Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þremenningar reka Hótel Skálholt – „Við sáum bara svo mikla möguleika hérna“

Þremenningar reka Hótel Skálholt – „Við sáum bara svo mikla möguleika hérna“
Mynd/aðsend

Hótel Skálholt er stað­sett í Bisk­ups­tungum í Blá­skóga­byggð og er í um það bil klukku­tíma og korters akst­ur­fjar­lægð frá borg­inni. Náttúran og nærum­hverfið býður upp á sann­kallað ævin­týri fyrir ein­stak­linga, vini og fjöl­skyldur.

Fyrir ári síðan tóku þre­menn­ing­arnir Gunn­hildur Helga Gunn­ars­dóttir og Bjarki Þór Ingi­gerðar- Sól­munds­son við rekstri Hótel Skál­holts. Lengi hafði blund­aði í þeim draumur um að sam­eina krafta sína og vinna að ein­hverju verk­efni.

Úr list­inni í hót­el­rekstur

Gunn­hildur er með bak­grunn í kvik­mynda- og sjón­varps­gerð og Bjarki Þór er mynd­list­ar­maður og kokkur. „Okkur lang­aði til að stofna okkar eigin- eitt­hvað,“ segir Gunn­hildur en bætir við að það hafi ekki legið fyrir hvert verk­efnið ætti að vera. Bjarki Þór starf­aði á sínum tíma sem kokkur hjá hót­el­inu þegar til­boðið um að taka við rekstr­inum bauðst. Umhugs­un­ar­frestur og fyr­ir­var­inn að yfir­tök­unni var knappur útskýrir Gunn­hildur: „Þetta gerð­ist rosa­lega hratt. Okkur var boðið þetta í júlí og ef við ætl­uðum okkur að taka rekst­ur­inn yfir þá þyrfti það að ger­ast í ágúst.“

Miklir mögu­leikar

Frændsystk­inin gistu eina nótt á hót­el­inu og báru saman bækur sínar, lögð­ust í hug­mynda­vinnu og áætl­un­ar­gerð – og svo fór sem fór. „Við sáum bara svo mikla mögu­leika hérna og tæki­færi til þess að byggja upp stað – sem skiptir í raun alla Íslend­inga máli.“

Fyrsta árið hefur gengið vonum framar og er hót­elið full­bókað núna í sumar. „Það er stút­fullt hjá okkur og það hefur aldrei gerst áður,“ segir Gunn­hildur og bætir við að gestir hót­els­ins séu blanda af erlendum og íslenskum ferða­mönnum. „Í vetur fengum við mjög mikið af íslenskum hópum enda mikið af Íslend­ingum sem þykir vænt um Skálholt og heim­sækja stað­inn á hverju ein­asta ári.

Menn­ing­ar­hús

Hótelið er ekki bara gistin­átta­staður heldur leggja rekst­ar­að­ilar mikið kapp við að bjóða gestum og nær­sam­fé­lagi upp á tón­leika, bóka­kynn­ingar, ljós­mynda- og mynd­list­ar­sýn­ingar.

Bjarki Þór og Gunn­hildur vilja blása menn­ing­ar­legu lífi og við­burðum í stað­inn og verður t.d. súr­káls­nám­skeið haldið í sept­em­ber fyrir kokka og áhuga­fólk um mat­ar­gerð. Sandor Ellix Katz, súr­káls­meist­ari, mun leiða nám­skeiðið. Nánari upp­lýs­ingar um við­burði Hótel Skál­holts er að finna á heima­síðu þess.

Veit­ing­ar­stað­ur­inn Hvönn

Hvönn býður upp á veit­ingar allan dag­inn, þar má panta hádeg­is­mat, kökur og bökur. Á kvöldin er boðið  upp á þriggja rétta mál­tíðir og er mat­seð­il­inn breyti­legur frá degi til dags enda snið­inn eftir fram­boði hrá­efnis. Megnið af hrá­efn­inu er verslað beint af bændum í nærum­hverf­inu. Hollusta og bragð eru höfð að leið­ar­ljósi við mat­ar­gerð­ina. Einnig er boðið upp á græn­metis- og græn­kera­rétti.

Bjarki Þór er kokk­ur­inn og hefur ára­tuga reynslu í fag­inu. Sköpun ein­kennir mat­ar­gerð hans. Lögð er áhersla að mat­ar­gerðin fari öll fram á staðnum. Þá er rúg­brauðið bakað í hver á svæð­inu og eru til dæmis heima­gerðar sultur og súr­kál. „Við erum að brugga okkar eigið kombucha,“ segir Gunn­hildur og bætir við að hægt sé að fá drykk­inn í ýmsum nátt­úru­legum brögðum. Ber þar t.d. að nefna hvann­ar­bragð, jarð­ar­berja, bróm­berja og mango. „Við viljum geta boðið upp á flotta drykki sem eru á pari við áfenga­drykki,“ útskýrir hún og bætir við að við­tök­urnar séu afbragðs­góðar.

Stað­setn­ing

Hótel Skálholt er mitt í Gullna hringnum og þar að leið­andi er hægt að heim­sækja marga áhuga­verða staði. Þar ber helst að nefna Gullfoss, Geysi og Þing­velli en að auki er til­valið að fara dags­ferðir inn á hálendið eða niður að strönd. Hús­dýra­garð­ur­inn Slakki er við hlið­ina á hót­el­inu og margir bað­staðir á svæð­inu. Fontana á Laug­ar­vatni, Secret lagoon og Hruna­laug á Flúðum, sund­laug í Minni Borgum og í Reyk­holti. Stað­setn­ingin höfðar því til allra sem vilja njóta sveitar, útsýnis, nátt­úru­feg­urðar og kyrrðar.

Vert er að benda les­endum á heima­síðu og fés­bók­ar­síðu Hótel Skál­holts.

www.hotelskalholt.is

www.facebook.com/skalholthotel

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur