetta eins og það hefði gerst í gær en hann var ekki fast­ráð­inn á Svaninum. Hann var á Guð­björgu ÍS sem hafði verið á síld um sum­arið og þeir voru að útbúa hana á troll. Stýri­mað­ur­inn á Svaninum veikt­ist og Örnólfur Grétar Hálf­dans­son skip­stjóri hringdi í hann og spurði hvort hann gæti tekið túr­inn sem hann sam­þykkti að því gefnu að Geiri, Ásgeir Guð­bjarts­son, sam­þykkti það líka. Úr varð að hann hljóp í skarðið. Í fyrstu var um að ræða tvo dag­róðra en að þeim loknum kom útgerð­ar­stjór­inn til hans og spurði hvort hann gæti farið einn túr til við­bótar þar sem stýri­mað­ur­inn var lengur að jafna sig á veik­ind­unum. Þannig atvik­að­ist það að hann end­aði í þessum örlaga­ríka túr.

Inntur eftir því hvort þessi teg­und skipa hafi talist hættu­leg þá fannst honum það ekki á þeim tíma bendir hann á að annað skip sömu gerðar, Sæfari frá Bíldudal, hefði farist nokkrum mán­uðum síðar og ein­hverjir menn telji að þetta hafi ekki verið góðir bátar.

Aðdrag­and­inn að slys­inu var sá að þeir voru búnir að draga og voru að leggja af stað í land þegar vél­stjór­inn tók við stýr­inu þar sem Brynjólfur var í raun alveg óvanur. Hann var staddur í stýr­is­hús­inu, skorð­aður við borðið en þá er kallað að það sé að koma brot. Þeir stýra upp í brotið en þegar það skellur á fer bát­ur­inn á hlið­ina með þeim afleið­ingum að vélin drepur á sér.

Skip­stjór­inn gefur þá skipun að menn skuli fara upp í brú og setja út bát­inn. Þeir átta sig á að einn áhafn­ar­innar er enn niðri í káetu og vél­stjór­inn fer í það að sækja hann. Við það fer Brynjólfur við annan mann að ná lok­inu af kist­unni sem inni­hélt börg­un­ar­bát­inn og koma honum svo á flot en þegar þeir eru við það að blása hann upp stakst hluti af ljósa­bún­aði brú­ar­innar í bát­inn, sprengdi hann og eyði­lagði þakið.

Þeir safn­ast svo saman og kom­ast um borð í sökkvandi gúmmi­bát­inn, gegn­drepa. Þeir náðu taki og drógu sig eftir loft­net­inu sem gekk á milli mastr­anna, en þegar þeir voru mið­skips ákvað Grétar að ná í hinn bát­inn með orð­unum:

„það er betra að ég fari einn en að við förum allir!“

Áhöfnin hafði enga sjó­galla í sprungnum björg­un­ar­bátnum á meðan skip­stjór­inn synti í prjóna­föt­unum einum saman eftir vara­bátnum. Hann hafði það og lét bæði sig og bát­inn reka til áhafn­ar­innar og þegar bát­arnir voru hver upp við annan ákváðu þeir að láta sig reka fram­fyrir og út í vind­inn til að bera sig frá skips­flak­inu. Þegar þeir voru í öruggri fjar­lægt blésu þeir hinn bát­inn upp, fluttu sig á milli og los­uðu sig við sprungna bát­inn.

Til að loka bátnum þurfti að þræða ílangan hnapp í gegnum þröngt gat og snúa. Brynjólfur var orð­inn svo kaldur og hrak­inn að þegar hann var að erf­iða við að ná hnöpp­unum í gegnum götin grét hann af sárs­auka en hann var að loka þessu svo þeir gætu lifað þetta af.

Hann segir að það hafi orðið þeim til lífs að kven­fé­lagið í Súðavík hafði prjónað ull­ar­fatnað, set í vatns­helda poka og sett niður með öllum björg­un­ar­bát­unum. Þetta þýddi að þeir gátu skipt um föt og kom­ist í ull og þannig stuðlað að því að þeir kólu minna.

Um borð í bátnum sat áhöfnin hver á móti öðrum og þeir brugðu á það ráð að nudda hita í fætur hvers ann­ars og fyrir vikið hitn­aði þeim á hönd­unum í leið­inni. Þeir voru fimm tíma í bátnum og menn urðu að finna leiðir til að halda á sér hita í 12 stiga frosti.

Brynjólfur hélt þegar þarna var komið við sögu að þeir myndu ekki lifa þetta af

Spurður að því hvað menn ræddu sín á milli í svona aðstæðum minn­ist hann þess helst að hafa spurt skip­stjór­ann að því hvort þá ræki ekki örugg­lega að landi og hversu langan tíma það tæki, hann var hrein­lega ekki betri að sér þegar það kom að því að lesa af átta­vit­anum, en skip­stjór­inn svar­aði ,,jú, jú, vinur minn, auð­vitað, það veit eng­inn en við förum ansi hratt“ – hann vissi auð­vitað betur, það var norð-aust­an­átt þannig að þá rak suður með fjörð­unum og alls ekki í átt að landi.

Hann man svo líka að ein­hver spurði hvort eng­inn þeirra væri með sígar­ettur. Hann játti því en þær voru allar gegn­drepa. Einn þeirra hafði með sér pípu en tóbakið var allt ónýtt. Hann veltir því fyrir sér hvort það hafi ekki verið blessun að þeir hafi ekki farið að fikta með eld í ofá­ná­lag.

Þegar líða tók á fór að síga í hann og hann tók að syfja af kuld­anum. Hann til­kynnti skip­stjór­anum að hann ætl­aði aðeins að leggja sig en hann þvertók fyrir það og kall­aði reglu­lega til manna til að koma í veg fyrir að menn sofn­uðu. Eins neit­aði hann að opna nest­i­s­pakka þar sem þeir vissu ekk­ert hversu lengi þeir myndu þurfa að dvelja í bátnum. Þeir höfðu þó eitt­hvert smá­ræði af vatni sem þeir gátu notað til að skola mesta salt­vatnið úr munn­inum.

Þeir gátu áttað sig á því hvar vind­ur­inn kom á bát­inn og þeir gátu heyrt hvissið þegar brotin voru að nálg­ast. Þegar brotin komu svo á bát­inn hentu þeir sér út með hlið­inni en bát­ur­inn hent­ist um eins og skopp­ara­kringla en fyrir ein­hverja mildi hvolfdi bátnum aldrei.

Þeir heyra svo í tal­stöð­inni að Sólrún ÍS var búin að finna þá. Loft­netið hafði brotnað að megn­inu til af tal­stöð­inni með þeim afleið­ingum að þeir gátu bara hlustað en ekki sent. Skip­stjóri Sól­rún­ar­innar hafði sam­ráð við skip­stjóra varð­skips­ins sem var á leið­inni að sækja þá og það var ákveðið að þeir færu beint um borð í varp­skipið.

Spurður að því hvernig mönnum leið þegar þeir voru komnir um borð í varð­skipið lýsir hann því að auð­vitað hafi honum liðið ofboðs­lega vel, nýbúnir að fá að fara í sturtu, en þá hafði kalið á höndum og fótum og einn þeirra hafði við­beins­brotnað. Skip­stjór­inn lum­aði á viskíflösku og gaf þeim eitt skot á mann, svona rétt til að ylja þeim aðeins.

Brynjólfur var aftur kom­inn á sjó tveim vikum seinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu