Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Húð- og snyrtivöruiðnaðurinn þarf að taka sig saman í andlitinu

Húð- og snyrtivöruiðnaðurinn þarf að taka sig saman í andlitinu
Dr. Guðrún Mart­eins­dóttir leiðir TARAMAR Mynd: Stefán Karlsson

Á und­an­förnum árum hefur íslenska nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið TARAMAR komið með nýjar, heilsu­sam­legar lausnir fyrir þá sem vilja, eða hrein­lega þurfa, bæta og end­ur­byggja húð­ina. Heil­arnir á bak við TARAMAR eru hjónin Guðrún Mart­eins­dóttir, pró­fessor í fiska­vist­fræði, og Krist­berg Krist­bergs­son, pró­fessor emeritus í mat­væla­fræði, sem hafa þróað og fengið einka­leyfi á bylt­ing­ar­kenndum aðferðum til að fram­leiða húð­vörur án þess að nota eig­in­leg rot­varn­ar­efni eða nein önnur efni sem geta verið slæm fyrir húð og lík­ama.

Hrein­leiki húð­vara er ekk­ert til að grín­ast með

Húð­vör­urnar sem hjónin hafa þróað saman skipta þau per­sónu­lega miklu máli, þar sem Rúna hefur sjálf þurft að glíma við húð­vanda­mál um ævina sem hafa verið henni til ama. „Þróunina á TARAMAR má rekja til vanda­mála sem ég hafði með húð mína. Þegar ég fór að lesa um inni­halds­efni í húð­vörum, þá átti ég ekki til orð yfir hvað var í gangi. Allir voru að tala fal­lega um sínar vörur og sögðu að þær væru afburða­hreinar og -virkar. Í mörgum til­fellum var erfitt að finna lista yfir inni­halds­efnin án þess að fara og kaupa vör­urnar og oft voru bara aðal­efnin listuð, en það eru einmitt auka­efnin sem vert er að hafa áhyggjur af og það er ódýr leið að afvega­leiða fólk með því að lista bara aðal­efnin upp. Ég var fyrst hissa eftir að ég fór að skoða inni­halds­efnin. Ég var fimm­tug og farin að sjá áhrif öldr­unar á and­lit­inu um leið og ég glímdi við mjög erfið húð­vanda­mál sem voru afleið­ing af skor­dýra­biti sem ég hafði fengið þegar ég var í námi í Banda­ríkj­unum 25 árum fyrr.“

Áhugi Rúnu þró­að­ist yfir í lang­tíma­rann­sóknir. Hún komst að þeirri nið­ur­stöðu að efnin sem notuð eru í krem og snyrti­vörur gætu haft gríð­ar­lega skað­leg áhrif. „Athug­anir mínar á inni­halds­efnum, sem síðar breytt­ust í lang­tíma­rann­sóknir, sýndu að þeir sem voru að blanda þessar vörur báru ekki hags­muni neyt­enda fyrir brjósti. Þar var að finna mörg efni sem eru í raun hræði­leg, svo sem forma­lín, stoð­efni notuð í bygg­ingar- og bíla­iðn­aði og mörg horm­ón­arugl­andi efni sem og efni sem við nán­ari athugun kom í ljós að voru tekin hratt upp í gegnum húð­ina og sett­ust að í líf­færum og lif­andi vefjum lík­am­ans, þar sem þau gátu haft eitr­andi og jafn­vel krabba­meins­vald­andi áhrif. Í raun varð ég ösku­reið þegar ég kynnti mér þetta og mér blöskr­aði hvernig fyr­ir­tæki gátu talað ann­ars vegar um hvað þau voru hrein, not­uðu ein­göngu „free trade“ og sjálf­bær inni­halds­efni á meðan þau smeygðu inn bak­dyra­megin skelfi­legum efnum sem hrein­lega gátu verið skað­leg og blönd­uðu þeim saman við hin svokölluð hreinu efni.“

TARAMAR vör­urnar eru full­kom­lega hreinar og byggja á líf­rænt rækt­uðum jurtum úr íslenskri nátt­úru

Loforð á lof­orð ofan

Guðrún vill meina að fram­leið­endur snyrti­vara í dag kasti fram full­yrð­ingum án þess að geta staðið við þær. „Í dag veit ég að þetta fyr­ir­bæri, þar sem allir fram­leið­endur stað­hæfa að þeirra vörur séu hreinar, öruggar og nátt­úru­legar, án þess að geta í raun staðið við þessar stað­hæf­ingar, er kallað „greenwashing“. Þessi mark­aðs­setn­ing tröll­ríður snyrti- og húð­vöru­iðn­að­inum í dag og neyt­endur hafa enga leið til að finna út það rétta til að vita hverjum þeir eiga að treysta.“

Heið­ar­leik­inn skiptir máli 

Heið­ar­leiki skiptir Rúnu höf­uð­máli og hefur það orð verið lyk­il­orð þegar kemur að allri mark­aðs­setn­ingu þeirra á vörum sem TARAMAR fram­leiðir. „Þar sem ég hafði upp­lifað þessi svik á eigin skinni, sem venju­legur neyt­andi áður en TARAMAR verk­efnið hófst, þá var ég ákveðin í því að TARAMAR myndi ein­kenn­ast af heið­ar­leika og að aldrei yrðu farnar leiðir í þróun á upp­skriftum sem gætu á nokkurn hátt haft skað­leg áhrif á menn eða umhverfi. Það gerir eng­inn sér grein fyrir hvað þetta í raun og veru þýðir, en að fara þessa leið er marg­falt dýr­ara og krefst mik­illar vinnu og mæl­inga á öllum efnum. Jafnvel þótt efni hafi líf­ræna vottun, sér­stak­lega ef þau koma erlendis frá, þá geta þau inni­haldið leifar af skor­dýra­eitri, ill­gres­i­seyði eða sveppa­eitri sem hefur borist inn á akrana ann­ars staðar frá, eða hrein­lega verið úðað á akrana án eft­ir­lits. Og hvað þá með nátt­úru­leg efni sem eru ekki vottuð. Þessi efni eru í öllum til­fellum gegn­sósa af eit­ur­efnum. Sem dæmi þá eru akrarnir í Norður-Ameríku úðaðir 5-7 sinnum á ári með eitr­andi efnum sem eiga að drepa skor­dýr, ill­gresi og sveppi. Þetta eitur sest að í lif­andi vefjum og kemur með nátt­úru­efn­unum inn í húð­vör­urnar. Neyt­endur hafa enga leið til að meta hvort vör­urnar inni­halda mikið af þessum efnum, þeir geta í besta falli valið vörur með líf­rænt vott­uðum inni­halds­efnum.“ 

Þá hafa fram­leið­endur í hinum stóra heimi snyrti­vara reynt að kom­ast fram hjá reglum hvað varðar ýmiss konar efni og magn sem má setja í húð­vörur að sögn Rúnu. „Hvað varðar önnur efni, eins og para­benin, benzyl afleið­urnar, phen­oxyet­hanol og glyclo, sem finn­ast í eig­in­lega öllum húð­vörum, þá geta neyt­endur lesið inni­halds­lýs­ing­arnar og reynt að var­ast þessi efni. Sum af þeim eru leyfð í litlu magni eins og phen­oxyet­hanol sem má ekki nota í meiri styrk­leika en 1%, en eft­ir­lits­mælingar hafa sýnt að fram­leið­endur setja oft mikið meira í vör­urnar.“ 

Rann­sóknir á rot­varn­ar­efn­inu phen­oxyet­hanol sýna að það hefur eitr­andi áhrif á lif­andi vefi. Hér má sjá áhrif þessa efnis á rót­ar­vöxtur við styrk­leika 0, 2, 5 og 10 mM

Notast aðeins við íslenskar líf­rænar afurðir

Það er mikil lukka fyrir þau að vera svo nálægt góðu hrá­efni sem er hægt að nota í vörur fyr­ir­tæk­is­ins, enda telur Rúna það gíf­ur­lega mik­il­vægan þátt í vör­unum. „Við erum svo lánsöm að hafa aðgang að úrvals­hrá­efni hér á Íslandi. Þannig er ein örugg­asta leiðin til að forð­ast falin, eitr­andi efni í nátt­úru­legum afurðum, að fram­leiða efnin sjálf eða kaupa þau af fólki sem stundar líf­rænan búskap. Við fáum jurtir og þang frá Bláskel í Breiða­firði, Í skjóli Skyggnis í Gríms­nes­inu og Móður Jörð á Fljóts­dals­hér­aði. Þessar nátt­úru­af­urðir eru afburða­hreinar, gríð­ar­lega öfl­ugar og bera af öllu sem við höfum séð, en við höfum í gegnum tíð­ina fengið hund­ruð af sýnum af jurtum og þangi alls staðar að af hnett­inum.“

Þá segir Guðrún að hún standi standi og falli með vör­unum sem TARAMAR fram­leiðir. „Til að losna við öll erf­iðu og horm­ón­arugl­andi, mann­gerðu efnin, þá þró­uðum við nýja aðferð sem gerir okkur kleift að setja saman for­múlur án þess að nota eig­in­leg rot­varn­ar­efni, eða nein af þeim óæski­legu efnum sem almennt finn­ast í svo til öllum húð­vörum. TARAMAR stendur við það, að fólk getur treyst því 100% að vör­urnar eru hreinar og öruggar og ekk­ert í gangi sem ekki má segja frá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur