Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Woolroom sérhæfir sig í svefnvörum úr ull: „Líkaminn skynjar gæðin og nær mun betri endurheimt“

Woolroom sérhæfir sig í svefnvörum úr ull: „Líkaminn skynjar gæðin og nær mun betri endurheimt“
Vil­mundur skoðar heilsu­sam­legar svefn­vörur. Ljósmynd: Aðsend

Woolroom er verslun sem sér­hæfir sig í svefn­vörum úr ull. Vil­mundur Sig­urðs­son, einn eig­anda versl­un­ar­innar, ræddi við Mannlíf um þetta töfra­efni.

Woolroom byrj­aði smátt fyrir tæpum fimm árum í Auð­brekku 24 í Kópavogi og var afsprengi mik­illar umræðu um lík­lega skað­semi plast­efna í rúm­dýnum og koddum.

Að sögn Vil­mundar Sig­urðs­sonar eins af eigandum versl­un­ar­innar, sýndi það sig fljótt að mikil þörf er á þessum val­mögu­leika gegn miklu úrvali gervi­efna svefn vöru sem hefur í raun yfir­tekið mark­að­inn síð­ustu ára­tugi. Segir hann að mót­tök­urnar hafi verið stór­kost­legar en nú fimm árum seinna er Woolroom flutt í stærra og betra hús­næði í Selmúla, milli Ármúla og Síðumúla. Versl­un­ar­stjóri og eig­andi Woolroom er Svala Möller eig­in­kona Vil­mundar en hjónin Gunnar Guð­munds­son og Ingunn Brynj­ólfs­dóttir eru einnig eig­endur, ásamt Vilmundi.

„Við erum að tala um tvo póla,“ segir Vilmunur í byrjun sam­tals­ins og hélt áfram. „Á mínus end­anum eru gervi­efni, sem til dæmis Neyt­enda­sam­tökin hafa gefið út að hafi nei­kvæð áhrif í fatn­aði, sam­kvæmt nýjasta tölu­blaði þeirra. Plast­efni, Flís og önnur gervi­efni eru bara nokk­urra tuga gömul og þannig lítil reynsla af þeim.“

Segir hann að Umhverf­is­stofnun hafi skrifað á heima­síðu sína að mjúkt plast í barna­leik­föngum sé skað­legt heilsu barna og að þau eigi ekki einu sinni að hafa þau nálægt sér. Stað­reyndin sé sú að í 95 pró­sent rúm­dýna sem not­aðar eru á Íslandi, eru svampefni í efsta lag­inu, sem er í raun mjúkt plast með loft­bólum í og geta inni­haldið allt að 61 útguf­un­ar­efni. „Á plús end­anum er ullin sem vitað er að hefur hátt orku­gildi, er heil­næm og hefur verið notuð frá örófi alda í fatnað og svefn vöru, rúm­dýnur, kodda, og svo fram­vegis. Ullin er hita­jafn­andi og mjög raka­dræg, hún fylgir hita­stigi lík­am­ans og jafnar það á full­kom­inn hátt.“

Segir Vil­mundur að ull í úti­vi­starfatnað og svefn­vörur, sé „stór­kost­legt efni sem lík­am­inn elskar og finnur gríða­legan mun á and­spænis gervi­efnum.“ Hélt hann áfram: „Við vöknum fersk og úthvíld eftir svefn á ull­ar­dýnu, með ull­ar­kodda og ull­ar­sæng, lík­am­inn skynjar gæðin og nær mun betri end­ur­heimt en á gervi­efnum. Svita­myndun er oft mikil á gervi­efnum, en hún heyrir sög­unni til með Woolroom ullar svefn­vörum.“ Segir hann að það sem hafi mest áhrif sé ull­ar­dýnan sjálf.

Vil­mundur segir við­skipta­vin­ina afar ánægða með vör­urnar þeirra. „Við í Woolroom höfum fengið fjöldan allan af sögum frá fólki sem lýsir því að vakna aftur alveg end­ur­nærð og fersk, svita­myndun í svefni er ekki merkj­an­leg og lífs­gæði aukast.“

„Mikil vit­und­ar­vakn­ing hefur verið síð­ustu árin um mik­il­vægi heil­næmra efna í nærum­hverfi okkar,“ segir Vil­mundur og heldur áfram: „Og spilar þar svefn­varan stærsta hlut­verkið, því þar erum við í við­kvæmu við­gerð­ar­á­standi stóran hluta ævinnar.“

Stað­hæfir hann að svefn­varan sé þess vegna sú vara sem hefur mest umhverf­is­meng­andi áhrif á okkur, þó hún hafi jan­vel ein­ungis örlitla efna­út­gufun, „því við erum í alveg varn­ar­lausu ástandi þar í svo langan tíma.“

Woolroom leggur gíf­ur­lega áherslu á að engin hætta sé á nei­kvæðum áhrifum á lík­amann, heldur þvert á móti er það að sýna sig að ullin hefur mjög jákvæð áhrif á okkur í svefni, að sögn Vil­mundar. Þá séu ull­ar­svefn­vörur séu vin­sælar á meðal íþrótta­fólks þar sem þær virð­ast hraða end­ur­heimt eftir erf­iðar æfingar.

Vil­mundur segir að Woolroom selji mikið úrval af af ull­ar­dýnum, ull­ar­koddum, ull­ar­sængum, ull­ar­hlífð­arlökum, ull­ar­mjúk­toppum, ull­argormatoppum og ull­ar­teppum. Einnig sé lögð áhersla á ull­ar­svefn­vörur fyrir börn. „Woolroom hefur hlotið frá­bærar mót­tökur og hefur stuðlað að miklum breyt­ingum á íslenskum svefn vöru­mark­aði á skömmum tíma.“ Að lokum segir Vil­mundur: „Woolroom er alvöru val­mögu­leiki fyrir fólk til að tryggja öruggan og heil­næman svefn án aðkomu skað­legra útguf­un­ar­efna. Hita­jöfnun og raka­drægni er lyk­ill­inn í Woolroom ull­ar­svefn­vör­unum.“

Hægt er að lesa meira á heima­síðu Woolroom á woolroom.is .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur