Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Birgir var sakaður um nauðgun í brúðkaupinu: „Sagan er alltaf að breytast og magnast“ EINKAVIÐTAL

Mesti ham­ingju­dagur lífs Birgis Sæv­ars­sonar, breytt­ist í martröð. Það var í hans eigin brúð­kaupi á Ítalíu sem hann var fyrst sak­aður um nauðgun en Birgir missti nán­ast allt í kjöl­far ásakan­anna, sem urðu þrjár alls en tveimur þeirra var vísað frá en eitt þeirra var tekið fyrir hjá dóm­stólum. Birgir var sýkn­aður í því máli en stendur eftir með laskað orð­spor og tvær sjálfs­vígstil­raunir á bak­inu. Birgir segir sögu sína í fyrsta sinn í við­tali við Reyni Trausta­son í hlað­varpi Mannlífs.

Brúðkaupið

Þetta byrj­aði allt í brúð­kaupi Birgis á Ítalíu árið 2019.

„Dagurinn, brúð­kaupið og brúð­kaups­nóttin er ennþá besti dagur lífs míns, myndi ég segja.  Það voru margir sem sóttu þessa veislu. Við leigðum villu og margir gistu þó það hafi reyndar ekki verið pláss fyrir alla, en aðrir gistu í nær­liggj­andi bæjum. En það kom sem sagt á dag­inn, dag­inn eftir að ein af vin­konum okkar ásak­aði mig um nauðgun.“

Reynir: „Þetta er náið vina­fólk?“

Birgir: „Já, mjög náið. Þetta kom gíf­ur­lega flatt upp á mig þarna.“

Reynir: „Þetta snýst um það að hún kemur upp á her­bergi til þín.“

Birgir: „Já. Þetta var þannig að ein­hver ýjaði að því að það væri fyndið að henda brúð­gum­anum í sund­laug­ina en það var gríð­ar­lega heitt þarna þessa daga, 41 gráða dag­inn sem við giftum okkur. Og það þótti fyndið að henda brúð­gum­anum í sund­laug­ina, sem var gert. Þannig að ég varð allur blautur í jakka­föt­unum og ballið var að klár­ast. Ég var að bjóða fólki að fá sér pylsur og svona. En ég þurfti að skipta um föt, ég nennti ekki að vera í blautum jakka­fötum. Þannig að ég ákveð að fara upp og segi þáver­andi kon­unni minni það og vinum.“

Reynir: „Brúðinni.“

Birgir: „Brúðinni. Og fleirum. Að ég ætl­aði að fara upp. Og hún sagð­ist ætla að koma með. Hún var ekk­ert að spyrja, hún sagð­ist ætla að koma með. Þetta er allt til í þessum skýrslum. Og ég fer upp og skipti um föt. Ég reikn­aði bara með því að að hún ætl­aði að fara á kló­settið eða eitt­hvað slíkt. Og ég skipti um föt en ég ætl­aði líka að sækja pen­inga því ég ætl­aði að tipsa þjón­ana sem voru búnir að standa sig gríð­ar­lega vel allt kvöldið. Og við erum að spjalla þarna, erum frekar drukkin en það gerð­ist ekk­ert, ekk­ert daður á milli okkar eða neitt. Ekki farið yfir nein mörk að neinu leiti en það var eitt faðm­lag þar sem ég þakka henni fyrir að koma og hún sagði að þáver­andi eig­in­kona mín væri besta vin­kona hennar en hún var frekar drukkin og var að end­ur­taka sig mikið. Og við tökum þarna eitt faðm­lag sem var langt og gott faðm­lag en það var svo­lítið skringi­legt langt eins og ég hef alltaf sagt en allt í góðu. Svo förum við bara nður og það er fengið sér pylsur og eitt rauð­víns­glas í við­bót. Og svo förum við hjónin bara að sofa.“

Reynir: „Brúð­kaups­nóttin.“

Birgir: „Já, brúð­kaups­nóttin. Við vorum bara alveg búin, hefðum örugg­lega geta verið lengur undir venju­legum kring­um­stæðum.“

Ásökunin

Reynir: „En það sem ger­ist dag­inn eftir, þá kemur ásök­unin fram.“

Birgir: „Já, þá ákváðu þau [vin­konan og maki hennar – inn­skot blaða­manns] að fara úr vill­unni án þess að láta okkur vita. Og við reyndum að stoppa þau og tala við þau en það var ekki hægt, þau vildu ekki tala við okkur. Sem sagt þau tvö og svo voru að ferð­ast með þeim þrír aðrir ein­stak­lingar. Og þau vildu ekki tala við okkur og við skildum ekk­ert af hverju og við sendum þeim skila­boð og reyndum að hringja. Sögðum bara að það væri nátt­úru­lega ekki í boði að haga sér svona og hvað er í gangi? Að fara bara í ein­hverju kasti. Við sáum alveg að það var ekki allt í lagi. En svo fékk kona mín þáver­andi, skila­boð frá vini mínum, mann­inum hennar [vin­kon­unnar sem fór í fússi – inn­skot blaða­manns], að ég hefði gert eitt­hvað á hennar hlut. Nauðgað henni. Eða þetta var reyndar ekki fyrst þannig, ég man nú ekki hvernig þetta var orðað, þetta er orðið svo­lítið síðan. Já, þröngvað sér upp á sig.“

Reynir: „Þröngvað henni til sam­ræðis?“

Birgir: „Já eitt­hvað svo­leiðis, man ekki nákvæm­lega hvernig það var orðað. En svo kom það í ljós seinna, sam­dæg­urs, að hún var að ásaka mig um nauðgun.“

Reynir: „Og hvernig varð þér við?“

Birgir: „Ég hef aldrei verið jafn hissa í líf­inu. Og bara, ég skildi þetta ekki.“

Reynir: „En þetta hafði grass­erað um nótt­ina, þau höfðu rif­ist.“

Birgir: „Já, við förum að sofa en svo frétti ég það tölu­vert seinna, þegar var farið að rýna í málið dag­inn eftir, þegar við erum að segja vinum okkar frá þessu, sem eru þarna, af hverju þau fóru svona snemma og hvað þau væru að ásaka mig um. En það var fullt af fólki ennþá að skemmta sér [kvöldið örlaga­ríka – inn­skot blaða­manns] og þau voru að ríf­ast þarna og brotið eitt­hvað og bramlað í her­berg­inu sínu. Það vissi auð­vitað eng­inn hvað hafði gerst þeirra á milli. Þannig að greini­lega hafði eitt­hvað mikið gengið á.“

Birgir segir að það sjá­ist í lög­reglu­skýrslu um málið, sem var kært, að parið vilji meina að hann hefði verið að reyna að ná upp úr henni hvað hefði gerst á milli Birgis og hennar.

Birgir: „Því hann hafði grunað hana um eitt­hvað forplay eða fram­hjá­hald. Mér leið þannig og líður alltaf þannig, að hún hefði misst eitt­hvað út úr sér sem hún hafi ekki getað bakkað með. Og ég lifði í þeirri mein­ingu lengi að þetta væru bara mis­tök. En svo kemur kæran og svo kemur hún fram í við­talið hjá Eddu Falak. Og fer þar í gegnum hlut­ina. Þeir hlutir sam­ræm­ast ekki skýrsl­unni, skýrslan sam­ræm­ist ekki raun­veru­leik­anum. Þannig að sagan er alltaf að breyt­ast og magn­ast líka. Þetta er að verða alltaf meira og meira brot. Á meðan þetta var allan tím­ann bara eitt faðm­lag.“

Flakkað á milli spítala

Reynir: „En þú áttar þig á alvar­leika máls­ins strax þarna um morg­un­inn því fyrsti dag­ur­inn í hjóna­bandi ykkar hjóna fer í það að sækja gögn sem geta styrkt sak­leysi þitt.“

Birgir: „Já, eftir að við heyrðum þetta sendum við þessum hópi, sem fór saman: „Farið strax, ef þið ætlið að halda þessu fram, til lög­reglu ef þið ætlið að kæra, farið á sjúkra­hús, láta tékka á sér“ en það var ekki gert. Þannig að ég vildi gera allt sem ég gæti. Við vorum nátt­úru­lega í útlöndum, á Ítalíu og ofan á það, lengst inn í sveit. Það er lít­ill bær þarna við en það er langt í ein­hverja borg. Þannig að ég fer á spít­ala sem er nærst og spyr, með goggle translate, hvort ég get fengið tékk því það væri verið að saka mig um þetta, hvort ég get fengið lífs­stroku­sýni strax dag­inn eftir því ég var ekki búinn að fara í sturtu. En það var ekki hægt þar þannig að við förum á næsta spít­ala en þá þurftum við að keyra í dágóðan tíma, ég og kona mín, fyrr­ver­andi. Þetta kvöld sem við vorum að flakka á milli sjúkra­húsa hringdi ég í lög­regl­una heima og spurði hvað ég ætti að gera, það væri verið að ásaka mig um þetta, hvað get ég gert? En það er auð­vitað ekk­ert hægt að gera fyrr en eitt­hvað berst frá hinum end­anum.“

Þannig að engin líf­stroku­sýni voru tekin af Birgi því það þurfti að ber­ast kæra fyrst.

Þversagnir í skýrslunni

Reynir spyr Birgi út í þver­sagnir í lög­reglu­skýrsl­unni. „Atburða­lýs­ing er þannig að þú hafi komið út úr bað­her­bergi og þar með hefði upp­haf­ist þessi atburða­rás sem hún lýsir.“

Birgir: „Já, hún sagði að ég hefði komið út úr bað­her­bergi á nær­buxum og nú er ég bara að vitna í skýrsl­una, ég hef ekk­ert talað við hana. Þar segir að ég hafi sem sagt komið út af bað­her­berg­inu á nær­bux­unum og byrjað að kítla hana og svo hafi ég snúið henni við á mag­ann og átt við hana sam­farir aftan frá, á ein­hvern þannig hátt. Ég held að í skýrsl­unni hafi verið talað um þrjár sek­úndur en hjá Eddu Falak ein­hvern allt annan tíma. En ég var aldrei fyrir framan hana á nær­bux­unum, það var bara skipt um föt bak­við skil­rúm.“

Reynir: „Og svo er ekk­ert bað­her­bergi.“

Birgir: „Já, svo er það. Ég kom út úr bað­her­berg­inu [sam­kvæmt skýrsl­unni – inn­skot blaða­manns] en bað­her­bergið er ekk­ert á þess­ari hæð, það er á hæð­inni fyrir neðan. Og þetta gat lög­reglan stað­fest í nið­ur­fell­ing­unni.“

Brúð­kaupið var haldið í júlí 2019 en í sept­em­ber fékk Birgir sím­tal frá lög­regl­unni, þar sem hann var staddur erlendir í lotu­námi en hann stund­aði söng­kenn­ara­nám, þar sem hann er beð­inn um að koma í skýrslu­töku.

Birgir: „Ég var sem sagt úti og fékk þetta sím­tal og sagði við Uve, félaga minn sem var með mér í bekk, „Heyrðu, segðu kenn­ar­anum að ég komi ekki, ég þarf að fara heim“. Bara áfall.“

Reynir: „Varstu búinn að reikna með því að málið færi ekk­ert lengra?“

Birgir: „Já, því ég var ekki búinn að heyra neitt, ég vissi alveg af ásök­unum en mér datt ekki í hug að hún myndi kæra og ef hún væri búin að kæra myndi ég heyra af því fyrr. Að lög­reglan myndi þá hringja strax í mig og boða mig í skýrslu­töku. Ekki að ég þyrfti að bíða í ein­hverja tvo mán­uði.“

Reynir spurði Birgi hvort hann hefði gert ein­hverja til­raun til að ræða við parið.

„Nei, ég neit­aði nátt­úr­lega fyrir þetta við vin minn, sagði honum að þetta væri bull. Ég hef aldrei reynt að hafa sam­band við hana. Hann sagði við mig að þetta væri bara víst þannig, hann tryði henni og ég ætla ekk­ert að setja mig upp á móti því, að menn standi með kon­unni sinni.“

Eftir að hafa mallað í kerf­inu í tvö ár, var málið látið niður falla, árið 2021, án ákæru. En þá birt­ist næsta kæra.

Hægt er að horfa á allt við­talið með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu