Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gyðjan fer nýjar leiðir við uppbyggingu á bættri heilsu – Sjáðu árangursmyndirnar!

Gyðjan fer nýjar leiðir við uppbyggingu á bættri heilsu – Sjáðu árangursmyndirnar!

„Mark­miðin okkar eru að hjálpa fólki við að bæta heils­una og auka sjálfs­traustið, enda er slag­orð stof­unnar ,Þinn árangur er okkar mark­mið,.“ segir Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir sem er konan á bak við lík­ams­með­ferð­ar­stof­una The House of Beauty.

Sigrún Lilja sem er oft­ast kennd við íslenska hönn­un­ar­merkið Gyðju Collection og fyrir að hafa hannað fjöld­ann allan af fylgi­hlutum og ilm­vötnum sem slógu í gegn hér­lendis sem og erlendis á nú og rekur lík­ams­með­ferð­ar­stof­una The House of Beauty, sem er orðin vin­sæll við­komu­staður Íslend­inga sem vilja bæta lík­am­legt form og heilsu.

„Ætli það megi ekki segja að þetta sé eins­konar mekka sér­hæfðra lík­ams­með­ferða og heilsu.“ Segir Sigrún þegar hún er spurð úti hvernig hún myndi helst lýsa The House of Beauty. En hún fagn­aði einmitt nýlega stækkun stof­unnar sem er þriggja og hálfs árs.

The House of Beauty er lík­ams­með­ferð­ar­stofa sem má segja að sé einnar sinnar teg­undar en hún bíður uppá sér­hæfð lík­ams­með­ferð­ar­tæki og heild­stæðar lausnir fyrir heilsu og lík­am­legt útlit án skurð­að­gerðar og án mik­illa inn­gripa.

„Við bjóðum uppá mis­mun­andi lík­ams­með­ferðir sem við teljum vera með þeim fremstu í heim­inum í dag sem allar hafa sinn ein­staka fókus. Við bjóðum sem dæmi uppá Velas­hape sem þéttir slappa húð og vinnur á stað­bund­inni lausri fitu. Hún hefur t.d. nýst vel á þessa svoköll­uðu „svuntu“ sem stundum getur mynd­ast neðst á kviðin eftir t.d. þyngd­ar­tap eða barns­burð. Svo bjóðum við uppá laser lipo með­ferð til að vinna á stað­bund­inni harðri fitu, og LED húð­með­ferð til að vinna á slitum og þétt­ingu húðar ásamt því að bjóða uppá Fitform og Msculpta PRO til að byggja upp og móta vöðva. Að auki erum við með með­ferð­ina Lipom­assage Sil­klight sem er án efa ein öfl­ug­asta sog­æða­með­ferð sem völ er á. Fyrir utan að losa um bólgur og stíflur, vökva­söfnun og bjúg þá gerir hún líka undur fyrir húð­ina og fram­kallar svo­kall­aða sokka­buxna­á­ferð án app­el­sínu­húðar. Þrátt fyrir að með­ferð­irnar vinni gríð­ar­lega vel í sitt­hvoru lagi þá gera þær ennþá meira þegar þær eru nýttar saman og því erum við svo mikið að vinna með svo­kall­aða „makeover“ pakka þar sem með­ferð­irnar eru settar saman með ákveðnum mark­miðum í huga.“ Segir Sigrún

Árang­urs­sögur The House of Beauty hlaupa á hund­ruðum
„Við þrýstum aldrei á neinn til að birta mynd­irnar sínar og fara margir í gegn með glæstan árangur sem aðeins þeir og við vitum af. Það fylgir bara trún­að­inum og er algjör­lega eðli­legt m.v. það sem við sér­hæfum okkur í. En svo er alltaf ein­staka dásemdir sem eru til í að leyfa okkur að birta mynd­irnar og leyfa fólki að sjá hvað við erum að gera alla daga og okkur þykir mjög vænt um það.

Ein árang­urs­sagan er sem dæmi hún Kristín Ósk Wium. „En hún var t.d. svo ynd­is­leg að leyfa okkur að birta mynd­irnar hennar undir nafni.“ Segir Sigrún

Hér má sá árang­urs­myndir Krist­ínar og stutt við­tal við hana:

Árang­urs­myndir Krist­ínar og mæl­ing­arnar hennar

“ Í jan­úar var ég algjör­lega að gef­ast upp á sjálfri mér, fannst ég þung bæði and­lega og lík­am­lega.

Ég var búin að íhuga alls­konar, bæði maga­að­gerðir og fitu­sog. Svo sá ég við­tal við Sigrúnu og ákvað að kynna mér með­ferð­irnar sem í boði eru hjá The House Of Beauty. Ég fór í kjöl­farið í mæl­ingu og ráð­gjöf og keypti mér tíma í Velas­hape og í Silk – og þá var ekki aftur snúið!

Ég fór að fara 2x í viku og eftir 5 vikur voru 37 cm farnir af mér.

Það sem þessar með­ferðir hafa að auki gefið mér, en á þessum vikum missti ég

10 kg lík­am­lega – en svo miklu meira and­lega.

Ég hlakka til þess að mæta í tím­ana mína, bæði vegna þess að árang­ur­inn hefur verið svo frá­bær en ekki síður vegna ynd­is­legu stúlkn­anna sem þarna vinna.

Takk fyrir mig – þið losnið aldrei við mig.”

– Kristín Wium

„Svona sögur eins og Krist­ínar eru ástæða þess að við erum alltaf til­búin að leggja hart að okkur við að aðstoða við­skipta­vini að fremsta megni til að ná hámarks­ár­angri.
Okkar slag­orð er“ Þinn árangur er okkar mark­mið.“ Og það má með sönnu segja, við viljum að þeir sem komi til okkar nái árangri. Auðvitað er ekki raun­hæft að gera þá kröfu að 100% kúnna séu alltaf 100% ánægðir en við erum að ná örugg­lega alveg 95% ánægju og þá vitum við að við erum að gera eitt­hvað rétt.“ Segir Sigrún

Fjölda fyrir og eftir mynda við­skipta­vina The House of Beauty má sjá á instagrammi stofunna hér: https://instagram.com/thehouseofbeauty_iceland

Covid lok­anir nýttar til að stækka
„Fljót­lega eftir að við opn­uðum kom í ljós að hús­næðið var of lítið miðað við eft­ir­spurn, þrátt fyrir rúman opn­un­ar­tíma. Við erum með opið virka daga, frá morgni og oft­ast til klukkan 22.00 eða 23.00 á kvöldin og einnig um helgar. Samt var fjög­urra vikna bið í með­ferðir hjá okkur. Því var ákveðið að stækka stof­una og við nýttum tím­ann í COVID-lok­unum til þess,“ segir Sigrún.

The House of Beauty er í Fákafeni 9 og lík­ams­með­ferð­ar­stofan er öll hin glæsi­leg­asta. Krist­als­ljós­krónur, speglaflísar og glam­úr­lúkk með klass­ísku ívafi skapa þægi­legt og afslappað and­rúms­loft. „Sköp­un­ar­gáfan fékk að njóta sín tölu­vert í þessu verk­efni. Ég lét sér­fram­leiða fyrir mig hús­gögn erlendis og einnig lét ég sér­fram­leiða speglaflísar sem prýða stóra veggi á göngum stof­unnar,“ segir Sigrún en í dag starfa 9 með­ferð­ar­að­ilar á stof­unni.

Undra­með­ferðin sem er að hjálpa við gigt, verki og vökva­söfnun

„Ein af okkar allra vin­sæl­ustu með­ferðum er Lipom­assage Sil­kligth, ein öfl­ug­asta sog­æða­með­ferð sem hægt er að kom­ast í. Fyrir utan að hafa gríð­ar­lega öflug áhrif á mótun lík­ama, app­el­sínu­húð, bjúg­söfnun og stað­bundna fitu, þá er þetta með­ferðin sem margir kjósa að fara í til að halda niðri verkjum, t.d. vegna gigtar- eða stoð­kerf­is­vanda­mála. Við fáum marga gigt­ar­sjúk­linga til okkar viku­lega sem ná að halda niðri verkjum með því að koma í þessa með­ferð. Lipom­assage með­ferðin bætir blóð­flæði og dregur úr bólgum og bjúg. Það skemmti­leg­asta við starfið er að sjá fólk ná góðri heilsu á ný. Eftir að hafa sjálf misst heils­una og þurft að berj­ast fyrir því að ná henni aftur þá fyrst gerði ég mér grein fyrir því hversu dýr­mæt heilsan er. Ég brenn fyrir því að aðstoða fólk við að byggja upp heils­una og þessi með­ferð er þar gríð­ar­lega öfl­ugt tæki, enda skipta jákvæðar reynslu­sögur í dag örugg­lega hund­ruðum,“ segir Sigrún.

Er gerð krafa um visst matar­æði eða lík­ams­rækt?
„Við gerum enga sér­staka kröfu um mata­ræð né hreyf­ingu, enda eru þeir sem koma til okkar eins mis­jafnir og þeir eru margir. Sumir geta ein­fald­lega ekki hreyft sig og þurfa því aðstoð okkar til að byggja lík­amann upp. En við gefum góð ráð hvað varðar t.d. vatns­drykkju, gufu, góða nær­ingu og ýmis önnur auka tól til að bæta heils­una og hjálpa við að hámarka árangur hvers og eins. Svo hvetjum við við­skipta­vini til dáða í ferl­inu og það hefur alltaf jákvæð áhrif líka,“ segir Sigrún.

Haustá­skor­unin Sjálfs­rækt
„Það vin­sælasta hjá okkur eru svo­kall­aðir „makeover“ pakkar þar sem við­kom­andi mætir í valdar með­ferðir nokkrum sinnum í viku í nokkrar vikur með ákveðnu mark­miði í huga. T.d. erum við með Húð og styrk­ingar makeover, Húð og grenn­ingar makeover, Heilsu­efl­ingu og Tummy tuck sem dæmi,“ Segir Sigrún og bætir við „Núna eftir þessa rús­sí­ban­areið sem Covid er að fara með okkur í og öllu sem því hefur fylgt þráir fólk að koma heils­unni og form­inu í lag og því fórum við í loftið með svo­kall­aða haustá­skorun sem ber nafnið SJÁLFSRÆKT.

Þessi áskorun er fyrir fólk sem er til­búið að setja sjálft sig í fyrsta sætið með sjálfs­rækt.
Það er hægt að velja um 7 mis­mun­andi haust „makeover“ pakka í áskor­un­inni sem eru á ein­stökum kjörum og alla pakk­ana er hægt að velja um lengd, 14 daga, 3 vikna, 5 vikna, 8 vikna eða 10 vikna pakka, fer allt eftir mark­miðum við­kom­andi.“
Segir Sigrún

Bjóða uppá fría mæl­ingu og ráð­gjöf án skuld­bind­inga
„Við bjóðum uppá margar mis­mun­andi með­ferðir sem getur verið rugl­ings­legt í fyrstu, hvað hentar hverjum og einum og því hvetjum við áhuga­sama til að koma til okkar í fría mæl­ingu og ráð­gjöf hjá sér­fræð­ingi. Það er án allra skuld­bind­inga en þarna er farið yfir mark­mið við­kom­andi og honum ráð­lagt með hvaða með­ferð­ar­pakki hentar best til að ná mark­mið­unum.“ Segir Sigrún og heldur áfram „Árangur er alltaf per­sónu­bund­inn og er sam­starfs­verk­efni með­ferð­ar­að­ila og við­skipta­vinar. Við gefum tækin og tólin, gefum góð ráð en svo er það á ábyrgð við­kom­andi að fara eftir leið­bein­ingum til að aðstoða við útkomu með­ferð­anna.“segir Sigrún Lilja

En eru með­ferðir The House of Beauty fyrir alla?
„Stutta svarið er nei. Þum­al­putta­reglan okkar er sú að þinn árangur er okkar mark­mið. Ef til­skil­inn árangur er ekki að nást fljót­lega eftir að með­ferð­ar­pró­gramm er hafið er mik­il­vægt að gera með­ferð­ar­að­ilum við­vart svo hægt sé að end­ur­meta plön og gera breyt­ingar á prógramm­inu ef þarf. Við erum eins mis­jöfn og við erum mörg og mis­mun­andi lík­amar bregð­ast mis­mun­andi við með­ferð­unum. Fókusinn okkar er ekki endi­lega að við­skipta­vinir missi ákveð­inn fjölda kílóa heldur aðstoðum við þá við að vinna á stað­bundnum breyt­ingum á fitu­söfnun, slappri húð, vöðva­styrk­ingu, slitum, bjúg, bólgum og ýmsu öðru. Okkar mark­mið er frekar að árangur sjá­ist með berum augum og á myndum heldur en að missa ákveð­inn fjölda kílóa þó það sé nú oft líka ákveðin fylgi­fiskur sem hlýtur að telj­ast góður bónus.“ Segir Sigrún og bætir við: „Árangur bygg­ist á góðu sam­starfi með­ferða, með­ferð­ar­að­ila og við­skipta­vinar, við leggjum mikið uppúr góðu and­rúms­lofti fyrir bæði starfs­fólk og við­skipta­vini þannig að óraun­hæf mark­mið og kröfur eiga heima ann­ar­staðar en hjá okkur.“ Bætir hún við að lokum.


Haustá­skorun og haust­pakk­arnir klár­ast í sölu um helg­ina

Það borgar sig að hafa hraðar hendur því að haustá­skorun og haust­pakkar The House of Beauty sem inni­fela 27-33% afslátt af með­ferð­unum klár­ast í sölu á mið­nætti á sunnu­dags­kvöldið.

Áhuga­samir geta kynnt sér haustá­skorun og til­boðin betur hér: https://thehouseofbeauty.is/pages/haust21

Fyrir þá sem vilja bóka sér tíma í fría mæl­ingu og ráð­gjöf hjá sér­fræð­ingi geta gert það á ein­faldan hátt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur