Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ragnheiður virkilega glöð með árangurinn: „Þetta er lúxusvandamál“

Ragnheiður virkilega glöð með árangurinn: „Þetta er lúxusvandamál“
Ragn­heiður veit hvað hún syngur Mynd: Shawn Kosel

Flúða­sveppir og Farmers Bistro eru tvö af mest spenn­andi fyr­ir­tækjum á land­inu þessa stund­ina, en þau eru bæði í eigu sömu fjöl­skyld­unnar. Fyr­ir­tækin hafa vaxið og dafnað mikið und­an­farin ár og erfitt að fá borð á Farmers Bistro yfir sum­ar­tím­ann vegna vin­sælda veit­inga­stað­ar­ins. Fyr­ir­tækin eru skilj­an­lega í miklu sam­starfi, en stór hluti hrá­efna Farmers Bistro er rækt­aður af fjöl­skyld­unni.

Með græna fingur frá pabba

Það er auð­velt að skilja af hverju fyr­ir­tækin hafa vaxið og dafnað, enda eru þau stað­sett á Flúðum, einu fal­leg­asta bæj­ar­fé­lagi lands­ins, og rekin af fólki sem fædd­ist á svæð­inu. Ragn­heiður Georgs­dóttir er verk­efna­stjóri Flúða­sveppa og rekstr­ar­stjóri Farmers Bistro en hún hefur verið með putt­ana í ræktun frá fæð­ingu. „Pabbi minn stofn­aði Garð­yrkju­stöð­ina Jörfa og keypti Flúða­sveppi árið 2005,“ sagði Ragn­heiður um hvernig ævin­týrið byrj­aði. Þó að hún hafi verið mikið inni í starf­inu frá unga aldri flutti hún til Dan­merkur til að fara í háskóla­nám. „Ég fór í alþjóð­leg fyr­ir­tækja­sam­skipti og ensku og tók svo master í við­burð­ar­stjórnun og þjón­ustu­hag­fræði,“ segir Ragn­heiður og segir að námið hjálpi mikið til í rekstri fyr­ir­tækj­anna, enda að ýmsu sem þarf að huga þegar kemur að svo fjöl­þættu fyr­ir­tæki. Hún kláraði námið árið 2015 og sneri heim með gráður í hendi og reynsl­unni rík­ari og hefur verið lyk­il­starfs­maður í fyr­ir­tækj­unum síðan.

Með sveppi á heil­anum, en fjöl­skyldu í hjart­anu

En þó að Ragn­heiður sé að hugsa um sveppi stóran hluta dags þá setur hún fjöl­skyld­una í fyrsta sætið. „Í frí­stundum mínum þá er ég voða­lega mikið að verja tíma með fjöl­skyldu minni. Svo er ég aðeins í hesta­mennsku og körfu­bolta,“ en að stunda hesta­mennsku er hálf­gerð skylda á Flúðum að sögn Ragn­heiðar. Þá eru þau einnig mjög virk í menn­ing­ar­líf­inu í sveit­inni.

En af hverju fór fjöl­skyldan í svepp­a­ræktun? „Þetta var fjár­fest­ing sem pabbi sá að gæti orðið eitt­hvað meira en hún var. Fyrr­ver­andi eig­andi og hann unnu mjög vel saman í þessu og svo erum við auð­vitað búin að gera svo mikið í við­bót. Pabbi hefur mik­inn áhuga á ræktun og hann er svo mik­ill sveita­karl. Hann vill alltaf verða betri og betri og gera meira fyrir mark­að­inn á Íslandi.“

Por­to­bell­oborg­arar Famers Bistro eru stór­kost­legir

Hug­mynda­fræði sem byggir á nánd og nágrenni

Farmers Bistro vinnur eftir „slow food“-hug­mynda­fræð­inni en hún snýst um að not­ast við nærum­hverfið þegar kemur að mat­ar­gerð. Því liggur það í raun í augum uppi að not­ast við slíkt í til­felli Farmers Bistro. „Við erum í græn­met­ismekka Íslands og við erum að rækta svo mikið af þeim afurðum sem eru í almennri mat­ar­gerð. Okkur lang­aði að búa til veit­inga­hús sem er með mest­megnis af okkar afurðum. Þannig að við séum að teygja okkur beint í hlut­ina og þetta sé það fers­kasta sem þú getur fengið,“ sagði Ragn­heiður um málið. „Kjötið okkar er frá Laug­ar­dals­hólum í Blá­skóga­byggð og kjúkling­ur­inn kemur frá Ísfugli frá bæjum í nær­sveitum okkar. Við bökum öll brauðin. Við erum að nota gul­ræt­urnar, paprik­una, spergilkálið, blóm­kálið, allar týp­urnar af sveppum. Í við reynum í raun að búa til rétti sem að mestu leyti sam­an­standa af okkar eigin vörum.“

Lúx­us­vanda­mál sem þarf að leysa

„Mark­miðin næstu þrjú árin eru að stækka. Við náum ekki að anna öllum við­skipta­vinum okkar yfir sum­ar­tím­ann,“ sagði Ragn­heiður um fram­tíð­ina. „Við erum ekki búin að festa nein plön, en við erum byrjuð að teikna upp áætlun um hvernig við ætlum að stækka, hversu mikið og allt í þeim dúr. Það eru svo margir Íslend­ingar á svæð­inu og auð­vitað líka túristar, þannig að yfir sum­ar­tím­ann verður að bóka borð vel fram í tím­ann. Ég myndi gera það fyrr frekar en seinna. Þetta er lúx­us­vanda­mál og álag yfir sum­ar­tím­ann, en þetta er virki­lega gaman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur